Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Qupperneq 6
6 | Fréttir 11. maí 2011 Miðvikudagur Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Gott í vorverkin Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum Black&Decker háþrýstidæla 110 bar 13.900 Hjólbörur 90L 4.490 Garðslanga 15 m með úðabyssu 890 Aratúngsfeðgar dæmdir: Skallaður og tekinn hálstaki Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á þriðjudag feðga, sem kenndir eru við Aratún, fyrir líkamsárás fyrir utan matvöruverslunina Fjarðar- kaup í Hafnarfirði. Faðirinn, Sigurð- ur Stefánsson, var ákærður fyrir að skalla mann í andlitið og svo í fram- haldinu ráðast á annan mann, slá hann í hnakkann og henda honum í jörðina. Sonur Sigurðar, Stefán Ágúst, var ákærður fyrir að taka fyrri manninn hálstaki og snúa hann nið- ur í jörðina. Sigurður var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Það sama á við um Stefán en í hans tilfelli var dómurinn 30 daga fangelsi. Þeir skulu einnig greiða all- an sakarkostnað og laun verjanda.  Í dóminum kemur fram að það vegi þungt að ekkert vitni hafi fyrir dóminum tekið undir orð feðganna. Þeir héldu því fram að fórnarlömbin hefðu veist að þeim með einhvers konar ofbeldi eða hótunum. „Ég hef ekkert við DV að tala. En þakka þér samt fyrir,“ sagði Sigurð- ur og skellti á þegar DV reyndi að fá viðbrögð hjá honum við dómi hér- aðsdóms. Vilhjálmur Vilhjálmsson, lögmaður feðganna, staðfesti í sam- tali við DV að málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar. Maðurinn sem Sigurður skall- aði samkvæmt dóminum var starfs- maður Fjarðarkaups og í vitnisburði hans kom fram að hann ætlaði að stöðva eiginkonu Sigurðar á leið út úr búðinni þar sem hann hefði séð hana stinga geisladiskum í veski sitt. Hann hefði svo verið skallaður af Sigurði þegar hann reyndi að ná tali af konunni. Hinn maðurinn varð vitni að atburðinum og reyndi að koma starfsmanninum til hjálpar. Eiginkona Sigurðar, Margrét Lilja Guðmundsdóttir, hefur stefnt blaða- manni DV, Jóni Bjarka Magnússyni, fyrir umfjöllun um sig í blaðinu í tengslum við nágrannadeilur sem fjölskyldan átti í. Þá hefur fjölskyld- an stefnt fimm einstaklingum ásamt DV ehf. vegna athugasemda sem einstaklingarnir létu falla við fréttir um þau á Facebook og vef DV.is. „Vinir mínir spyrja mig oft hvern- ig ég geti lifað á þessum launum. Það er erfitt en ég er búin að læra að passa peninga, en það má ekk- ert koma upp á, þá á ég ekki fyrir mat eða bleyjum handa börnunum mínum,“ segir Díana Skotsenko, sem er 29 ára. Díana er frá Eistlandi en hefur búið á Íslandi í ellefu ár og vinnur við heimaþjónustu hjá Reykjavík- urborg ásamt því að vera í skóla að læra að verða félagsliði. Hún á tvo stráka sem eru tæplega eins árs og þriggja ára. Hún hefur þurft að leita sér aðstoðar hjá hjálparstofnunum til að eiga mat fyrir sig og börnin sín þrátt fyrir að vinna fulla vinnu hjá borginni. 