Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2012, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2012, Blaðsíða 27
Fólk 27Miðvikudagur 2. maí 2012 Draumur að rætast n Alexander Briem er kominn inn í virtan leiklistarskóla É g er ennþá hálforðlaus,“ segir leikarinn Alexand- er Briem sem hefur feng- ið inngöngu í hinn virta breska leiklistarskóla Central School of Speech & Drama. „Það hefur verið draumur hjá mér að komast inn í ein- hvern af þessum sterku skól- um. Ég kom heim fyrir viku eftir að hafa farið í prufur í tveimur skólum, þessum og LAMDA eða The London Aca- demy of Music and Dramatic Arts. Ég hef ekki fengið svar frá LAMDA. Hvort tveggja er mastersnám en deildin sem ég komst inn í er „Acting for screen“. Í LAMDA sótti ég um klassískan sviðsleik svo þetta er tvennt ólíkt,“ segir Alexand- er sem veit ekki hvor skólinn yrði fyrir valinu fengi hann já frá báðum. „Ég hef alltaf haft aðeins meiri áhuga á því að leika í kvikmyndum en hef samt mjög mikinn áhuga á sviði líka.“ Margir þekktir leikarar hafa útskrifast úr Central School of Speech & Drama. Þeirra á meðal eru stórleikkonurnar Helen Mirren og Judi Dench sem og Kristen Scott Tho- mas og Gael García Bernal.“ Aðspurður nefnir Alexand- er danska leikarann Mads Mikkelsen sem sitt uppáhald. „Annars er ég líka hrifinn af Michael Fassbender og Phi- lip Seymour Hoffman. Og svo mörgum öðrum.“ Alexander, sem ætlar að nýta sumarið til að undirbúa sig fyrir námið, segist hafa fengið svarið frá skólanum sent heim með pósti. „Það var alveg magnað að fá þetta um- slag í hendurnar – skrítið og mjög svo útlenskt „móment“. Ég stóð við hliðina á mömmu og við hoppuðum um í faðm- lögum og svo hljóp ég upp til kærustunnar og faðmaði hana og kyssti. Gleðin var rosaleg. Í umslaginu voru skýr fyrirmæli um að hefja strax undirbún- ing. Sumarið fer því í það að finna mér íbúð þarna úti, læra jóga og lesa fullt af bókum.“ Smáauglýsingar smaar@dv.is sími 512 7004 Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00 BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900 LAND ROVER RANGE ROVER SPORT SE DISEL 09/2006, ekinn 104 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, 20“ felgur, skjárinn ofl. Verð 5.990.000. Raðnr. 322117 - Jeppinn er í salnum! HYUNDAI TUCSON 4X4 LUX 10/2007, ekinn 88 Þ.KM, bensín, sjálf- skiptur, leður, vindskeið, filmur ofl. Verð 2.490.000. Rnr.321992 - Jepplingurinn er á staðnum! FORD F150 SUPER CAB HARLEY- DAVIDSSON 4WD 02/2006, ekinn 76 Þ.km, sjálfskiptur, leður ofl. Mjög flott eintak! Verð 3.330.000. Raðnr. 284091 - Pikkinn er á staðnum! BMW 530D 12/2003, ekinn 241 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, leður, nýtt lakk. Verð 3.390.000. Raðnr. 282173 - Sá þýski er á staðnum! AUDI A4 SEDAN 1,8T S-LINE 10/2007, ekinn 56 Þ.km, sjálfskiptur, leður ofl. Verð 3.990.000. Raðnr.118051 - Bíllinn er á staðnum! TOYOTA LAND CRUISER 120 VX 12/2005, ekinn 111 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, vindskeið, filmur ofl. Tilboðsverð 4.590.000. Raðnr.250041 -Jeppinn fallegi er á staðnum! VW TOUAREG V6 01/2006, ekinn aðeins 66 Þ.km, sjálfskiptur, leður, lúga ofl. Verð 3.490.000. Raðnr. 250105 - Jeppinn er á staðnum! MMC PAJERO DID 3.2 38“ breyttur Árgerð 2004, ekinn 177 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Verð 4.390.000. Raðnr.118312 - Jeppinn stóri er á staðnum! TOYOTA HILUX DOUBLE CAB D/C, SR 35“ 02/2008, ekinn 38 Þ.km, 3,0l dí- sel, sjálfskiptur. Verð 5.390.000. Raðnr. 282006 - Pallbíllinn er á staðnum! KAWASAKI VN900 CUSTOM SPECIAL EDITION 04/2010, ekið 4 Þ.km, lítur út sem nýtt! Verð 1.350.000. Raðnr.284281 - Hjólið er í salnum! FORD MUSTANG Árgerð 1965, V8 289cc, sjálfskiptur. Raðnr. 