Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Qupperneq 22
Sylvie og Karl hafa verið bestu vin-
ir frá því að þau voru lítil. Þau fóru
í sitthvorn skólann og Sylvie fer að
taka eftir breytingum í fari Karls.
Karl safnaði glerhlutum og átti hann
safn sem hann geymdi í kofa úti í
garði sem Sylvie og Karl kalla Gler-
kofann. Þar voru þau vön að semja
sögur um Glerheima sem þau söfn-
uðu í bók. Þau bjuggu til alls kon-
ar persónur, en Karl var hættur að
hafa tíma til að semja Glerheima-
sögurnar. Sylvie eignast vinkonu
í nýja skólanum sínum sem heitir
Miranda, hún lítur út fyrir að vera
16 ára og er hún miklu þroskaðari
en Sylvie.
Sylvie vill að Karl sé kærastinn
hennar en hann sýnir henni engan
áhuga. Allt sem Sylvie vill er að Karl
kyssi hana en hann gerir það ekki.
Þetta er bráðskemmtileg bók og mæli
ég hiklaust með henni. Hún fær fjórar
stjörnur. Harpa Mjöll Reynisdóttir, 14 ára
Hver er tilgangurinn með því að
gefa út ríflega 220 blaðsíðna viðtal
við mann sem skrifaðar hafa ver-
ið tvær bækur um, gerð nýleg heim-
ildamynd um og er sennilega í ítar-
legu og opinskáu viðtali í einhverju
af dagblöðum eða tímaritum lands-
ins á eins til tveggja ára fresti? Þá eru
ónefnd þau viðtöl sem tekin eru við
hann í ljósvakamiðlum, pistlarnir
sem hann skrifar reglulega á vefn-
um og fréttirnar sem unnar eru upp
úr viðtölunum og pistlum hans. Lát-
um vera að hann stjórni vikulegum
útvarpsþætti, enda á hann að heita
spyrillinn þar.
Árni Árnason, skrásetjari bókar-
innar Bubbi – Samtalsbók sem kom
út á dögunum og er gefin út af um-
boðsskrifstofu Bubba Morthens,
kveðst i inngangi bókarinnar hafa
fengið þá „grillu í höfuðið“ síðastlið-
ið sumar að gera samtalsbók eftir að
hafa lokið lestri einnar slíkrar. Hon-
um fannst formið skemmtilegt, til-
gerðarlaust og heiðarlegt (bls. 8). Og
þá kom að því að velja viðfang; eftir
vangaveltur og samræður við betri
helminginn varð Bubbi fyrir valinu.
Árni segir að vissulega hafi þjóð-
in heyrt mikið í tónlistarmanninum
kunna síðustu misserin, hann get-
ur bókanna tveggja, heimildamynd-
arinnar og vandlegrar umfjöllunar
fjölmiðla um líf og starf viðmæland-
ans og feimnisleysi hans við að tjá
sig – en samt er slag látið standa. Því
„... það merkilega er að þrátt fyrir
það eru afar fáir sem þekkja persón-
una Bubba Morthens. Við þekkjum
veiðimanninn, tónlistarmanninn og
pistlahöfundinn en hver er Bubbi
Morthens í raun og veru? Það er
spurningin sem þessi bók reynir að
svara,“ (8) segir í inngangi.
Á síðasta ári kom út samtals-
bók við tónlistarmanninn Magnús
Eiríksson. Flestir sem fylgst hafa,
þó ekki nema að litlu leyti, með
umfjöllun um íslenska tónlist og
tónlistarmenn síðustu ár og ára-
tugi geta sammælst um að tölu-
vert minna sé vitað um Magnús
en Bubba Morth ens. Sá fyrrtaldi er
hlédrægur, jafnvel dulur, og líklega
var ýmislegt af því sem hann sagði
frá um feril sinn og einkalíf í áður-
nefndri bók á vitorði fárra, ef nokk-
urra. Að því leyti var viss fengur að
þeirri samtalsbók, þrátt fyrir að hún
væri þessi „beint af bandinu-bók“ –
bara spurt og svarað.
