Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1963, Qupperneq 18
16*
Verzlunarskýrslur 1962
Skipin eru öll nýsmíðuð, nema Hvalur VIII (smíðaár 1948) og Sandey (smíða-
ár 1957). Hvalur VIII er gufuskip, en öll hin skipin eru vélskip. Vélin í Austra
var sett I hér á landi. — í verði skipa eru talin öll tœki, sem talin eru hluti af þeim,
svo og heimsiglingarkostnaður. Fyrir getur komið, að tæki, sem talin eru í inn-
flutningsverði, séu keypt hér á landi og séu því tvítalin í innflutningi. Af þeirri
og fleiri ástæðum er varasamt að treysta um of á þær tölur, sem hér eru birtar
um innflutningsverð skipa. — Af skipunum eru þessi talin með innflutningi júní-
mánaðar: Helgi Flóventsson, Gullfaxi, Árvakur, Hvalur VIII og Náttfari. Hin eru
talin með innflutningi desembermánaðar.
Á árinu voru fluttar inn 8 flugvélar alls, þar af 1 stór farþegaflugvél og 1 flug-
vél til landhelgisgæzlu. Innflutningsverð flugvélanna var 29 528 þús. kr. Farþega-
flugvélin var Snorri Þorfinnsson, frá Bandaríkjunum, innflutningsverð 23 252 þús.
kr., og landhelgisgæzluflugvélin var frá Portúgal, innflutningsverð 5 687 þús. kr.
1 3. yfirliti er sýnd árleg neyzla nokkurra vara á hverju 5 ára skeiði,
síðan um 1880 og á hverju ári síðustu 5 árin, bæði í heild og á hvern einstakling.
Að því er snertir kaffi, sykur og tóbak er miðað við innflutt magn og tahð, að
það jafngildi neyzlunni. Sama er að segja um öl framan af þessu tímabili, en
eftir að komið var á fót reglulegri ölframleiðslu í landinu er hér miðað við innlent
framleiðslumagn. — Vert er að hafa það í huga, að innflutt vörumagn segir ekki
rétt til um neyzlumagn, nema birgðir séu liiuar sömu við byrjun og lok viðkom-
andi árs, en þar getur munað miklu.
Tölurnar, er sýna áfengisneyzluna, þarfnast sérstakra skýringa. Árin
1881—1935 er miðað við innflutt áfengismagn og talið, að það jafngildi neyzl-
unni. Þá er og allur innfluttur vínandi talinn áfengisneyzla, þó að liluti hans hafi
farið til annarra nota. Upplýsingar eru ekki fyrir hendi um, hve stór sá hluti hefur
verið, en htns vegar má gera ráð fyrir, að meginhluti vínandans hafi á þessu tíma-
bili farið til drykkjar. — Frá árinu 1935 er miðað við sölu Áfengisverzlunar ríkis-
ins á sterkum drykkjum og léttum vínum og liún talin jafngilda neyzlunni, en
vínandainnflutningurinn er ekki meðtalinn, enda er sá hluti hans, sem farið hefir
til framleiðslu brennivíns og ákavítis hjá Áfengisverzluninni, talinn í sölu liennar á
brenndum drykkjum. Þó að eittlivað af vínandainnflutningi hennar kunni að hafa
farið til neyzlu þar fram yfir, er ekki reiknað með því í töflunni, þar sem ógerlegt
er að áætla, hversu mikið það magn muni vera. Hins vegar má gera ráð fyrir, að
það sé mjög lítið hlutfallslega. — Innflutningur vínanda síðan 1935 er sýndur í
töflunni, en hafður í sviga, þar sem hann er ekki með í neyzlunni. — Það skal
tekið fram, að áfengi, sem áhafnir skipa og flugvéla mega taka með sér inn í landið,
er ekki talið í þeim tölum, sem hér eru birtar, en þar er nú orðið um að ræða talsvert
magn. Þetta ásamt öðru, sem liér kemur til greina, gerir það að verkum, að tölur
3. yfirlits um áfengisneyzluna eru ótraustar, einkum seinni árin. — Mannfjöldatalan,
sem notuð er til þess að finna neyzluna hvert ár, er meðaltal fólksfjölda í ársbyrjun
og árslok. Fólkstala fyrir 1962, sem við er miðað, er 181 768.
Hluti kaffihætis af kaffineyzlunni samkvæmt yfirlitinu var sem liér segir síð-
ustu 5 árin (100 kg); 1958: 1 855, 1959: 1 562, 1960: 1 491, 1961: 1 129, 1962: 1 153,
4. yfirht sýnir verðmæti innfluttrar vöru eftir mánuðum og vöru-
deildum. Skip eru tekin á skýrslu hálfsárslega með innflutningi júní og desember.
Fyrr í þessum kafla var gerð grein fyrir, hvernig innflutningur skipa og flugvéla
1962 skiptist á árið.
Fyrir árin 1935—50, hvert um sig, var í inngangi verzlunarskýrslna tafla,
er sýndi skiptingu innflutningsins eftir notkun og vinnslustigi. Var