282066 - Sá flotti er í salnum! FORD EXPLORER LTD 4X4 Árgerð 2006, ekinn 86 Þ.km, sjálfskiptur, leður ofl. Verð 3.390.000 Tilboðsverð 2.790.000. Raðnr.283890 - Jeppinn er á staðnum! Tek að mér Hreinsa þakrennur, laga riðbletti á þökum, gluggaþvottur, hreinsa lóðir og tek að mér ýmiss smærri verkefni. Upplýsingar í síma 847-8704 eða á manninn@hotmail.com Funahöfða 1, 110 Reykjavík S. 567 4840 www.hofdahollin.is Minkapels til sölu, ný yfirfarinn Upplýsingar í síma: 898-2993 Beinteinn. Gerum tilboð í alla flutninga. Frysti- vagnar, malarvagnar, flatvagnar, gröfur ,kranabílar." Silfri ehf - s: 894-9690 Orðlaus Alexander lék Orm í kvikmyndinni Gauragangi. U pp á liðleikann er dansinn góð- ur grunnur en að öðru leyti hjálpar hann ekki neitt,“ seg- ir Hulda B. Benediktsdóttir Waage, bikarmeistari kvenna í kraftlyftingum, sem æfði djassballett frá sex til 18 ára aldurs. Hulda segir kraftlyft- ingarnar eiga mun betur við sig. „Ég er svo mikil keppnis- manneskja og hef metnað fyr- ir að vera best. Í djassballett- inum er maður bara einn af hópnum svo slíkur metnað- ur þótti mér til einskis.“ Hulda komst í þrusuform þegar hún byrjaði að lyfta. „Ég var orðin allt of þung. Fyr- ir þremur árum var ég heil 97 kíló en í dag er ég 70. Ég var ekki í neinu líkamlegu formi þegar ég byrjaði að æfa en er í fínu formi í dag. Það er því ekki nauðsynlegt að hlaupa á hlaupabretti til að verða mjó. Það er hægt að æfa kraftlyft- ingar til þess,“ segir Hulda brosandi og bætir aðspurð við að fólkinu í kringum hana hafi lítið litist á þegar hún byrj- aði að æfa íþróttina. „Mörg- um fannst þetta mjög skrítið og mamma spurði hvort þetta væri ekki  algjör  vitleysa. Hún var alveg viss um að ég myndi slasa mig á þessu og er hrædd um það enn í dag. Svo fór fólk líka að efast um kynhneigð mína. Steríótýpan í kraftlyft- ingum er feit kona með stutt hár og afskaplega samkyn- hneigð. Flestir eru samt farnir að skilja hvað mér finnst þetta skemmtilegt og hvað ég er að gera þetta af mikilli ástríðu.“ Hulda, sem segist ekki líta út fyrir að vera jafn sterk og raun ber vitni, ætlar sér að taka þátt í keppninni Sterkasta kona Íslands á næstu misser- um. „Ég mætti á eina æfingu fyrir keppnina í fyrra en ég og þjálfarinn minn ákváðum að ég hefði ekki tíma til að taka þátt vegna undirbúnings fyrir bikarmótið. Stefnan er að taka þátt þegar ég hef meiri tíma. Þessa stundina er ég í niður- skurði. Ég er að reyna að taka utan af mér sem mesta fitu af því að ég er á mörkunum í þyngdarflokknum. Svo fer ég að hlaða á mig kjöti og mun fyrir vikið líklega líta út fyrir að vera sterkari en ég lít út fyr- ir  í dag. Ég ætla mér að verða sterkasta kona Íslands og ég ætla mér að verða heims- meistari í kraftlyftingum. Í ár stefni ég á að vera á listan- um yfir topp tíu en á næsta ári ætla ég að vinna,“ segir Hulda ákveðin og bætir við að þrátt fyrir val á íþrótt upplifi hún sig sem kvenlega. „Mér finnst ég mjög kven- leg og ég er mjög sæt í kjól. Hins vegar er ég ekkert svaka- lega falleg þegar ég er komin í kraftlyftingagallann en hann hjálpar manni í lyftunum. Maður fórnar kvenleikanum í smástund en fer svo í kjól þeg- ar æfingu lýkur.“ Ætlar sér að verða sterkust n Hulda Waage fór úr djassballett yfir í kraftlyftingar Nautsterk Hulda segist ekki upplifa sig sem sérstaklega fallega í kraftlyftingagallanum en að hann hjálpi í lyftunum. Myndina tók Jón Svavarsson. Stefnir á toppinn Hulda er staðráðin í að verða heims- meistari í kraftlyft- ingum á næsta ári. MyNd eyþór árNASON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.