Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Síða 35
Á vormánuðum
2004 sagði Davíð
Oddsson, þáver-
andi forsætisráð-
herra, Ólafi Ragn-
ari Grímssyni,
forseta Íslands,
stríð á hendur.
Um þetta leyti
hafði Davíð verið
forsætisráðherra
í 13 ár. Hann var
orðinn yfirgangs-
samur og einráð-
ur eins og verða vill með þá sem sitja
lengi á valdastóli, vanastir því að fara
sínu fram í stóru og smáu.
Tilefni stríðsins var að Davíð vildi
koma fjölmiðlalögum yfir Baugs-
menn og hafði hugboð um að forset-
inn kynni í fyrsta skipti í sögu lýðveld-
isins að beita málskotsrétti til þess að
knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um
þau lög sem Davíð var í þann veginn
koma í gegn um þingið með einræð-
istilburðum.
Þann 17. maí þetta ár ritaði Dav-
íð opnugrein í Morgunblaðið og fann
mögulegu synjunarvaldi forsetans allt
til foráttu. Þessu fylgdi hann eftir með
því að biðja bílstjóra sinn um að skutla
sér suður til Bessastaða þennan sama
mánudagsmorgun og hitta manninn,
sem setið hefur meira en 14 ár á for-
setastóli.
Það var þá
Hvað Davíð og Ólafi Ragnari fór á milli
veit enginn, en eftirfarandi hefði þjóð-
in með miklum líkindum heyrt ef hún
hefði verið fluga á vegg:
Davíð: Sæll.
Ólafur Ragnar: Blessaður.
Davíð: Vorveður á þjóðhátíðardegi
Norðmanna.
Ólafur Ragnar: Já, þetta er ekki sem
verst.
Davíð: Ertu búinn að lesa Moggann?
Ólafur Ragnar: Já.
Davíð: Og...?
Ólafur Ragnar: Hvert mannsbarn skil-
ur 26. grein stjórnarskrárinnar um
málskotsrétt minn hvað svo sem líður
11. til 13. grein hennar um ábyrgðar-
leysi mitt og að ég geti ekkert aðhafst
nema með leyfi ráðherra. Þetta er því
óvissuatriði. Ertu nokkuð á móti þjóð-
aratkvæðagreiðslum Davíð?
Davíð: Nei, en það þarf að fara að lög-
um.
Ólafur Ragnar: Synjunarákvæðið er
skýrt. Svo er þetta fjölmiðlafrumvarp
þitt afar umdeilt.
Davíð: Þú veist að þessir Baugsmenn
verða komnir bak við lás og slá fyrr en
nokkurn grunar.
Ólafur Ragnar: Nú þykir mér bera
nýrra við þegar forsætisráðherrann
kemur á minn fund og segist vita
fyrirfram um niðurstöðu
dómstólanna.
Davíð kveður.
Samherjarnir Ólafur
og Davíð
Þetta vorið reyndi Dav-
íð einnig að halda Ólafi
Ragnari í spennitreyju
með því að hafa
í hótunum um
að fjölmiðla-
lögin yrðu
undirrituð af
handhöfum
forsetavalds-
ins í einhverri
af utanlands-
ferðum hans.
Þetta varð
meðal ann-
ars til þess að Ólafur Ragnar missti af
konunglegu brúðkaupi í Danmörku
og hraðaði heimför frá Mexíkó. Ekki
ætlaði hann fyrir nokkurn mun að láta
Davíð snúa á sig.
Engin urðu fjölmiðlalögin árið
2004, ekki heldur þjóðaratkvæða-
greiðsla eins og menn muna.
Nú bregður svo við að Davíð og
Ólafur Ragnar eru orðnir skoðana-
bræður framsóknarformannsins og
Indefence-hópsins gegn samning-
um um Icesave og hafa í hótunum
við ríkisstjórnina. Davíð blessar Ólaf
Ragnar í leiðurum fyrir að hafa skot-
ið málinu í dóm þjóðarinnar snemma
árs. Því lengur sem Icesave tefjist því
betra. Kinnroðalaust fullyrðir fíllinn í
glervörubúðinni þetta, sá hinn sami
og bakaði þjóðinni meira tjón með
falli Seðlabankans en
Icesave-málið getur
nokkru sinni gert.
Ólafur Ragnar
forseti talar við þjóð-
ina í gegnum
erlenda fjöl-
miðla og hótar
rík-
isstjórninni að synja Icesave-samn-
ingi staðfestingar eins oft og honum
þóknast verði Jóhanna og Steingrímur
með einhvern derring.
Í rauninni er forsetinn meiri Þránd-
ur í Götu ríkisstjórnarinnar en stjórn-
arandstaðan, Indefence og framsókn-
arforinginn samanlagt.
Þaulsætnir dragbítar
Spurningin er þess vegna sú, hvort
ríkisstjórnin, sem sækir vald sitt til
meirihluta þingsins, þurfi ekki að sýna
forsetanum tennurnar í þessu máli.
Jafnvel þyrfti ríkisstjórnin að fylgja
forsetanum eftir á erlendri grundu og
vísa kerfisbundið á bug því sem hann
heldur þar fram í fjölmiðlum. Hann
má vera á móti ESB aðild, á móti Ic-
esave-samningnum og á móti AGS
rétt eins og Davíð og Heimssýn, en
hann hefur ekki umboð til þess að
skruma með skoðanir sínar um all-
ar jarðir í nafni þjóðarinnar í von um
að ná forsetakjöri fjögur ár enn. Það
er óvenjulegt ábyrgðarleysi af forset-
anum að stofna til stjórnkerfisdeilna
meðan stjórnlagaþing fjallar um stöðu
hans.