En þegar Bubbi Morthens er
annars vegar þarf að bjóða upp á eitt-
hvað meira en spjall um áhrifavalda
og fyrirmyndir, ástina og Kjósina, Egó
og laxveiði, pólitík og stöðu krónunn-
ar. Bubbi hefur lifað áhugaverðu lífi á
margan hátt og mér hefur skilist á flest-
um tónlistarspekúlöntum landsins að
spor hans í íslenskri tónlistarsögu síð-
ustu áratuga séu býsna djúp. En hvar
er viðbótin sem kallar á heila bók á
þessum tímapunkti? Auðvitað snerta
þeir Árni á mun fleiri málum en talin
voru upp, en ekkert sem er til þess fall-
ið að sýna fram á hver maðurinn er „í
raun og veru“, eins og lagt er upp með.
Tilraunir til þess að varpa skýrara ljósi
á Bubba í tengslum við móður, föður
og bræður verða vafalítið hálf hjákát-
legar í augum þeirra lesenda sem lásu
stórgóða ævisögu Silju Aðalsteinsdótt-
ur um Bubba sem kom út fyrir tuttugu
árum. Raunar vísar Bubbi í þá bók
þegar Árni spyr hvort hann muni hve-
nær hann varð fyrst ástfanginn. Bætir
þó við að það hafi verið ást sem hann
fékk á kennara sínum, en lætur svo
þar við sitja (34). Árni fær prik fyrir að
klippa þessa spurningu og snubbótt
svarið ekki út úr viðtalinu, þótt hann
líti ekki sérlega vel út á því augnabliki.
Aftur á móti spyr hann stundum um
eitthvað sem Bubbi sagði beint eða
óbeint skömmu áður sem ekki er til
þess fallið að skapa gott flæði í sam-
talinu. Meðal annars að þessu leyti ber
textinn þess merki að hafa verið unn-
inn af töluverðri fljótfærni.
Af bókinni má ráða að Árni er
mikill aðdáandi Bubba Morthens.
Þekking á ferli tónlistarmannsins er
auðvitað nauðsynleg fyrir svona bók-
arskrif, og er annar af tveimur ljós-
um punktum við bókina, en aðdáun-
in er líka dragbítur á samtalinu. Það
verður all leiðinlegt til lengdar að
hlusta á spyrilinn segja að eitthvað
sem viðmælandinn hefur gert sé
svo ofboðslega flott og gott eða gefa
til kynna að hann sé honum sam-
mála um þetta eða hitt. Ef Árni hefði
nýtt sér þekkingu á tónlist og textum
Bubba til þess að bródera við samtal-
ið sjálft, gefið einhvers konar grein-
ingu sinni og sýn á höfundarverk
tónlistarmannsins rými samhliða
spjalli við hann og sett það í samhengi
við mann og samtíma, hefði afrakst-
urinn verið burðugri. Örlítið meiri
sviðsetning og lýsing á fasi viðmæl-
andans meðan samtölin fara fram
hefði þar fyrir utan gefið lesandan-
um meiri tilfinningu fyrir því að hann
væri staddur í Kjósinni með spyrli og
viðmælanda hans. Það er ekki ver-
ið að biðja um stílbrögð í þeim mæli
sem Matthías Johannessen viðhafði í
sínum viðtölum og samtalsbókum, en
meiri for- og eftirvinna hefði kryddað
þessa annars bragðdaufu samtalsbók
sem fyrir vikið bragðast eins og marg-
tuggin tugga af færibandi.
Kristján Hrafn Guðmundsson
22 8. desember 2010 miðvikudagur
Samtal
Bragðdauf færi-
bandstugga
Bubbi -
Samtalsbók
Árni Árnason og
Bubbi Morthens
Útgefandi: Prime
umboðsskrifstofa.
