Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2013, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2013, Síða 9
Milljóna álversbónusar en engar tekjur á Móti Fréttir 9Miðvikudagur 3. júlí 2013 Umframvigt, skuldsetning og barlómur n Útgerðin skuldsett vegna tækja- og kvótakaupa Ú tgerðarfélagið Þórsberg á Tálknafirði hefur í gegn- um árin verið grunað um að hafa landað fram hjá aflavog og hefur fyrirtæk- ið sætt rannsókn hjá Fiskistofu vegna þessa, líkt og greint var frá í fjölmiðlum árið 2011. Grunurinn beindist að því að slík umfram- löndun hefði átt sér stað hjá fyrir- tækinu allt frá árinu 2008. Líkt og DV greindi frá í síðustu viku er fyrirtækið mjög skuldsett vegna erlendra lána sem félagið tók á árunum fyrir hrun – eigin- fjárstaðan var orðin neikvæð um 100 milljónir í árslok 2008 – og hafa forsvarsmenn félagsins haft sig nokkuð í frammi vegna veiði- gjaldanna sem þeir telja sligandi. Þórsberg á og rekur nokkra línu- og handfærabáta og veiðir aðallega þorsk, steinbít og keilu. Staða Þórbergs um þessar mundir er því sú að félagið berst í bökkum rekstrarlega – í árslok 2011 var eiginfjárstaða þess nei- kvæð um 850 milljónir króna - vegna áðurnefndra lána, það sæt- ir rannsókn hjá Fiskistofu vegna meintrar umframlöndunar auk þess sem stjórnendur þess kvarta undan veiðigjaldinu eins og áður segir. Ekki verður hins vegar séð að slæma stöðu Þórsbergs mega rekja til veiðigjalda heldur til ákvarð- ana sem voru teknar fyrir hrun, á sama tíma og talið er að fyrirtæk- ið hafi stundað umframlöndun. Skuldsetningu félagsins má rekja til kaupa á kvóta og veiðitækjum. Gagnrýnin á frumvörpin Gagnrýni Þórsbergs á frumvörp- in um veiðigjöld er á þá leið að með gjaldtökunni sé komið í veg fyrir að útgerðir geti endurnýjað tæki sín og tól. Orðrétt sagði fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, Guð- jón Indriðason, við ísfirska blaðið BB í apríl í fyrra: „Þeir sem reka fyr- irtæki verða að geta gert raunhæfar áætlanir og þá verða línur að vera nokkuð skýrar. Það er engu líkara en að þau sem sömdu frumvörpin sem nú liggja fyrir hafi mjög tak- markaða vitneskju um rekstur sjáv- arútvegsfyrirtækja. Kannski væri bara best að skipta okkur sem höf- um rekið slík fyrirtæki alveg út og láta sérfræðingana sýna hvernig á að reka sjávarútveginn, þannig að hann standi undir allri þessari skattlagningu.“ Þá sagði Guðjón, í viðtali við Morgunblaðið í síðustu viku, að Þórsberg stæði ekki undir veiðigjaldinu: „Við stöndum engan veginn undir veiðigjöldunum, ég veit ekki hvar á að taka þau.“ Mið- að við stöðu félagsins má segja að Þórsberg standi heldur ekki undir eigin rekstri um þessar mundir. Rannsóknin enn í gangi Líkt og meðal annars DV greindi frá árið 2011 ákvað Fiskistofa að gera svokallaða bakreikningsrann- sókn á bókhaldi Þórsbergs sem átti að ná aftur til ársins 2008. Slík rannsókn gengur út á að bera skráðan og vigtaðan afla við þann afla sem seldur er frá útgerðarfyrir- tæki. Í fréttunum árið 2011 kom fram að strax árið 2005 hafi Þórs- berg verið svift vigtunarleyfi vegna framhjálöndun og því má segja að ávirðingar um slík löndunarbrot hafi lengi loðað við útgerðina. Um- framfiskurinn sem fyrirtækið kann að hafa landað og selt framhjá vigt ætti því að hafa leitt til aukinna tekna fyrir útgerðina, tekna sem ekki nauðsynlega þurfa að koma fram í bókhaldi félagsins. Slíkt gæti því hafa verið til rekstrarlegra hags- bóta fyrir fyrirtækið. Í viðtali við DV segir Eyþór Björnsson, framkvæmdastjóri Fiski stofu, að rannsóknin á Þórs- bergi sé ennþá í gangi. „Málið er enn í rannsókn. En ég vonast til að við förum að fá niðurstöðu í það,“ segir Eyþór og bætir því við, aðspurður, að verið sé að rann- saka bókhald fyrirtækisins aftur til ársins 2008. Guðjón Indriðason segir að hann viti ekki hver staðan sé á rann sókn Fiskistofu. Hann seg- ir að spurð ur að ekkert sé til í þeim ávirðingum Fiskistofu að fyrirtækið hafi stundað umframlöndun. „Það er ekki neitt til í þessu.“ Guðjón seg- ir jafnframt að rannsókn Fiskistofu hafi haft slæm áhrif á útgerðina en vill ekki fara nánar út í hvernig þau áhrif hafa birst. „Bara alla vegana áhrif. Nei, ég vil það ekki.