Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Page 16
16 erlent 8. desember 2010 miðvikudagur
Að mati bandarískra sendiráðs-
fulltrúa í Kína hafa ráðamenn þar
í landi nú þegar fundið eftirmann
forseta Kínverja, Hu Jintao. Þann 28.
október var hinn 57 ára gamli Xi Jin-
ping skipaður varaforseti kínverska
herráðsins af miðstjórn Komm-
únistaflokksins en hann gegnir
nú þegar stöðu varaforseta. Telja
Bandaríkjamenn að með þeirri út-
nefningu sé búið að leggja rauða
dregilinn fyrir Xi að forsetaembætt-
inu, sem hann ætti að óbreyttu að
taka við að tveimur árum liðnum
og verða þar með einn valdamesti
maður heims. Þessi skoðun banda-
rískra stjórnvalda kom í ljós í kjölfar
birtingar Wikileaks á samskiptum
utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna
í Washington og sendiráðs þeirra
í Peking, höfuðborg Kína. Banda-
ríkjamenn munu hafa komist í sam-
band við heimildarmann sem er
nákominn Xi og gátu því búið til
nákvæma mynd af manninum sem
mun senn taka við stjórnartaumun-
um í Kína.
Góður maður af góðu heimili
Heimildarmaður Bandaríkjanna
segir að Xi sé „ótrúlega metnaðar-
fullur“ og jafnframt „góður mað-
ur.“ Þrátt fyrir að Kína sé opinber-
lega stéttlaust samfélag, hlaut Xi
yfirstéttaruppeldi en engum dylst
að háttsettir einstaklingar í Komm-
únistaflokknum njóta betri kjara en
almenningur. „Sum dýr eru jafn-
ari en önnur,“ eins og enski rithöf-
undurinn George Orwell komst að
orði. Faðir Xi, Xi Zhongxun, barðist
við hlið Maós Zedongs í kínversku
borgarastyrjöldinni og varð síðar
aðstoðarforsætisráðherra.
Tryggði það Xi uppeldi í vernd-
uðu umhverfi flokksforystunnar í
Nanshagou-úthverfinu í Peking þar
sem hann komst í kynni við önnur
börn af sama tagi. Börn háttsettra
meðlima Kommúnistaflokksins
voru snemma stimpluð sem „smá-
prinsar“ og segir heimildarmað-
ur Bandaríkjanna að Xi hafi líklega
vitað það ungur að árum að örlög
hans yrðu að öðlast forystuhlutverk
í Kommúnistaflokknum.
Erfið táningsár
Árið 1966 hóf Maó menningarbylt-
ingu sína. Í henni fólst að grunað-
ir njósnarar og niðurrifsstarfsmenn
voru handsamaðir og því næst
sendir í fangelsi, þrælkunarbúðir
eða teknir af lífi. Faðir Xi var einn
þeirra sem var grunaður um græsku
og lenti hann í fangelsi. Í kjölfarið
var Xi sendur út í sveit þar sem hann
kynntist erfiðisvinnu í fyrsta sinn. Í
byrjun 8. áratugar síðustu aldar fékk
Xi, ásamt öðrum smáprinsum, að
snúa aftur til Peking. Flestir þeirra
tóku nýfengnu frelsi fagnandi,
margir reyndu að flýja Kína á meðan
aðrir urðu afhuga stjórnmálastarfi –
fannst sem flokkurinn hefði svikið
sig. Öllum að óvörum sneri Xi sér að
flokknum af heilum hug. Heimildar-
maðurinn sagði Xi hafa ákveðið að
komast af með því verða „rauðari en
rauður.“
Hægur en öruggur uppgangur
Xi gekk formlega í Kommúnista-
flokkinn 1974, en það varð til þess
að æskuvinir hans, smáprinsarn-
ir, afneituðu honum. Hann hóf að
lesa marxísk fræði í háskóla og hóf
afskipti af stjórnmálum í gegn-
um starf fyrir vinnunefndir verka-
manna, bænda og hermanna. Hann
lauk gráðu í efnafræði og síðar dokt-
orsgráðu í lögfræði frá Qinghua-há-
skólanum í Peking árið 1979. Í kjöl-
farið gekk hann í kínverska herinn,
þar sem hann fékk ritarastöðu hjá
miðstjórn herráðsins. Xi gekk einn-
ig í sitt fyrsta hjónaband á þessum
tíma, en fyrri eiginkona hans, Ke Xi-
aoming, var af góðum ættum kom-
in – faðir hennar starfaði í sendiráði
Kína í Lundúnum. Hjónabandið
gekk hins vegar illa og að lokum
flutti Ke aftur til fjölskyldu sinnar til
Lundúna.