208 blaðsíður
Bubbi – Samtalsbók Örlítið meiri sviðsetning og lýsing á fasi viðmælandans hefði
gefið bókinni aukið gildi. mynd Þórhallur JónSSon
Bókin fjallar um unglingsstrákinn
Jóel sem lenti í svakalegum lífs-
háska. Þremur mánuðum síðar er
Jóel næstum því búin að jafna sig
á átökunum þegar vinahópurinn
ákveður að fara í sumarhús á Snæ-
fellsnesi. Lína, Tommi, Fannar, Ást-
hildur, Hildurgunnur og Jóel fara í
gula sumarhúsið en einn úr vina-
hópnum, Sölvi, fer ekki með vegna
þess að móðir hans á afmæli um
sömu helgi. Ferðin byrjar vel og eru
þau öll spennt fyrir helginni en þau
vita ekki hvað er í vændum. Helgin
endar með því að þessi ferð verður
líklega versta martröð þeirra allra.
Þokan er rosalega spennandi.
Maður gat varla litið upp úr bókinni
á meðan lestri stóð. Mér fannst sag-
an mjög raunveruleg og ég gat alveg
séð fyrir mér allt sem var að gerast.
Ég væri alveg til í að lesa fleiri bæk-
ur um Jóel og vini hans. Þetta er ein
besta bók sem ég hef lesið.
Ég gef Þokunni fjórar stjörnur.
María Gústavsdóttir, 14 ára.
Skáldsaga
Skáldsaga
Þokan
Þorgrímur Þráinsson
Útgefandi: Forlagið.
228 blaðsíður
koss
Jacqueline Wilson
Þýðing: Halla
Sverrisdóttir.
Útgefandi: JPV.
299 blaðsíður
Martröð á Snæfellsnesi Skemmtilegur koss
Þorgrímur Þráinsson
Jacqueline Wilson
Svona á að ...
Er bók fyrir þá sem allt vilja kunna.
Þar eru leiðbeiningar um hvernig
á að skera ávexti, búa til kokteila,
sauma út, setja upp dimmer, spila á
sög, hrekja burt hákarl og svo fram-
vegis. Ráðin eru 500 talsins og marg-
vísleg en þeim er skipt niður í eftir-
farandi flokka; hlutir, matur, drykkir,
útlit, ást, heimili, vöxtur, vellíðan,
ferðir, bjargráð og fjör. Nánast eng-
inn texti er í bókinni heldur eru ráð-
in sett fram á myndrænan hátt, þar
sem sýnt er skref fyrir skref hvernig
þú átt að gera hlutina.
Höfundarnir Derek Fagerstrom
og Lauren Smith hafa lengi sankað
að sér misgagnlegri þekkingu um
allt milli himins og jarðar og reka
litla búð þar sem þau hvetja fólk til
þess að prófa sig áfram.
Tilvitnanabókin
og kjarni málsins
Eru fyrir þá sem vilja slá um sig með
því að vitna í meistarana. Líka fyrir
þá sem vilja kynnast lifandi og frjórri
hugsun einstaklinga sem segja í
stuttu máli það sem svo margir
hefðu viljað segja en koma ekki orð-
um að. Tilvitnanabókin inniheldur
á fimmta þúsund tilvitnanir víða að
úr heiminum sem eru sóttar til sam-
tíðarmanna jafnt sem forngrikkja.
Kolbrún Bergþórsdóttir tók saman.
Kjarni málsins er einnig veglegt
verk á 992 síðum. Tilvalin bók fyrir
þá sem vilja fræðast um skamma-
kvæði, uppnefni, sögulegar yfirsjón-
ir, móðganir, meinfyndin tilsvör og
launfyndnar mannlýsingar. Hannes
Hólmsteinn Gissurarson tók saman.
Spilabókin
Er fyrir gosana og drottningarnar
sem vilja eyða dýrmætum tíma sín-
um heima og eiga notalega kvöld-
stund saman með spil í hönd. Spila-
bókin kom fyrst út árið 1989 og hefur
lengi verið ófáanleg. Hún er eins
konar kennslubók í spilamennsku.
Fjallað er um 68 spil og ýmis af-
brigði, allt frá einföldustu barnaspil-
um til flóknustu spila. Hún er tilvalin
til að tengja ungna og aldna.
Bækur
fyrir fróð-
leiksfúsa