“ n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Málið er enn í rannsókn Skuldsett útgerð Útgerðarfyrirtækið Þórsberg á Tálknafirði er afar skuldsett vegna lána í erlendum myntum og sætir nú rannsókn hjá Fiskistofu út af meintri umframlöndun. Guðjón Indriðason er framkvæmdastjóri Þórsbergs. n Century Aluminium ver miklu fjármagni í fyrirhugað álver í Helguvík n Bjartsýni út af stjórnarskiptum bónusa út af Helguvíkurverkefn- inu. Orðrétt segir um þetta mat í ársreikningnum: „Bónuspotturinn á Íslandi er ákveðinn út frá hug- lægu mati á árangri stjórnenda við að viðhalda þeim möguleika að opna álver í Helguvík. Matið er al- gjörlega matskennt og huglægt en til útskýringar þá má nefna nokk- ur af þeim atriðum sem liggja til grundvallar hjá stjórninni en ekk- ert af þessum atriðum er metið óháð og eitt og sér.“ Þeir undir- menn stjórnendanna fjögurra sem unnu að því á þessum árum að viðhalda möguleikanum á fram- kvæmdinni hljóta að hafa fengið sinn skerf fyrir sína vinnu. Þögn um frekari nöfn Í ársreikningi Century Alumini- um eru aðrir starfsmenn en þess- ir fjórir ekki nafngreindir. Að- spurð um hvort æðstu stjórnendur Fjarðaráls á Íslandi hafi fengið slíka bónusa segir upplýsingafull- trúi Alcoa Fjarðaráls, Sólveig Berg- mann, að nöfn þeirra séu ekki nefnd í ársreikningnum og að fyr- irtækið geti ekki sagt af eða á hvort æðstu íslensku stjórnendur Fjarð- aráls – Ragnar Guðmundsson og Guðlaugur Guðmundsson – hafi fengið hlutdeild í bónuspottin- um. „Ég get hvorki sagt af eða á um hvort eitthvað af þessu renn- ur til íslenskra stjórnenda (...) Ég get ekki sagt nei við þessari spurn- ingu um hvort þetta rennur til ís- lenskra stjórnenda en það er ekk- ert í ársskýrslu fyrirtækisins sem tengir þessa tvo aðila við þennan bónuspott.“ Sólveig segir aðspurð að nöfn þeirra íslensku aðila sem kunna að hafa fengið bónusa á sömu forsend- um og æðstu stjórnendur félags- ins verði ekki gefin upp. „Nei, það verður ekki gert. Þetta er mjög hefð- bundið kerfi sem þekkist í Banda- ríkjunum en hefur ekki verið þekkt hér á landi.“ Sólveig segir að hver ein- asti starfsmaður sem vinnur hjá Norður áli sé á bónustengdum laun- um sem annað hvort getur verið bundinn við matskenndan árang- ur fyrirtækisins á tilteknum svið- um eða í einhverjum tilfellum eru bónusarnir persónubundnir. „Hver einasti starfsmaður sem vinnur hjá Norðuráli vinnur innan einhvers bónuskerfis. Það eru veittir bónusar hér í hverri einustu viku þannig að við vitum alltaf hvar við stöndum.“ Miðað við orð Sólveigar má ætla að áðurnefndir fjórir stjórn- endur á Íslandi hafi fengið hæstu bónusana út af árangrinum á Ís- landi sem talað er um í ársreikn- ingi fyrirtækisins. Þegar litið er til þess að bónuspotturinn fyrir Ís- land var fjórar milljónir dollara á árunum 2010 til 2012 og að bónus umræddra fjögurra starfsmanna fyrir eitt af þessum árum var rúm- lega 400 þúsund dollarar má ætla að fleiri starfsmenn hafi fengið bónusa út af árangrinum á Íslandi. „Við getum eðlilega ekki gefið upp kaup og kjör einstakra stjórnenda,“ segir Sólveig. Nærri nítján milljarða króna kostnaður Í ársreikningi Century Aluminum fyrir síðasta ár segir að í heildina hafi kostnaður vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík numið 146 millj- ónum dollara, eða tæplega 19 millj- örðum króna. „Heildarkostnað- ur vegna álversins í Helguvík var nærri 146 milljónir króna (...) Ef við hefjum ekki framkvæmdir að nýju þá gætum við þurft að taka á okk- ur tap frá þeim tíma sem það ligg- ur fyrir að við ætlum að hætta við verkefnið.“ Century og Norðurál hafa því mikilla hagsmuna að gæta að ál- verið rísi og skili fyrirtækinu tekj- um. Annars hefur Century lagt út talsverðan kostnað sem fyrirtæk- ið fær ekki til baka. Hér á síðunni er vitnað í orð forstjóra Century Aluminium þar sem hann útskýr- ir að forsvarsmenn fyrirtækisins séu bjartsýnni en ella í ljósi niður- stöðunnar í kosningunum í vor en hann telur að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn séu frekar flokkar at- vinnulífsins og stóriðju en Samfylk- ingin og Vinstri grænir. n „Bónuspottur- inn á Íslandi er ákveðinn út frá huglægu mati á árangri stjórn- enda við að viðhalda þeim möguleika að opna álver í Helguvík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.