82 þúsund til að lifa á Díana er með um 170 þúsund krón- ur í laun á mánuði fyrir fullt starf og borgar um 95 þúsund krónur í húsa- leigu að frádregnum húsaleigubót- um. Leikskólapláss fyrir syni hennar tvo kostar um 40 þúsund. Hún fær borgað meðlag frá ríkinu, 47 þús- und krónur með mæðralaunum, og standa því eftir 82 þúsund krón- ur til að sjá henni og sonum hennar tveimur fyrir nauðsynjum. Hún tekur á móti blaðamanni á heimili sínu í Kópavogi þar sem myndir eftir strák- ana hennar tvo prýða veggi og gera heimilið notalegt. „Þetta er erfitt því allt er orðið svo dýrt. Það er margt sem maður getur ekki leyft sér. Ég er til dæmis með ónýta tönn sem kostar mikið að gera við og ég bara hef ekki efni á að fara til tannlæknis. Til að geta lifað á þessari upphæð má ekk- ert koma upp á. Ég á til dæmis gaml- an bíl sem ég þarf að nota í vinnunni og til að koma strákunum í leikskól- ann því hann er í öðru hverfi. Ég er alltaf stressuð yfir því að hann bili því ég hef ekki efni á að láta gera við hann.“ Díana hefur stundum þurft að reiða sig á hjálparstofnanir en seg- ir það ekki vera auðvelt. „Ég er að vinna allan daginn og það er allt- af svo löng röð eftir mat. Ég get ekki farið úr vinnunni til að bíða í marga klukkutíma í röð. Eins er ég einstæð með tvö börn og það má ekki fara með börn inn í húsið þar sem mat- urinn er afhentur. Þegar ég var í fæð- ingarorlofi með eldri strákinn var ég með 90 þúsund krónur á mánuði frá fæðingarorlofssjóði og þurfti þess vegna oft á aðstoð að halda. Eitt sinn var mér vísað frá vegna þess að ég var með barnið mitt með mér. Ég veit ekki hvernig einstæðar mæður með ung börn eiga að bera sig að. Ekki geymum við börnin úti á meðan. En það er gott að fara í Hjálparstofnun kirkjunnar. Þar hefur reglunum ver- ið breytt en þú máttir einu sinni bara fara þangað þrisvar á ári. Þar hef ég líka stundum getað fengið bleyjur sem munar mikið um.“ Reynir að leggja fyrir Þrátt fyrir að hafa lítið á milli hand- anna reynir hún að leggja fyrir eins og hún getur og segir að það hafi oft bjargað sér að eiga smá varasjóð. „Núna er ég að safna fyrir rúmi handa eldri stráknum mínum því hann á ekki rúm og sefur uppi í hjá mér. Ef ég get lagt smá fyrir á mánuði, þó það sé ekki nema þúsund krónur, þá geri ég það. Ég þarf að passa allt, því bara bleyjur handa strákunum kosta mikið og er eitthvað sem alltaf verður að vera til. Ég passa mig að láta það sem þá vantar alltaf í forgang og leyfi mér því sama sem ekki neitt. Ég vil að þeim líði vel, það skiptir mestu máli.“ Hún segir það oft vera erfitt að vera ein með tvö börn og hún geri lítið annað en að vinna. „Það væri gott að geta stundum fengið frí og gert eitt- hvað. Mér líður stundum eins og ég sé vinnumaskína. Vinnan mín get- ur verið krefjandi og ég sinni mörgu fólki sem er veikt og líður ekki vel. Það getur tekið mikla orku frá manni. Ég er ekki með fjölskyldu í kringum mig sem getur passað börnin fyrir mig og hef ekki efni á að borga fyrir barnapíu.“ Ekki hægt að lifa svona Díana átti íbúð sem hún missti eft- ir hrun. „Það var mjög sorglegt. Ég keypti íbúðina 2006 og var alltaf með allt á hreinu. Ég gat alltaf borgað af henni. Síðan tvöfölduðust lánin og bankinn tók hana af mér. Ég skulda því eitthvað um fjórar milljónir og er á vanskilaskrá.