Hvernig væri að ríkis-
stjórnin sýndi nú mynd-
ugleik og biði átekta eftir
að útþrá forsetans næði
yfirhöndinni. Rétt á með-
an Ólafur Ragnar brygði
sér til útlanda gæti rík-
isstjórnin beðið hand-
hafa forsetavalds að
skrifa undir nýjan
Icesave-samning og
haldið endurreisninni
áfram.
Kannski ætti ríkis-
stjórnin að bjóða forsetan-
um til útlanda. Af því gæti hlotist
sparnaður.
Sævar Daníel KolanDavelu,
betur þekktur sem rapparinn Poetrix,
er ritstjóri nýa jaðartímaritsins Click.
Engir ritstjóra-
draumar
1 Helga Sigríður vakin og lauS við öndunarvélina
Helga Sigríður dvelur á sjúkrahúsi
í Svíþjóð eftir að hafa veikst
skyndilega.
2 „Það yrði ekki Sama nánd“Tillögur menntaráðs um samrekstur
leik- og grunnskóla fara ekki vel í
leikskólastjóra.
3 Fjallamaður með HeimSmetÍslenskur fjallgöngumaður stefnir á
að ganga á sinn 365. tind á þessu ári
um næstu helgi.
4 íSlenSkt Fyrirtæki HlíFir WikileakS
Fyrirtækið Datacell tekur ekki
þátt í því að loka á öll viðskipti við
Wikileaks.
5 Seðlabankinn Segir upp öllum öryggiSvörðum
Allir öryggisverðir Seðlabanka
Íslands fengu uppsagnarbréf.
Securitas tekur við í gæslu.
6 SænSkur maður Skotinn aF veiðimanni
Sjötugur sænskur maður lést um
helgina.
7 abramovicH FjárFeStir Fyrir Hm Eigandi Chelsea í fjárfestahóp fyrir
HM 2018.
mest lesið á DV.is myndin
Hver er maðurinn? „Sævar Daníel
Kolandavelu, ritstjóri Click-jaðartíma-
ritsins, rapparinn Poetrix og sjö aðrir
persónuleikar sem eru ekki prenthæfir.“
Hvað heldur þér gangandi?
„Áskoranir, fallegar konur, sígarettur og
óbilandi trú á minni eigin getu sem er
alveg úr takt við raunveruleikann.“
Hvað ertu að fást við þessa dagana?
„Click er að halda tónleika ásamt Inforce
event á Broadway með Game, við erum
að klára það gigg. Svo var ég að stofna
nýja hljómsveit, Peotrix og ofurhetjurnar,
sem við erum að keyra í gang nú um
áramótin. Svo er það bara að koma Click
batteríinu alveg af stað.“
Hverjir standa með þér að Click?
„Siggeir Magnússon og þúsundir
annarra jaðaráhugamanna.“
Fjármagnarðu verkefnið sjálfur?
„Ekki úr eigin vasa, nei ég geri það ekki.“
er draumurinn að vera ritstjóri?
„Nei.“
Hver er þá draumurinn? „Basically að
lifa óttalaus öllum stundum. Drauma-
starf og draumastaður eru náttúrulega
ekkert raunverulegt. Það er bara það
sem býr innra með þér. Allt hitt bara
kemur og fer eins og því sýnist. Ytri
raunveruleikinn virðist oftast haldast í
takt við það sem er að gerast innra með
þér. Ef að markmiðið er að vera það sem
þú vilt vera mun restin fylgja í kjölfari,
mér er alveg sama hvað það er, ég veit
að það er eitthvað sem mér líkar. Hjartað
dregur mann á réttu staðina.“
Hvernig er venjulegur dagur
hjá þér? „Vakna klukkan tíu, alltof
þreyttur eftir að hafa farið of seint að
sofa. Sígaretta og kaffibolli og svo
legg ég bara af stað við að halda Click
batteríinu gangandi og að reyna að
halda hljómsveitinni minni gangandi.
Loka Facebook-chöttum við stelpur
sem eru að trufla. Eyði svona mestum
tíma á skrifstofu Click. Ég verð samt
ekki virkilega pródöktívur fyrr en fjögur
þannig að þá byrja ég á að gera það sem
ég ætlaði að gera yfir daginn og er að því
langt fram á nótt. Kíki oft út á vinum eða
fæ skemmtilegar heimsóknir. Ég reyni að
vera sósíal.“
maður dagsins
„Það leggst einstaklega vel í mig.“
Guðrún eiríKSDÓttir
29 ÁrA LæKNANEMI
„Bara vel.“
SiGrún GuðmunDSDÓttir
43 ÁrA BANKASTArFSMAður
„Alveg prýðilega.“
Búi ÖrlyGSSon
34 ÁrA BANKAMAður
„Mjög vel, þetta er skemmtilegur
árstími.“
HallDÓra JÓnSDÓttir
53 ÁrA orðABóKArrITSTjórI
„Mér finnst ekkert spes hvað það er
dimmt.“
DaviDaS leSKiS
19 ÁrA BArÞjóNN
Hvernig leggSt Skammdegið í Þig?
dómstóll götunnar
miðvikudagur 8. desember 2010 umræða 35
Þaulsætnir fjandvinir
jóhann
hauksson
blaðamaður skrifar
kjallari
Hefur sig á loft Danska varðskipið Vædderen í reykjavíkurhöfn. Björgunarþyrla danska varðskipsins hefur sig á loft að loknum
áhafnaskiptum í skipinu. mynD SiGtryGGur ari JÓHannSSon
m
yn
D
m
a
ri
n
o
t
H
o
rl
a
Ci
u
S