Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2011, Blaðsíða 25
Sport | 25Miðvikudagur 20. júlí 2011
„Flestum leikjum þurfum
við að stjórna þannig að ég
held að þetta henti Eiði vel.
Hann er ekki að fara í lið sem
verst allan tímann heldur akk
úrat öfugt. Einn og sér getur
hann samt ekkert gert en við
erum búnir að fá nokkra unga
leikmenn til okkar þannig að
ég held að við séum með góða
blöndu af leikmönnum. Við
erum reiðubúnir að keppa við
bestu liðin en við erum ekk
ert að gefa út að við ætlum að
vinna deildina eða neitt þann
ig. Það er auðvitað markmið
ið hjá AEK að vinna alla leiki
en það er erfitt að berjast við
Olympiakos því ekki er hægt
að bera saman sjóði þeirra og
okkar,“ segir Arnar.
En hvenær hefst svo deild
in? „Við eigum Evrópuleik 18.
ágúst og svo á deildin að byrja
tveimur vikum seinna. Reynd
ar er mikið rugl í gangi hérna og
það er held ég ekki vitað hvaða
lið verða í deildinni. Það hefur
verið hreinsað svolítið mikið til
þar sem mikil umræða hefur
verið um að lið séu að kaupa
dómara og svona. Það er ver
ið að taka hart á þessum hlut
um og menn hafa verið að gefa
út kærur. Þar af leiðandi geta
lið lent í erfiðleikum. Þetta er
samt ekkert sem ég er að pæla
í. Ég hugsa bara um AEK,“ seg
ir Arnar Grétarsson, yfirmaður
knattspyrnumála hjá AEK.
É
g stóröfunda hann og væri
alveg til í að vera í hans
sporum. Hann er bara far
inn út í magnað ævintýri,“
segir Helgi Sigurðsson,
fyrrverandi leikmaður Panathin
aikos í Grikklandi, um komu Eiðs
Smára til AEK í Aþenu. Helgi lék
með gríska stórliðinu og erki
fjendum AEK árin 1999 til 2001.
Helgi segir að gríska deildin sé
mun stærri en flestir gera sér
grein fyrir og AEK sé mun stærri
klúbbur en West Ham United
sem Eiði Smára stóð einnig til
boða. Þó að Helgi hafi ekki verið
með stærstu nöfnum evrópskrar
knattspyrnu eftir tíma sinn í Nor
egi fékk hann höfðinglegar mót
tökur þegar hann var kynntur
sem leikmaður Panathinaikos.
„Það var troðinn flugvöllur
og algjör klikkun. Það þurfti að
berja mannfjöldann frá,“ segir
Helgi sem segir það hafa verið
ansi sérstaka upplifun að mæta
í útileiki. „Við fórum á völlinn í
hálfgerðum fangelsisrútum. Það
voru rimlar fyrir gluggum þar
sem stuðningsmenn annarra
liða grýttu rútuna á leið á völlinn.
Þetta er mikið ævintýri og frá
bært fyrir hann að upplifa.“
Helgi, sem lék meðal ann
ars í Noregi, Þýskalandi og Dan
mörku sem atvinnumaður, er
ekki í nokkrum vafa um að árin
í Grikklandi hafi verið þau eftir
minnilegustu.
„Ég og mín fjölskylda tölum
um þetta sem bestu árin á ferl
inum. Þetta er allt annað og ég
skil hann mjög vel að hafa valið
þetta frekar en fyrstu deildina á
Englandi. Það er engin spurn
ing í mínum augum. Íslending
ar kannski skynja ekki gríska
boltann því hann er ekki alltaf í
sjónvarpinu en AEK er langt um
stærri klúbbur en West Ham.“
Stuðningsmenn grískra liða
hafa haft það orð á sér fyrir að
vera óstýrilátir. Þeir eru fljót
ir að snúast gegn mönnum ef
þeir standa sig ekki á vellinum.
„Annaðhvort ertu hetja eða al
gjör skúrkur. Ef honum gengur
vel, eins og maður vonast eftir,
þá verður hann í guðatölu. En
svo getur það snúist í hina áttina.
Hann á ekkert að hugsa um það.
Hann á bara að standa sig og fara
í guðatöluna.“
Athygli vekur að samkvæmt
grískum fjölmiðlum fær Eiður
Smári 216 milljónir króna í laun
fyrir tveggja ára samning. Að
spurður hvort leikmenn borgi
ekki skatta í Grikklandi segir
Helgi: „Nei, það var ekki þann
ig þegar ég var þarna allavega.
Þeir eru borgaðir en líklega bara
borgaðir af liðunum. Þeir þurfa
væntanlega að borga skatta eins
og aðrir.“
Helgi segir að upp úr standi
að Eiður sé að fara út í magnað
ævintýri og hann muni eflaust
standa sig vel hjá AEK.
„Ég hef ekki nokkra
trú á öðru en að
hann standi sig
og fótboltinn
þarna hentar
honum vel.
Grikkirn
ir elska stór
nöfn og Eið
ur Smár er
það. Hann er
aðeins stærra
nafn en ég
þegar ég fór
þangað,“ segir
Helgi í léttum
tóni. „Eiður er
með sinn kar
akter og sitt ís
lenska keppn
isskap. Hann
verður kominn
í guðatölu innan
skamms.“
einar@dv.is
„Annaðhvort ertu hetja
eða algjör skúrkur“
n Helgi Sigurðsson lék í Grikklandi og veit út í hvað Eiður Smári er kominn
Klappað og klárt Eiður Smári er
orðinn leikmaður gríska liðsins AEK.
Mynd KitrinoMavri ora & nEwSportS pHoto aGEncy