“ Þrátt fyrir erfiðleika er Díana bjartsýn og vinnur hart að því að geta veitt sér og strákunum sínum betra líf. Aðspurð hvernig henni líði að vera í þeirri aðstöðu að þurfa að hugsa um hverja krónu, leyfa sér ekki neitt og þurfa stundum að leita til hjálp- arstofnana þrátt fyrir að vinna fulla vinnu, segist hún reyna að hugsa ekki of mikið um það. „Ég reyni að hugsa jákvætt og að hlutirnir muni reddast. Ég hugsa um framtíðina og er alltaf að reyna að hugsa hvernig ég geti fengið meiri pening. Stundum líður mér þó illa ef allur peningurinn er að klárast. Eins og um daginn þegar ég var búin að ná að safna fjörutíu þúsund krón- um upp í rúm og fyrir myndatöku af strákunum, þá bilaði bíllinn og allur peningurinn fór í það. En þá hugsaði ég hvað það var samt gott að ég var búin að safna þessu svo ég gæti lát- ið gera við bílinn.“ Hún segir að lág- markslaun þurfi að hækka ef fólk eigi að geta lifað án þess að þurfa að reiða sig á aðstoð hjálparstofnana eða félagslega kerfisins. „Mér finnst þessi laun vera bara grín. Það er ekki hægt að lifa svona. Það hefur allt hækkað en launin hækka ekki neitt.“ Enginn lúxus Hún segist stundum sakna fjölskyldu sinnar í Eistlandi en þar ólst hún upp á sveitabæ en flutti seinna til höfuð- borgarinnar Tallinn til að fara í skóla. „Ég var tveggja vikna þegar mamma og pabbi fluttu í sveitina. Það var sko enginn lúxus þar. En það var yndislegt að alast þarna upp og allir hjálpuð- ust að.“ Hún hugsar stundum um að flytja þangað aftur en vill bíða þang- að til að strákarnir eru orðnir eldri og einnig vill hún safna sér pening til að geta hafið þar nýtt líf. „Það hefur svo margt breyst þar og ég þekki ekki al- veg hvernig hlutirnir eru þar í dag. En ég vil að synir mínir kynnist ömmu sinni og afa. Þegar ég var lítil voru amma og afi fyrstu vinir mínir og síð- an bestu vinir mínir. Ég vil að strák- arnir mínir fái að upplifa það.“ Á ekki fyrir tannviðgerð n Vinnur fulla vinnu en á oft ekki fyrir mat n Eldra barnið sefur uppi í á meðan hún safnar fyrir rúmi n 82 þúsund eiga að duga þriggja manna fjölskyldu „Stundum líður mér þó illa ef allur peningurinn er að klárast. Eins og um daginn þegar ég var búin að ná að safna fjörutíu þúsund krónum upp í rúm og fyrir myndatöku af strákunum, þá bil- aði bíllinn og allur peningurinn fór í það. Samkvæmt opinberum neysluviðmiðum fjölskyldu þar sem einn fullorðinn og tvö börn búa í leiguhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu ættu heildarútgjöld fjölskyldunnar að vera 451.500 krónur á mánuði. Díana og fjölskylda lifa á rétt rúmlega 200 þúsund krónum á mánuði. Velferðarráðuneytið heldur úti reiknivél á vefsíðu sinni um neysluviðmið fjölskyldna og samkvæmt henni er gert ráð fyrir 119 þúsund krónum á mánuði í neysluvörur á borð við mat, dagvörur, föt og heimilisbúnað. Þá er gert ráð fyrir því að fjölskyldan þyrfti 85 þúsund krónur á mánuði í ýmiss konar þjónustu á borð við síma og fjarskipti, lyf, heilsugæsluþjónustu, menntun og dagvistun. 61 þúsund krónur eiga að fara í tómstundir og afþreyingu í hverjum mánuði. Þá er gert ráð fyrir 93 þúsund krónum í samgöngukostnað á mánuði. Að lokum er gert ráð fyrir 91 þúsund krónum á mánuði í húsnæðiskostnað með rafmagni og hita. Þyrftu 451.500 á mánuðiHanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is Barátta Díana Skotsenko hefur búið á Íslandi í 11 ár. Hún vinnur fulla vinnu hjá borginni en þarf stundum að reiða sig á hjálparstofnanir til að geta fætt sig og börnin sín tvö. Mynd SigtRygguR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.