Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1957, Síða 28
26*
Verzlunarskýrslur 1956
nema 1 500 vestur-þýzk mörk fyrir hverja sölu, eða 5 800 kr. Þessum fiski er skipað
á land I Hamborg. — Auk sölukostnaðar, dregst frá hrúttóandvirðinu farmgjald,
sem togurum og íslenzkum fiskkaupaskipum er reiknað fyrir flutning ísfisks. Á árun-
um 1947—1949 og fram að gengisbreytingu 1950 nam þetta farmgjald 200 kr. á
hvert tonn ísfisks til Bretlands og 250 kr. á tonn í Þýzkalandssiglingum, sem hófust
aftur 1948, eftir að liafa legið niðri síðan 1939. Með gengisbreytingunni var farm-
gjaldið í Bretlandssiglingum hækkað í 300 kr. og í Þýzkalandssiglingum í 350 kr.
tonnið, og hefur það lialdizt óbreytt síðan. Hér fer á eftir sundurgreining á
verðmæti ísfisksútflutningsins 1956 (í millj. kr.):
Brctland V.-Þýzkaland A.-Þýzkaland Samtals
Fob-verð skv. verzlunarskýrslum .. 4,3 18,1 2,6 25,0
Reiknaður flutningskostnaður 0,7 5,0 0,5 6,2
Áætlaður sölukostnaður og tollur . . . 1,2 4,1 0,1 5,4
Brúttósölur .. v 6,2 27,2 3,2 36,6
Löndunarbann það, sem í október 1952 var lagt á íslenzkan ísfisk í Bretlandi
að undirlagi togaraeigenda þar, var fellt niður í nóvember 1956, og hófst þá útflutn-
ingur ísfisks þangað á ný, eftir að hafa legið að mestu niðri í 4 ár.
Það skal tekið fram, að togarar, sem selja ísfisk erlendis, nota miklar upphæðir
af fiskandvirðinu til kaupa á rekstrarvörum, vistum o. fl., svo og til greiðslu á
skipshafnarpeningum, en slíkt er ekki innifalið í áður nefndum hundraðshluta, sem
dreginn er frá brúttósölum, þegar fob-verðið er reiknað út. Skortir því mjög mikið
á, að gjaldeyri svarandi til fob-verðs sé skilað til bankanna.
5. yfirlit sýnir, live mikilli verðupphæð útflutta varan hefur numið síðan um
aldamót. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir því, frá hvaða atvinnuvegi
þær stafa. Enn fremur er sýnt með lilutfallstölum, hve mikill hluti verðmætisins
stafar árlega frá liverjum atvinnuvegi.
í 6. yfirliti er sýnt, hvernig magn og verðmæti útflutningsins 1956
skiptist á mánuði.
Á árinu 1956 voru 8 skip seld úr landi til niðurrifs, og eru þau talin í vöru-
deild 28, „málmgrýti og málmúrgangur“. Það voru vöruflutningaskipið Selfoss og
7 gömul fiskiskip. Auk þess var olíuflutningaskipið Skeljungur selt, og fór það til
Englands. Söluverð þess var 989 þús. kr. Er það talið í vörudeild 73.
5. Viðskipti við einstök lönd.
External trade by countries.
7. yfirlit (bls. 27*—29*) sýnir, hvernig verðmæti innfluttra og útfluttra
vara liefur skipzt 3 síðustu árin eftir innflutnings- og útflutningslöndum.
Síðari hluti töflunnar sýnir þátt hvers lands hlutfallslega í verzluninni við ísland
samkvæmt íslenzku verzlunarskýrslunum.
í töflu III A (bls. 4—7) er verðmæti innflutnings frá hverju landi skipt eftir
vörudeildum, og tafla III B (bls. 8—11) sýnir tilsvarandi skiptingu á útflutningnum,
en vörusundurliðunin er þar talsvert ýtarlegri. í töflu V A og B (bls. 80—120) eru
taldar upp innfluttar og útfluttar vörur og sýnt, hvernig innflutnings- og útflutnings-
magn og verðmæti hverrar þeirra skiptist eftir löndum. Hvað snertir sundurliðun
innflutningsins er hér ekki farið eins djúpt og í töflu IV A. Aðalreglan er, að