Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1936, Blaðsíða 19
Verslunarskýrslur 1934
17*
Afurðir cif veiðiskap og hlnnnindum hafa aðeins numið um 0.4%
af verðmagni útflutningsins árið 1934. Helstu vörutegundir, sem hér falla
undir, eru æðardúnn, selskinn og rjúpur. Af þeim hefur útflutningurinn
verið síðustu árin:
Æðar^“nn Selslíinn Rjúpur
1930 2 040 kg 1 987 kg » stk.
1931 2 578 — 1 804 »
1932 1 566 3 432 »
1933 1 089 — 3 387 887
1934 ............. 2 651 2 942 16 428
Landbúnaðarafurðirnar eru annar aðalþáttur útflutningsins. Árið
1934 voru þær útfluttar fyrir 4% milj. kr„ en það var þó ekki nema
9.4% af útflutningsverðmagninu alls það ár. Helstu útflutningsvörurnar
eru saltkjöt, fryst og kælt kjöt, ull og saltaðar sauðargærur. Síðan um
aldamót hefur útflutningur þessara tegunda verið:
Saltkjðt Fryst og kælt kjöt UII Saltaðar sauðargærur
1901 -05 meðaltal 1 380 þús. kg » þús. kg 724 þús. kg 89 þús. tals
1906 10 1 571 )) 817 179
1911 15 2 793 )) 926 302
1916 20 3 023 )) - 744 407
1921 25 2 775 )) 778 419
1926 30 2 345 498 782 - - 392
1930 2 288 875 • 306 406
1931 1 523 1 129 949 - 494
1932 1 488 1 658 548 - 373
1933 858 988 — 1 288 - 399
1934 903 1 383 702 424
Sauðargærur hafa stundum verið gefnar upp i þyngd en ekki tölu.
Hér er þyngdinni breytt í tölu þannig, að gert er ráð fyrir, að hver
gæra sölluð vegi að meðaltali 2 kg.
Áður var mikill útflutningur af lifandi hrossum, en sá útflutningur
hefur mikið minkað. 1906—10 voru flutt úr 3 876 hross árlega að meðal-
tali, en 1926—30 ekki nema 876. Árið 1931 voru flutt út 1 184 liross, 783
árið 1932, 601 árið 1933, og 936 árið 1934.
Iðnaðarvörur útfluttar eru aðallega prjónles (einkum sokkar og
vetlingar) og kveður sáralítið að þeim útflutningi.
Undir flokkinn ,,Ymislegt“ falla þær vörur, sem ekki eiga heima
annarsstaðar, svo sem útlendar vörur, skip, bækur, frímerki o. fl.