Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Síða 40
Nýtt NafN á KeflavíKurvöll-
iNN Keflvíkingar munu ekki leika á Sparisjóðsvellinum í
Pepsi- deildum karla og kvenna næsta sumar. Þó verður leikið
á sama stað en völlurinn hefur fengið nýjan kostanda og því
nýtt nafn. Mun Keflavík því leika á Nettó-vellinum næstu þrjú
sumur og Nettó verður einn allra stærsti styrktaraðili knatt-
spyrnunnar í Keflavík. Samningur Nettó við Keflavík þýðir að
meistaraflokkur karla mun einnig leika með merki Nettó á
baki búninga sinna.
ÞorsteiNN eKKi til vejle Framherjinn
ungi úr Ólafsvík, Þorsteinn Már Ragnarsson, mun ekki ganga í
raðir danska 1. deildarliðsins Vejle að svo stöddu en hann hefur
eytt miklum tíma á reynslu hjá liðinu undanfarnar vikur og mán-
uði. Þetta kom fram á fótbolti.net en í viðtali við síðuna segir
þjálfari Velje: „Við tókum ákvörðun í samráði við Þorstein að að-
hafast ekkert í málinu að sinni.“ Þorsteinn verður því væntanlega
áfram í röðum Víkings úr Ólafsvík sem vann 2. deildina án þess að
tapa leik í sumar.
Molar
ArsenAl á eftir
unglingi
n Arsenal sem trónir á toppi ensku
úrvalsdeildarinnar í fótbolta er á
eftir sautján ára pilti sem leikur
með Southamp-
ton, Alex Oxl-
ade-Chamberl-
ain að nafni.
Pilturinn hefur
verið magnaður
með Southamp-
ton á tímabilinu
en Theo Walcott
kom einmitt frá
Southampton á sínum tíma. Þetta
kemur fram í breskum miðlum
sem halda því einnig fram að tími
Manuels Almunia, markvarðar
Arsenal, sé liðinn hjá félaginu. Er
talið að hann muni skipta til Atlet-
ico Madrid í janúar fyrir 1.5 millj-
ónir punda.
gAmlir fjendur
slást á bílAstæði
n Þessa dagana eigast við krikk-
etlið Englands og Ástralíu í hinni
árlegu Ashes-keppni. England
náði 1–0 forystu
í þessari heill-
öngu rimmu á
mánudaginn og
fögnuðu menn
því með stífri
bjórdrykkju.
Allt fór tiltölu-
lega vel fram
þar til tvær
gamlar hetjur, Sir Ian Botham
frá Englandi og Ian Chappell,
mættust á bílastæðinu fyrir utan
barinn þar sem England var að
fagna. Fyrir 33 árum slógust þess-
ir herramenn á bílastæði fyrir
utan bar á Englandi og létu þeir
gömlu hnefana fljúga í þetta skipt-
ið líka en þeim var þó fljótt stíað í
sundur.
ber í hAnn vitið
n Risinn Wladimir Klitschko lofar
því að berja smávit í Dereck Chis-
ora þegar þeir félagarnir berjast
um heimsmeistaratitil í þungavigt
á laugardaginn.
Chisora fékk
nýlega skilorðs-
bundinn fang-
elsisdóm fyrir
að tuska fyrr-
verandi kær-
ustu sína til eftir
blaðamanna-
fund á mánu-
daginn. „Ég lem ekki konur eins
og hann. Þeir sem berja konur eru
aumingjar. Menn eiga að stunda
hnefaleika inni í hringnum. Chis-
ora er ömurleg manneskja sem ég
ætla að berja smá vit í á laugar-
daginn,“ segir Klitschko.
fifA breytir engu
n Það sýður enn á Englending-
um og fleirum eftir að tilkynnt
var hvaða þjóðir fá að halda HM í
fótbolta 2018 og 2022. Hafa margir
kallað eftir því
að kosninga-
kerfinu verði
breytt en í dag
er 24 manna
nefnd sem ræð-
ur því hvar HM
er haldið. Hef-
ur mútuþægni
verið sönnuð
á nokkra meðlimi nefndarinnar
en framkvæmdastjóri FIFA, Jer-
ome Valcke, segir að engu verði
breytt. „Þetta er pólit ísk ákvörðun
en heilt yfir held ég að fólk sé al-
mennt ánægt með hvar HM verði
haldið í næstu þrjú skipti,“ segir
Valcke.
