Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1934, Page 15
Verslunarskýrslur 1932
11
Norðurálfunnar, nema Danmörku (49 kg), Svíþjóð (45 kg) og Brellandi
(42 kg). í Bandaríkjunum og Nýja Sjálandi var hún líka meiri (44 og
48 kg).
Neysla af kaffi og kaffibæti hefur aukist töluvert síðan um 1890.
1886—90 komu ekki nema 4 kg á mann að meðaltali, en 1916—20
meira en 7 kg. Síðusfu árin hefur innflutningurinn þó verið lægri, en
þar við hefur bæst innlend framleiðsla á kaffibæti, sem er tekin með í
töflunni. Nam hún 26 þús. kg árið 1931, en 182 þús. kg árið 1932.
En innflutningur á kaffibæti lækkaði meir en þeirri aukningu nam.
Innflutningur á tóba'ki hefur lítið vaxið á undanförnum árum og
samanborið við mannfjölda hefur tóbaksneysla hérumbil staðið í stað.
Arið 1932 var innflutningurinn þó töluvert minni heldur en undanfarin ár.
Innflufningur á áfengu öli (með yfir 2V4 °/o af vínanda að rúmmáli)
hefur verið bannaður síðan 1912, en íraman af stríðsárunum gerðist
innflutningur á óáfengu öli allmikill og eins fyrsfu árin effir stríðslokin,
en síðan hefur hann farið minkandi og er nú næstum horfinn, enda er
líka komin á innlend framleiðsla í þessari grein. I töflunni er innlenda
framleiðslan tekin með síðan 1919. Árið 1931 var hún 642 þús. lítrar,
en 1932 ekki nema 494 þús. lítrar, svo að neyslan,hefur minkað mikið.
Vínandi og vínföng eru einungis flutt inn af Áfengisverslun ríkisins.
Var þessi innflutningur mjög lífill fyrst eftir að aðflufningsbannið komst
á, en síðan hefur hann aukist töluvert. Hækkun á vínfangainnflutningn-
um 1922 og árin þar á eftir stafar af undanþágunni, sem veitt var frá
bannlögunum fyrir léft vín (Spánarvín). Mengaður vínandi er ekki talinn
hér heldur í V. flokki.
Wefnaður og fatnaður. Af þeim vörum, sem hér eru taldar, var flutt
inn 1932 fyrir 4.2 milj. kr. og er það rúml. 11 °/o af öllum innflutningi
það ár. Er það bæði að verðmagni og hlutfallslega miklu minna en
næsta ár á undan. Helstu vörur, sem falla hér undir, eru taldar hér á
eftir, og sýnt, hve mikið hefur flust inn af þeim nokkur síðustu árin (í
þús. kg).
1928 1929 1930 1931 1932
Ullargarn 10 n 8 5 n
Baðmullargarn og Ivinni . . . 12 13 10 8 8
Ullarvefnaður 57 54 63 40 25
Baðmullarvefnaður . 124 159 142 89 75
Lérefl 53 61 62 42 27
Prjónavörur 73 70 67 45 25
Línfatnaður 18 22 29 22 6
Karlmannsfalnaður úr ull . . 26 47 48 29 6
Karlmannsslitfatnaður 53 59 69 50 29
Kvenfatnaður 13 19 25 18 7
Sjóklæði og olíufatnaður .. . 41 42 23 13 9