Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Síða 14
FÓLK HVATT TIL
AÐ VARA SIG Á
TILBOÐUM
Algengt er að hringt sé frá sjón-
varpsstöðvum og fólki boðin frí
áskrift í mánuð til að byrja með.
Oftar en ekki þiggur fólk þetta
tilboð og sér þar tækifæri til að
kynna sér hvað stöðin hefur upp á
að bjóða áður en áskrift er keypt.
Neytendastofa beinir því til fólks að
vara sig á slíkum tilboðum og segir
málið ekki svo einfalt. Á heimasíðu
samtakanna er sagt að í fæstum
tilfellum sé tekið fram að viðkom-
andi þarf að segja upp áskrift vilji
hann ekki halda áskrift áfram að
mánuðinum liðnum. Góð regla sé
að samþykkja aldrei tilboð í síma
heldur biðja um það í tölvupósti og
taka svo ákvörðun.
BIÐU Í 40 MÍNÚTUR
n Lastið fær Eldsmiðjan fyrir að af-
henda ekki pítsur á réttum tíma. „Ég
mundi aldrei panta hjá Eldsmiðj-
unni ef pítsurnar væru ekki svona
góðar, við höfum aldrei fengið þær
á réttum tíma,“ segir viðskiptavinur.
„Við höfum þurft að bíða í 40 mínút-
ur á staðnum þó að við
værum búin að fá SMS
frá þeim. Einnig höf-
um við fengið kaldar
pítsur og pöntunum
hefur verið klúðrað.
Auk þess eru þær rándýrar,“
bætir hann við.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
FÉKK NÝJAN LAMPA
n Viðskiptavinur vildi láta vita af
ánægjulegum viðskiptum við Ha-
bitat. Kona keypti lampa í búðinni
fyrir um það bil ári en var ósátt við
hann þar sem hann hitnaði of mikið.
Hún gerði ekkert í málinu fyrr en nú
fyrir stuttu þegar hún fór með
lampann í búðina. „Mér var
strax boðinn nýr lampi. Ég
talaði fyrst við ungan mann
og svo unga stúlku en
bæði voru þau alveg
sérlega liðleg,“ segir
hún.
LOF&LAST
14 NEYTENDUR UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON baldur@dv.is 8. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
RAFMAGNSNOTKUN HEIMILA Rafmagnsverð hefur
hækkað mikið síðustu misserin en neytendur kannski ekki jafn meðvitaðir
um rafmagnsnotkun heimilisins. Því er vert að fylgjast með notkuninni til að
ná fram sparnaði. Til er mælitæki sem sýnir hve mikið rafmagn almenn heim-
ilistæki nota. Það er eins konar millistykki milli innstungu og heimilistækis og
sýnir notkunina á skjá og nefnist Sparometer. Neytendablaðið mælir með að
neytendur noti slík tæki til þess að fylgjast með rafmagnsnotkun heimilisins.
Neytendasamtökin bjóða félagsmönnum sínum að fá mælitækið lánað til að
þeir geti séð hversu mikið rafmagn einstök heimilistæki nota.
Á heimasíðu Neytendasamtak-
anna er þess krafist að skylt verði
að merkja saltinnihald á matvælum
sem innihalda mikið af salti. Sam-
tökin hafa sent stjórnvöldum erindi
vegna þessa og hvetja neytendur
að gera slíkt hið saman. Á heima-
síðunni segir einnig að upplýsing-
ar um saltmagn í mætvælum verði
að teljast mikilvægar í ljósi þeirra
heilsufarslegu áhrifa sem mikil salt-
neysla hefur í för með sér. Undar-
legt megi teljast að á sama tíma og
fólki er ráðlagt að stilla saltneyslu
í hóf er ekki skylda að upplýsa um
saltmagn. Mikið sé af saltríkum
matvælum án þessara upplýsinga
og bent er á að fólk getur ekki bor-
ið ábyrgð á eigin mataræði ef mik-
ilvægum upplýsingum er haldið
leyndum. Samtökin benda á mörg
lönd hafa gripið til aðgerða til að
minnka saltneyslu en í Finnlandi
er til dæmis skylt að merkja salt-
innihald saltríkra matvæla. Setja
þarf eins konar varrúðarmerkingu
á umbúðirnar ef saltmagnið fer yfir
ákveðið viðmið.