40 sport uMSjÓN: tóMAS þóR þóRðARSOn tomas@dv.is 8. desember 2010 miðvikudagur
Íslenska karlalandsliðið í handbolta
tapaði gegn því sænska, 31–26, í
heimsbikarnum, fjögurra landa æf-
ingamóti þar sem sterkustu Norður-
landaþjóðirnar eigast við. Fyrr um
daginn hafði Danmörk lagt Noreg
að velli og mætir íslenska liðið því
Noregi í leiknum um þriðja sætið. Í
íslenska liðið vantar nokkra sterka
leikmenn, þar á meðal báða aðal-
markverðina og Ólaf Stefánsson svo
dæmi séu tekin. Það sama má segja
um hin liðin að Dönum undanskild-
um sem eru nánast með sitt sterk-
asta lið.
Ísland lék vel framan af gegn
Svíum en heimamenn nýttu sér afar
dapra markvörslu íslenska liðsins og
tóku fyrst forystuna í stöðunni 7–6.
Munurinn jókst og í hálfleik var hann
orðinn fimm mörk, 19–14. Svo fór að
Svíar höfðu sigur, 31–26, og var sigur-
inn aldrei í hættu.
Tveir ungir leikmenn, skyttan Sig-
urbergur Sveinsson og vinstri horna-
maðurinn Oddur Grétarsson, fóru
á kostum fyrir Ísland. Sigurbergur
skoraði sex mörk og hélt Íslandi lengi
vel á floti í seinni hálfleik. Að sama
skapi var Oddur magnaður í fyrri
hálfleik þar sem hann skoraði fimm
mörk. Sýni Oddur slíka frammistöðu
áfram verður erfitt fyrir Guðmund að
líta fram hjá honum þegar kemur að
því að velja lokahópinn fyrir HM þar
sem vinstri hornastaðan er í miklu
uppnámi.
Ísland tapaði gegn Svíum í heimsbikarnum, 31–26:
svíar höfðu betur á heimavelli
Ísland - Svíþjóð 26 - 31
MöRK ÍSlAnDS
Sigurbergur Sveinsson 6, Oddur
Grétarsson 5, Aron Pálmarsson 5,
Alexander Petersson 4, Ásgeir Örn
Hallgrímsson 3, Róbert Gunnarsson
1, Ingimundur Ingimundarson 1,
Arnór Atlason 1.
VARIn SKOt
Sveinbjörn Pétursson 8, Birkir Ívar
Guðmundsson 2.
heimsbikArinn Að spila sig inn í lokahópinn
Oddur Grétarsson var frábær gegn
Svíum og á eflaust góða möguleika
á að komast í landsliðshópinn á HM.
MynD EggERt JóhAnnESSOn
Vonir stelpnanna okkar í íslenska
kvennalandsliðinu í handbolta um að
komast í milliriðla á EM í Danmörku
og Noregi dvínuðu gríðarlega í gær
þegar liðið tapaði fyrsta leik sínum á
mótinu, 35–25, fyrir sterku liði Króatíu.
Ísland skoraði fyrsta mark leiksins en
það var í fyrsta og eina skiptið sem Ís-
land leiddi í leiknum. Sóknarmistökin
sliguðu íslenska liðið í fyrri hálfleik en
þau nýtti króatíska liðið sér vel og rað-
aði inn mörkum úr hraðaupphlaup-
um. Vörnin var engan veginn að finna
sig gegn stórskyttum Króatíu sem
skoruðu nánast að vild og því var mar-
kvarslan lítil. Telja verður afar ólíklegt
að Ísland vinni annan af næstu tveim-
ur leikjum og komist þannig kannski
í milliriðlana sem voru útgefin mark-
mið liðsins fyrir mótið.
