Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1928, Blaðsíða 17
Verslunarskýrslur 1926
15
1922 1923 1924 1925 1926
Rafmagnsvjelar og áhöld . . . 74 93 57 105 103
Bifreiðahlutar . 8 12 28 55 78
Móforhlutar . . . 28 70 75 88 49
bifreiðum í heilu lagi voru fluttar inn 9 árið 1922, 27
1923, 44 árið 1924, 110 árið 1925 og 148 árið 1926.
3. Útfluttar vörutegundir.
Exportation des marchandises.
í töflu II D (bls. 29—34) er skýrt frá útflutningi á hverri einstakri
vörutegund frá landinu í heild sinni. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir
skyldleika þeirra, á sama hátt sem innfluttu vörurnar, og er yfirlit yfir
þá flokkaskiftingu í töflu I (bls. 1).
3. yfirlit (bls. 16") sýnir, hve mikilli verðupphæð útflutta varan
hefur numið árlega síðan um aldamót. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir
því, frá hvaða atvinnuvegi þær stafa. Ennfremur er 'Sýnt með hlutfalls-
tölum, hve mikill hluti verðmagnsins stafar árlega frá hverjum atvinnu-
vegi. Hefur hlutdeild sjávarafurða vaxið, en landbúnaðarafurða minkað.
Fram að 1920 námu landbúnaðarvörurnar að meðaltali rúml. Vs af út-
flutningsverðmagninu, en eftir 1920 hafa þær ekki numið nema 13°/o
að meðaltali, en fiskiafurðirnar aftur á móti 85°/o.
Eiskiafurdirnar eru þannig yfirgnæfandi í útflutningnum. Hafa þær
að verðmagni verið 45 milj. kr. árið 1926. 4. yfirlit (bls. 17*) sýnir, hve
mikill fiskútflutningurinn, að undanskilinni síld, hefur verið árlega síðan
um aldamót. Hefur hann alls hjerumbil ferfaldast á þessu tímabili. Þó
hefur útflutningur á fullverkuðum saltfiski ekki vaxið nærri eins mikið,
en aukningin verið þeim mun meiri á Labradorfiski, óverkuðum saltfiski
og ísfiski.
Síldarútflutningurinn hefur verið þessi á tveim fyrstu áratugum
aldarinnar:
1901-05 ...... 5 504 þús. kg 1916—20 ...... 14 472 þús. kg
1906—10 ...... 16 720 — — 1921—25 ...... 17 055 — —
1911—15 ...... 19 896 -----
1