Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1931, Page 26
24
Verzlunarskýrslur 1929
vegna þess hve peningagildið hefur breytzt. En ef inn- og útflutnings-
tollarnir eru bornir saman við verðmagn inn- og útflutnings sama árið,
þá má bera þau hlutföll saman frá ári til árs. Sýna þau hve miklum
hluta af verðmagninu tollarnir nema á ári hverju, og þess vegna hvort
tollgjöldin hafa raunverulega hækkað eða lækkað. í eftirfarandi yfirliti
er slíkur samanburður gerður fyrir árin síðan um aldamót og sýnt hve
miklum hundraðshluta af verðmagni innflutnings og útflutnings inn- og
útflutningstollarnir nema á ári hverju.
Innflutn. Útflutn. Innflutn. Útflutn.
tollar tollar tollar tollar
1901—05 meÖalt. 6.3 °/o 0.9 % 1925 lO.o % 1.6 %
1906—10 — 6.9 — 1.3 — 1926 10.7 — 1.7 —
1911 — 15 — 6.5 — 1.0 — 1927 9.2 — 1.9 —
1916-20 — 3.9 - (+ St.) 1.0 — (+ st.) 1928 9.8 — 1.7 —
1921—25 — 7.2 - (+ St.) 1.4 - (+ St.) 1929 10.0 — 1.7 —
Merkið (+ st.) táknar, að þar við bætist stimpilgjaldstollurinn
(1918—21). Á stríðsárunum fóru tollarnir í raun og veru lækkandi, vegna
þess að þeir fylgdust ekki með verðhækkuninni. En síðan 1919 hafa
útflutningstollarnir verið yfirleitt hærri heldur en fyrir stríðið, og inn-
flutningstollarnir síðan 1924.
7. Tala fastra verzlana.
Nombre des maisons de commerce.
Skýrsla um tölu fastra verzlana í hverju lögsagnarumdæmi á land-
inu árið 1929 er í töflu IK. (bls. 107).
Síðan um aldamót hefur tala fastra verzlana verið þessi:
Heild- salar túna- verzl. verzl- anir Sam- tals Heild- salar túna- verzl. verzl- anir Sam- tals
1901-05 meðalt. — 273 27 300 1925 . . 62 797 38 897
1906—10 — — 416 31 447 1926 . . 62 803 32 897
1911 — 15 — 16 476 24 516 1927 . . 64 833 35 932
1916—20 — 36 658 33 727 1928 . . 65 839 39 943
1921—25 — 50 752 37 839 1929 . . 71 898 41 1 010
Föstum verzlunum hefur sífelt farið fjölgandi. Einkum var fjölgunin
mikil á stríðsárunum. Heildverzlunum og umboðsverzlunum hefur fjölgað
tiltölulega meira en öðrum verzlunum. Erlendar eru þær verzlanir taldar,
er eigandinn er búsettur í Danmörku. Þessum verzlunum hefur farið
fækkandi á síðari árum. í byrjun aldarinnar voru þær taldar 50, í stríðs-
byrjun (1914) 43, eftir stríðslok (1919) 36 og 10 árið 1929.