Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1931, Blaðsíða 11
Verzlunarskýrslur 1929 9*
1925 1926 1927 1928 1929
Smjörlíki 41 57 125 99 120
Niðursoöin mjólk 302 409 284 278 368
Ostur 123 128 111 111 147
Egg 42 60 56 60 57
Hart brauð 225 188 91 134 133
Kringlur og tvíbökur . . .. 21 24 21 22 17
Kex og kökur 120 90 178 194 228
]arðepli . 2 329 2 130 2 093 1 778 1 864
Epli ny 150 163 142 187 205
Olóaldin (appelsínur) .. . . 168 180 165 176 277
Rúsínur 108 120 132 140 153
Sveskjur 137 150 120 151 147
Kartöflumjöl 98 98 110 174 156
Avextir niðursoðnir 42 39 44 67 115
Avaxtamauk (syltetöj) . . . . 52 61 60 90 125
Sagógrjón og sagómjöl 84 82 94 99 97
Munaðarvörur hafa verið kallaðar þær neyzluvörur, sem ekki hafa
verið faldar nauðsynjavörur, svo sem kaffi, te, súkkulað, sykur, tóbak,
áfengir drykkir, gosdrykkir o. fl. Þetta eru þær vörur, sem tollarnir hafa
aðallega verið lagðir á, enda þótt sumar þeirra megi nú orðið telja
nauðsynjavörur, svo sem sykur. Af þessum svo kölluðu munaðarvörum
nam innflutningurinn árið 1929 tæpl. 5 milj. kr. eða 6>/2 °/o af öllum
innflutningnum.
2. yfirlit (bls. 10*) sýnir árlega neyzlu af helztu munaðarvörunum
á hverju 5 ára skeiði síðan um 1880 og á hverju ári síðustu 5 árin,
bæði í heild sinni og samanborið við mannfjölda. Er þar eingöngu um
innfluttar vörur að ræða, þar fil síðusfu árin að viðbætist innlend fram-
leiðsla á öli og kaffibæti. Brennivín er talið með vínanda, þannig að
lítratala brennivínsins er helminguð, þar eð það hefur hérumbil hálfan
styrkleika á við hreinan vínanda, svo að tveir lítrar af brennivíni sam-
svarar einum lítra af vínanda.
A yfirlitinu sést, að árið 1929 hefur aukizt neyzla af öllum þessum
munaðarvörum, nema kaffi og vínanda.
Innflutningur á sykri hefur vaxið afarmikið á síðustu 50 árum.
Neyzla á mann hefur fimmfaldast og er nú orðin 40 kg á mann. Er það
mikið samanborið við önnur lönd. Arið 1929 var hún 40 kg á Bret-
landi, 41 kg í Svíþjóð, en minni í flestum löndum Norðurálfunnar, nema
Danmörku, þar var hún 51 kg. I Bandaríkjum Norður-Ameríku og
Nýja Sjálandi var hún líka meiri (50 og 52 kg).
Neyzla af kaffi og kaffibæti hefur aukizt töluvert síðan um 1890.
1886—90 komu ekki nema 4 kg. á mann að meðaltali, 1916—20 meira