Sóknarmistökin allsráðandi
Karen Knútsdóttir skoraði fyrsta mark
Íslands gegn Króatíu og þar með fyrsta
markið sem íslenskt kvennalands-
lið skorar í lokakeppni stórmóts. Það
var þó skammgóður vermir því Kró-
atar skoruðu næstu fimm mörk og
breyttu stöðunni í 1–5. Við það virtust
stelpurnar vakna aftur, róuðu sig að-
eins í sókninni og skoruðu næstu tvö
mörk. En þá fóru sóknarmistökin aft-
ur að gera vart við sig á endanum voru
Króatar komnir með sjö marka forystu
í hálfleik, 19–12.
Stelpurnar virtust oft yfirspennt-
ar, sérstaklega í byrjun leiks, og þær
misstu boltann afar klaufalega. Há-
punktur vitleysisgangsins í sókninni
var þegar Rakel Dögg Bragadóttir lét
einfaldlega taka boltann úr höndun-
um á sér þegar hún réðst að vörn Kró-
ata en einhvern veginn gleymdi að
fiska aukakast. Varnarleikurinn var
líka arfaslakur nær allan leikinn sem
gerði markvörðunum, Berglindi Írisi
og Írisi Björk, enga greiða. Að skora
tuttugu og fimm mörk gegn sterku liði
Króata mun seint þykja slakur árangur
en að fá þrjátíu og fimm á sig er ekki
boðlegt.
Frábær innkoma þorgerðar
Það má þó segja stelpunum það til
hróss að þær gáfust aldrei upp. Leik-
urinn var löngu tapaður áður en loka-
flautið gall en nær allan tímann brostu
þær og fögnuðu hverju marki eins
og það væri þeirra síðasta. Þær eru
greinilega mættar á EM til að njóta
stundarinnar en því miður voru þær
einfaldlega númeri of litlar í gær. Bar-
áttan var mikil og viljinn allsráðandi
en getustigið ekki meira og mistökin
mörg.
Karen Knútsdóttir var frábær fyr-
ir íslenska liðið en hún stýrði sóknar-
leiknum af miklum myndarskap. Þá
var Anna Úrsúla einnig öflug inni á
línunni en hún skoraði fjögur mörk og
fiskaði þrjú víti. Innkoma hinnar átján
ára gömlu Þorgerðar Önnu Atladóttur
var einnig mjög ánægjuleg en hún
kom inn í leikinn eins og stormsveip-
ur í seinni hálfleik og skoraði fjögur
mörk. Svo sannarlega gríðarlegt efni
eins og handboltaunnendur vita. Þor-
gerður er dóttir Atla Hilmarssonar,
fyrrverandi skyttu íslenska landsliðs-
ins og núverandi þjálfarar Akureyrar í
N1-deildinni.
Næsti leikur Íslands er á fimmtu-
daginn gegn Svartfjallalandi sem er
talið sterkari mótherji en Króatía.
Stelpurnar geta lítið annað gert en gef-
ið allt í þann leik sem og lokaleikinn
gegn Rússum en ljóst er að nú verður
á brattann að sækja.
Ísland tapaði fyrsta leik sínum á EM kvenna með tíu marka mun gegn Króatíu, 35–25.
Fjöldi sóknarmistaka gerði króatísku konunum auðvelt að ná góðu forskoti sem þær
létu aldrei af hendi. Króatía var fyrir mótið talið næstslakasta liðið í riðlinum á eftir
Íslandi og því verður á brattann að sækja fyrir íslenska liðið ætli það sér í milliriðla.
stelpurnAr
skotnAr í kAf
Ísland - Króatía 25 - 35
MöRK ÍSlAnDS
Hanna Guðrún Stefánsdóttir 6, Anna
Úrsúla Guðmundsdóttir 4, Þorgerður
Anna Atladóttir 4, Karen Knútsdóttir
3, Rakel Dögg Bragadóttir 2, Ásta
Birna Gunnarsdóttir 2, Rut Arnfjörð
jónsdóttir 1, Hrafnhildur Skúladóttir
1 ,Harpa Sif Eyjólfsdóttir 1, Arna Sif
Pálsdóttir 1.
VARIn SKOt
Berglind Íris Hansdóttir 5, Íris Björk
Símonardóttir 5.
em kvennA
tóMAS þóR þóRðARSOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
gekk ekki upp Stelpurnar þurftu
að vinna leikinn gegn Króatíu en
það var aldrei möguleiki.