Mikil hefði er fyrir fyrir reyktum
og söltuðum mat á jólum og hvetur
Lýðheilsustöð að fólk stilli skömmt-
um af slíkum mat í hóf, sérstaklega
fólk sem er veikt fyrir sem ætti þess
í stað að fá sér meira af grænmeti
og öðru meðlæti. Eins er ráðlagt að
saltneysla fari ekki yfri 6 til 7 grömm
á dag en það viðmið er notað víðast
annars staðar. Landskönnun á mat-
aræði Íslendinga, sem framkvæmd
var árið 2002, sýnir að saltneysla
hér á landi er mun meiri en æskilegt
getur talist en hún er að minnsta
kosti 9 grömm að meðaltali á dag.
Þá er ekki meðtalið það salt sem oft
er stráð á matinn við borðhaldið.
gunnhildur@dv.is
Íslendingar borða að líkindum miklu meira salt en ráðlagt er.
Fái upplýsingar um saltinnihald
Salt og pipar Salt Neytendasam-
tökin telja það brýnt að merkja
saltinnihald matvæla. MYND PHOTOS.COM
BÖNKUNUM BJARGAÐ
Þeir sem tala fyrir hagsmunum
skuldara eru sammála um að úrræði
ríkisstjórnarinnar, sem felast í því
að færa skuldir yfirveðsettra heimila
niður í 110 prósent af markaðs- eða
fasteignaverði, bæti engu við þau úr-
ræði sem bankarnir höfðu áður boð-
ið. Skuldavandinn sé jafn mikill og
áður og 110 prósenta leiðin sé enn
fremur óréttlát og geti aðallega kom-
ið þeim að gagni sem glannalegast
fóru í uppsveiflunni fyrir hrun. Úr
viðbrögðum fjármálafyrirtækja má
lesa að þeim sé stórlega létt.
Viðbrögð fjögurra aðila sem tal-
að hafa fyrir hagsmunum skuldsettra
einstaklinga sýna að ríkisstjórnin fær
falleinkunn fyrir úrræði sín. Þau má
sjá hér til hliðar.
Lokasvar stjórnvalda
Ríkisstjórnin kynnti lokaúrræði sín
við skuldavanda heimilanna með
pompi og prakt á föstudaginn. Í vilja-
yfirlýsingunni er að finna þau úrræði
sem ríkisstjórnin hefur unnið að í
samráði við fjármálastofnanir og líf-
eyrissjóði undanfarnar vikur. Lækk-
unin getur getur falist í 110 prósenta
leiðinni, sem áður er nefnd, sem get-
ur numið allt að fjórum milljónum
króna hjá einstaklingi og sjö millj-
ónum króna hjá hjónum eða sam-
býlisfólki og einstæðum foreldrum.
Einstaklingar sem eru sérstaklega
illa staddir geta fengið að hámarki 15
milljónir króna afskrifaðar, að und-
angenginni ítarlegri könnun á eigna-
stöðu og mati á greiðslugetu í sam-
ræmi við verklagsreglur um sértæka
skuldaaðlögun. Hjón eða sambýlis-
fólk getur mest fengið 30 milljónir í
afskrift.
Ekki fyrir alla
Heilt ár er síðan bankarnir hófu að
bjóða sambærilega lausn – að færa
skuldir niður í 110 prósent af mark-
aðsvirði íbúðanna. Munurinn á lausn
bankanna og ríkisstjórnarinnar er
að í tilfelli stjórnvalda sitja ekki allir
við sama borð. Þannig fá hjón sem
samanlagt hafa 501 þúsund krónur í
heildarlaun á mánuði, og greiða 100
þúsund krónur af fasteigninni sinni,
ekki notið þessarar leiðar. Í þeim til-
vikum þar sem greiðslur af húsnæði
nema lægra hlutfalli en 20 prósent-
um af heildarlaunum sitja viðkom-
andi í súpunni. Þeir fá enga lækkun á
lánunum – samkvæmt úrræðum rík-
isstjórnarinnar. Enn fremur er lausn
stjórnvalda verri að því leytinu að
hámarksniðurfærsla hjá einstaklingi
er fjórar milljónir en sjö milljónir hjá
hjónum, eins og áður kom fram.