Í kjölfarið tók Xi afdrifaríka
ákvörðun sem átti eftir að reyn-
ast honum vel. Að hans mati var of
mikið um pólitískar aftökur í höfuð-
borginni, of mikið var um að fyrr-
verandi samherjar reyndust á end-
anum vera svikarar. Hann leit svo á
að ef hann myndi starfa fyrir flokk-
inn í fjarlægum héruðum í Kína,
væru minni líkur á því að hann eign-
aðist pólitíska óvini. Hann hóf störf í
Heibei-héraði, og síðar í Fujian- og
Zhejigang-héruðum, þar sem hann
fór að klífa metorðastigann.
Árið 2007 var röðin komin að
honum að uppskera laun erfiðisins.
Hann var skipaður leiðtogi Komm-
únistaflokksins í Shanghæ, sem er
talin ein áhrifamesta staða innan
flokksins. Á þeim tíma var talið að
Shanghæ væri gegnsýrð af spillingu,
en Jiang Zemin, fyrrverandi forseti
Kína, taldi að Xi væri ekki hægt að
spilla og að hann myndi taka þar til
hendinni.
Talinn strangur leiðtogi
Samkvæmt heimildum Bandaríkj-
anna er Xi strangur leiðtogi og tek-
ur starf sitt alvarlega. Hann hefur
engan áhuga á áfengisdrykkju eða
félagskap við vændiskonur, ólíkt
öðrum háttsettum embættismönn-
um í Kommúnistaflokknum. Hann
er einstaklega vel að sér í innanrík-
ismálum og gerir sér grein fyrir því
hve spilltir margir samstarfsmenn
hans eru. Honum er illa við stétt
hinna nýríku Kínverja, en sjálfur
segist hann hafa óbeit á peningum.
Hann óttast að frjálsa markaðshag-
kerfið sem Kínverjar aðhyllast í dag
eigi eftir að svipta þá virðingu sinni
og heiðri. Þrátt fyrir það áttar hann
sig á að flokksforystan er á öðru máli
og takmarkar þannig aðgerðir sínar
við það sem hann veit að er flokkn-
um þóknanlegt.
Vonist fólk að sama skapi eft-
ir breytingum í Kína eftir að Xi tek-
ur við völdum mun það sennilega
verða fyrir vonbrigðum. Xi er þess
fullviss að framtíð og farsæld Kína
sé einungis tryggð með fámennum
og traustum hópi valdamanna og
gefur lítið fyrir lýðræðislegar um-
bætur. Að hans mati eru smáprins-
arnir réttmætir erfingjar kínversku
byltingarinnar og munu þeir gegna
því mikilvæga hlutverki að vernda
félagslegan stöðugleika meðal kín-
versku þjóðarinnar.
Bandaríkjamenn telja sig hafa öruggar heimildir fyrir því að næsti forseti Kína verði Xi Jinping. Hafa sendi-
ráðsfulltrúar Bandaríkjanna í Peking safnað saman miklum upplýsingum um Xi til að fá sem skýrasta mynd
af manninum sem brátt verður einn sá valdamesti í heimi.
Næsti forseti
KíNa er fuNdiNN
bJörn TEiTsson
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
Samkvæmt
heimildar-
manninum
munnúverandi
eiginkonaXi
verafrægari
meðalKínverja
enforsetaefnið
sjálft.Hin47
áragamla
PengLiyuan
ersöngkonasemferðastreglulega
umKínaogsyngurlögumþjóð-
ernisást,flokkshollustuogfallegar
heimasætursembíðadraumaprinsa
sinna.SöngvarPenghafaumárabil
blásiðKínverjumkjarkíbrjóstog
nýturhúneinnigmikillarhyllimeðal
flokksforystunnar.Fyrirstörfsíní
þáguflokksinshefurhennihlotnast
heiðursstaðasemtveggjastjörnu
herforingiíkínverskafrelsishernum.
konan frægari
Xi hafi líklega vitað það ungur
að árum að örlög hans
yrðu að öðlast forystu-
hlutverk í Kommúnista-
flokknum.
Xi Jinping Taliðerað
hannverðiorðinnforseti
Kínainnantveggjaára.
Jiang Zemin, fyrrverandi forseti, og Hu Jintao, forseti Hérskálasíðustufor-
setarKína.XiJinpingerskjólstæðingurZeminenHuvildifáLiKeqiangsemarftaka.