Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1963, Blaðsíða 15
Verzlunarskýrslur 1962
13*
því að vörumagnsvísitalan tekur ekki aðeins til þyngdarinnar, heldur einnig til
verðsins, þannig að viss þungi af dýrri vöru (með háu verðlagi á kg), svo sem
vefnaðarvöru, vegur meira í vörumagninu heldur en sami þungi af þungavöru
(með lágu meðalverði á kg), svo sem kolum og salti. Vörumagnið getur því aukizt,
þótt þyngdin vaxi ekki, ef magn dýru vörunnar vex, en þungavörunnar minnk-
ar. Lítil aukning á þungavöru hleypir þyngdinni miklu meira fram heldur en
stórmikil aukning á dýrum vörum, svo sem vefnaðarvöru. Skýringin á þessu
ósamræmi er því sú, að þungavörunnar gætir miklu minna á móts við hinar
dýrari í innflutningnum nú heldur en áður. í útflutningnum er aftur á móti
minni munur á vörumagnsvísitölu og þyngdarvísitölu.
1. yfirlit sýnir innflutning og útflutning í hverjum mánuði 1960—
1962 samkvæmt verzlunarskýrslum, en síðar í innganginum er yfirlit um mánað-
arlega skiptingu innflutnings (3. kafli) og útflutnings (4. kafli) eftir vörudeildum.
3. Innfluttar vörur.
Imports.
Tafla IV A (bls. 12—73) sýnir, hve mikið hefur verið flutt til landsins af
hverri vörutegund árið 1962. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir vöruskrá Sameinuðu
þjóðanna. Fremst í innganginum er gerð nánari grein fyrir þessari vöruskrá og
notkun hennar í verzlunarskýrslum, og vísast til þess. í töflum I og II (bls. 1—3)
er yfirlit um skiptingu vöruskrárinnar.
Þyngd hverrar einstakrar vörutegundar I töflu IV A er brúttóþyngd, og
er í því sambandi vísað til 1. kafla inngangsins, þar sem gerð er grein fyrir ástæð-
unum fyrir því, að frá og með árinu 1951 er magn innflutningsins gefið upp með
brúttóþyngd. Annar töludálkur töflu IV A sýnir hundraðshluta nettóþyngdar af
brúttóþyngd fyrir hverja vörutegund í tollskránni, samkvæmt því sem þetta
hlutfall reyndist á árinu 1950, sjá bls. 8*.
Næstsíðasti dálkur töflu IV A sýnir fob-verðmæti hverrar innfluttrar
vörutegundar. Mismunur cif-verðs og fob-verðs er flutningskostnaður vörunnar
frá útflutningsstaðnum ásamt vátryggingariðgjaldi. Flutningskostnaður sá, sem
hér um ræðir, er ekki einvörðungu farmgjöld fyrir flutning á vörum frá erlendri
útflutningshöfn til íslands, heldur er í sumum tilfellum líka um að ræða farmgjöld
með járnbrautum eða skipum frá sölustað til þeirrar útflutningshafnar, þar sem
vöru er síðast útskipað á leið til íslands. Kemur þá líka til umhleðslukostnaður o. fl.
Fer þetta eftir því, við hvaða stað eða höfn afhending vörunnar er miðuð. Eitthvað
kveður að því, að vörur séu seldar cif íslenzka innflutningshöfn. í slíkum tilfellum
er tilsvarandi fob-verð áætlað.
2. yfirlit sýnir verðmæti innflutningsvaranna bæði cif og fob eftir
vörudeildum. Ef skip og flugvélar er undanskilið — en á slíkum innflutningi er
cif-verðið talið sama og fob-verðið — nemur fob-verðmæti innflutningsins 1962 alls
3 358 881 þús. kr., en cif-verðið 3 670 639 þús. kr. Fob-verðmæti innflutnings 1962
að undanskildum skipum var þannig 91,5% af cif-verðmætinu, en árið áður var
það 91,9% af því. — Ef Iitið er á einstaka flokka, sést, að hlutfallið milli fob-verðs
og cif-verðs er mjög mismunandi, og enn meiri verða frávikin til beggja handa,
ef litið er á einstakar vörutegundir.
Til þess að fá einhverja vitneskju um, hvernig mismunur cif- og fob-verðs
skiptist á vátryggingu og flutningskostnað, hefur hið fyrr nefnda verið áætlað og