Fleiri úrræði hefur ríkisstjórn-
in kynnt lauslega, sem felast meðal
annars í því að vaxta- og húsaleigu-
bætur verði ekki skertar.
Þá ætlar ríkisstjórnin að leita leiða
til að koma á fót nýjum niðurgreiðsl-
um á vöxtum í gegnum vaxtabóta-
kerfið. Það mun kosta allt að 6 millj-
örðum króna en niðurgreiðslurnar
verða óháðar tekjum ef fólk á meiri
hreinar eignir en tiltekin mörk kveða
á um.
Fjármálafyrirtækin fagna
Ekki er hægt að segja að þeir sem tala
fyrir hagsmunum skuldsettra heim-
ila séu upprifnir með þetta lokasvar
stjórnvalda. Þeir einu sem fagna til-
lögunum eru fjármálastofnanir og
samtök fjármálafyrirtækja. Þau telja
að mikilvægum áfanga hafi verið
náð með samkomulagi ríkisstjórnar-
innar, eins og sjá með í viðbrögðum
þeirra hér neðar á síðunni.
Þess má geta að ríkisstjórnin hef-
ur verið harðlega gagnrýnd fyrir lin-
kind við fjármálastofnanir á meðan
gengið sé hart á heimilin. Aðgerðirn-
ar sem felast í yfirlýsingu stjórnvalda
frá því á föstudaginn verða vart til að
draga úr þeirri gagnrýni.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
Samtök fjármálafyrirtækja og bankarnir
eru þeir einu sem fagna útspili stjórn-
valda til handa skuldsettum heimilum.
Þeir sem talað hafa fyrir hagsmunum
skuldsettra einstaklinga segja aðgerðir
stjórnvalda óréttlátar og að þær bæti litlu
eða engu við það sem bankarnir hafi áður
boðið.
Þeir einu sem fagna tillögun-
um eru fjármálastofn-
anir og samtök fjár-
málafyrirtækja.
Fordæma ákvörð-
un stjórnvalda
Hagsmunasamtök heimilanna
sendu frá sér tilkynningu í kjölfar
yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um
aðgerðirnar í síðustu viku. Þar taka
samtökin fram að þau séu ekki að-
ili að viljayfirlýsingunni og stjórn
samtakanna ítrekar kröfur sínar
um almenna leiðréttingu lána.
Samtökin hafna kynntri aðferða-
fræði við lausn skuldavandans
og segja að sú aðferðafræði sem
stjórnvöld leggi upp með sé ekki ný
af nálinni. Að hún gangi út á að að-
laga stökkbreyttar skuldir að veðr-
ými og greiðslugetu á grundvelli
einstakra mála en ráðist ekki að
rót vandans. Í aðgerðunum felist
eingöngu viðurkenning á óinn-
heimtanlegum kröfum. Jafnframt
fordæma samtökin þá ákvörðun
stjórnvalda að ekki verði gripið til
frekari aðgerða og telja ríkisstjórn-
ina hafa gefist upp. Ef svo sé þurfi
ríkisstjórnin að víkja.
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 200,7 kr. VERÐ Á LÍTRA 200,7 kr.
Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 203,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 203,6 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 205,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 205,3 kr.
BENSÍN
Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 196,3 kr. VERÐ Á LÍTRA 196,3 kr.
Melabraut VERÐ Á LÍTRA 203,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 203,6 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 203,7 kr. VERÐ Á LÍTRA 203,7 kr.E
L
D
S
N
E
Y
T
I