Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Síða 42
Jójó í útrás
42 fólkið 8. desember 2010 miðvikudagur
rakel árnadóttir:
Brast í grát
Sara María Júlíudóttir, eigandi
verslunarinnar Forynju á Laugavegi,
þrykkir hjörtu á boli sem hún selur
til styrktar Helgu Sigríðar Sigurð-
ardóttur sem flutt var með hraði til
Gautaborgar eftir að hún fékk veiktist
hastarlega í sundtíma. Á mánudag
var Helga Sigríður vakin og tekin úr
öndunarvél og allar líkur eru á því
að hún komi heim til Íslands á næstu
dögum. Meðferðin felur í sér mikinn
kostnaðarauka fyrir fjölskyldu Helgu
Sigríðar og því fannst Söru Maríu
tilvalið að safna fé fyrir hana með
þessum hætti. Móðirbróðir Helgu
mætti til Söru og keypti nokkra boli.
„Ég hreinlega brast í grát þegar hann
kom hingað til mín,“ segir Sara María.
Bolirnir þykja afar fallegir og fyrir þá
sem vilja eignast einn slíkan þá er
verðið 4.000 krónur.
Bakar fyrir
bágstadda
Hrefna Sætran er landskunnur
matgæðingur með hjartað á réttum
stað en á sunnudaginn stóð hún í
stórtækum bakstri fyrir verkefnið:
Hjálp fyrir Fjölskylduhjálp. „Ég bakaði
sjálf heima tvær sortir: engifer-chili
piparkökur og súkkulaði kasjúhnetu-
kökur,“ segir Hrefna. Ég fékk svo að-
stoð félaga minna á veitingastaðnum
mínum við að baka fleiri kökur og þá
gerðumst við stórtæk. Við bökuðum
kókos-kornflekstoppa og súkkulaði
núggatkökur og fylltum fjórar 10
lítra fötur sem við síðan afhentum
Fjölskylduhjálp. „Okkur fannst þetta
ferlega gaman og þetta kom okkur í
rétta jólaskapið. Ég hef áður bakað til
góðs og hef í raun afar gaman að því
en í fyrra þá bakaði ég smákökur fyrir
barnadeild Hringsins.
Íslenski götulistamaðurinn Jójó,
sem margir þekkja úr Austurstræt-
inu, er staddur í Austurríki um
þessar mundir. „Ég gaf hjálparsam-
tökum hérna þrjú lög og svo hjálp-
aði ég félaga mínum að taka upp
plötu,“ segir JóJó í samtali við DV en
Jójó hefur skemmt fólki í miðbæn-
um um áraraðir. Hann hefur jafnan
leikið tónlist sína fyrir framan Ey-
mundsson í Austurstræti og gætt
miðbæinn lífi.
„Ég spilaði líka á stórum mark-
aði hérna í bænum og svo vilja þeir
fá mig á flottasta hótelið hérna,
Alpine Palace,“ segir Jójó sem geng-
ur allt í haginn ytra. Svo vel reynd-
ar að Jójó er ekki viss um hvenær
hann snýr til baka til Íslands. „Ég
er búinn að vera að spila aðeins
á knæpunum og hótelunum fyr-
ir Austurríkismanninn,“ segir Jójó
sem segist vera löngu búinn að slá í
gegn þar í landi líkt og hér á Íslandi.
„Ég er í dúndrandi fjöri og þetta er
rosalega gott og sterkt fólk hérna í
Austurríki.“
Líkt og áður sagði hefur oft
myndast mikil stemning í kringum
kappann um helgar í Austurstræti
og komst það til dæmis í blöðin
árið 2008 þegar Eiríkur Hauksson,
Eurovison-fari, stoppaði hjá Jójó
og þeir sungu saman lagið River
eftir Bruce Springsteen. Sannkall-
að „Götuvision“ eins og Jójó kall-
aði það.
aðalsteinn@dv.is
Úr austurstræti til austurríkis:
Jójó Veit ekki hvenær
hann kemur aftur heim.
Rakel Árnadóttir fékk heilahimnubólgu þegar hún var 10 daga göm-ul sem leiddi til þess
að hún fékk heilalömum. Hún
er töluvert fötluð vegna veik-
indanna og þarf á umönnun að
halda. Rakel hefur um árabil haft
brennandi áhuga á Eurovision-
söngvakeppninni og er gangandi
orðabók um allt það sem viðkem-
ur henni. Hún gladdist því afar
mikið um daginn þegar hún fékk
að hitta einn eftirlætiskeppanda
sinn, Alexander Rybak, á tónleik-
um Björgvins Halldórssonar. „Ég á
mjög erfitt með að fara á tónleika
og fer ekki nema mig langi virki-
lega til þess að fara,“ segir Rakel.
„Ég keypti miðana á þessa tón-
leika um leið og þeir voru boðnir
til sölu og var síðan í sambandi við
tónleikarahaldara og bað um að fá
að hitta hann. Óskir mínar rættust
og hann var bæði hlýlegur og al-
mennilegur, þetta voru ekki nema
fimm til tíu mínútur en það var
nóg fyrir mig.“
Ósátt við Sylvíu Nótt
Rakel hefur horft á hverja ein-
ustu keppni síðan árið 1988 og á
sér nokkra uppáhaldsflytjendur.
„Carola, Johnny Logan eru ofarlega
hjá mér. Auk þeirra eru til að mynda
grísku flytjendurnir sem unnu árið
2005. En árið 2009 fannst mér líka
sérlega skemmtilegt því lag Noregs
í flutningi Alexanders Rybaks fang-
aði huga minn um leið. Það stóð
reyndar til að ég færi á keppnina
en vegna óviðráðanlegra aðstæðna
varð ekkert úr þeirri ferð.“
Þegar talið berst að því sem bet-
ur mætti fara í keppninni sem slíkri
segist Rakel ekki hafa getað tekið
eitt slakasta útspil Íslands, Sylvíu
Nótt, í sátt.
„Ég hefði getað tekið hana í sátt
ef leikkonan hefði komið fram í eig-
in persónu, afslöppuð og eðlileg á
blaðamannafundum fyrir keppn-
ina. Hún hefði þá fengið meiri virð-
ingu fyrir þennan gjörning. Annars
verðum við að ráðast gegn þessari
klíkumynd á keppninni sem ræður
of miklu um úrslit hennar.“
Fékk að hitta
Rakel Árnadóttir er með heilalömun
og kemst sjaldan á tónleika. Hún
hefur fylgst með Eurovision
af ákafa síðan hún var lítil
stúlka og er gangandi
orðabók um keppnina.
Alexander Rybak
er einn uppáhalds-
keppandi hennar og
hún varð því afar
glöð þegar hún fékk
að hitta goðið sitt á
tónleikum á Íslandi í
vikunni.
Alexander Rybak
Hlýr og almennilegur
Rakel og Alexander Rybak
hittust baksviðs eftir
tónleikana og fundurinn
gladdi Rakel mikið.