Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1958, Qupperneq 12
10
Verzlunarskýrslur 1957
skýrslum aimarra lauda yfirleitt vera uotuð nettóþyngd, en þar er ekki um að ræða
neina skuldbindingu eða kvöð, heldur getur hvert land liagað þessu eins og því
hentar bezt.
Sá annmarki fylgir breytingu þeirri, sem hér um ræðir, að samanhurður við
eldri innflutningstölur torveldast. Er leitazt við að hæta eitthvað úr þessu með
því að sýna í töflu IV A, í sérstökum dálki, hve miklum liundraðshluta
nettóþyngd er talin nema af hrúttóþyngd fyrir hverja einstaka vöru-
tegund. Hlutföll þessi voru notuð við umreikning brúttóþyngdar í nettóþyngd í
verzlunarskýrslum 1950. Var gerð sérstök athugun á innflutningnum 1950 í því
skyni að fínna sem réttust hlutföll milli brúttó- og nettóþyngdar, og fengust um
þetta tiltölulega öruggar niðurstöður að því er snertir flestar vörur. í sumum til-
fellum var þó haldið áfram að nota hlutföll, sem Hagstofan hafði áður notað við
útreikning á nettóþyngd viðkomandi vörutegunda.
Gjaldeyrisgengi. I árslok 1957 var skráð gengi Landsbankans á erlendum
gjaldeyri sem hér segir (í kr. á tiltekna einingu):
Einiug Kaup Sala
Sterlingspund 1 45,55 45,70
Bandaríkjadollar l 16,26 16,32
Kanadadollar 1 16,50 16,56
Dönsk lcróna 100 235,50 236,30
Norsk króna 100 227,75 228,50
Sænsk króna 100 314,45 315,50
Finnskt mark 100 - 5,10
Franskur franki 1 000 38,73 38,86
Belgískur franki 100 32,80 32,90
Svissneskur franki 100 374,80 376,00
Gyllini 100 429,70 431,10
Tékknesk króna 100 225,72 226,67
Vestur-þýzkt mark 100 390,00 391,30
Líra 1 000 25,94 26,04
Eftirtaldar hreytingar urðu á gengisskráningu erlends gjaldeyris á árinu 1957:
Sölugeugi Kanadadollars hækkaði 26. júlí úr kr. 17,06 í kr. 17,20, en lækkaði aftur
13. sept. í kr. 17,06, 5. okt. í kr. 16,86 og loks 24. des. í kr. 16,56. Kaupgengið var
6 aurum lægra en sölugengið allt árið. Sölugengi 100 finnskra marka lækkaði 17.
sept. úr kr. 7,09 í kr. 5,10, en kaupgengi er óskráð eins og áður. Sölugengi franskra
franka lækkaði 16. ágúst úr kr. 46,63 í kr. 38,86 og kaupgengið úr kr. 46,48 í kr.
38,73, miðað við 1000 franka.
Innflutningstölur verzlunarskýrslnanna eru afleiðing umreiknings í íslenzka
mynt á sölugengi, en útflutningstölurnar eru aftur á móti miðaðar við kaupgengi.