Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1963, Qupperneq 30
Z8*
Verzlunarskýrslur 1962
ísvarin síld og loðna er meðtalið í þessum tölum, en hins vegar er hér aðeins
tahnn ísfískur fluttur út með íslenzkum fískiskipum. ísfiskur fluttur með íslcnzkum
og crlendum vöruflutningaskipum og flugvélum er ekki meðtalinn. Frystur fiskur
fluttur til útlanda með ísfískskipum er ekki meðtalinn.
Það skal tekið fram, að togarar, sem selja ísfisk erlendis, nota miklar upphæðir
af fiskandvirðinu til kaupa á rekstrarvörum, vistum o. fl., svo og til greiðslu á
skipshafnarpeningum, en slíkt er ekki innifalið í áður nefndum hundraðshluta, sem
dreginn er frá brúttósölum, þegar fob-verðið er reiknað út. Skortir því mjög mikið
á, að gjaldeyri svarandi tU fob-verðs sé skilað til bankanna.
6. yfirlit sýnir, hve mikilli verðupphæð útflutta varan hefur numið síðan um
aldamót. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir því, frá hvaða atvinnuvegi
þær stafa. Enn fremur er sýnt með hlutfallstölum, hve mikill hluti verðmætisins
stafar árlega frá hverjum atvinnuvegi.
í 7. yfirhti er sýnt, hvernig magn og verðmæti útflutningsins 1962
skiptist á mánuði.
5. Viðskipti við einstök lönd.
External trade by countries.
8. yfirlit (bls. 29*—31*) sýnir, hvernig verðmæti innfluttra og útfluttra
vara hefur skipzt 3 síðustu árin eftir innflutnings- og útflutningslöndum.
Síðari hluti töflunnar sýnir þátt hvers Iands hlutfallslega í verzluninni við ísland
samkvæmt íslenzku verzlunarskýrslunum.
I töflu III A (bls. 4—7) er verðmæti innflutnings frá hverju landi skipt eftir
vörudeildum, og tafla III B (bls. 8—11) sýnir tilsvarandi skiptingu á útflutningnum,
en vörusundurhðunin er þar talsvert ýtarlegri. í töflu V A og B (bls. 85—149) eru
taldar upp innfluttar og útfluttar vörur og sýnt, hvernig innflutnings- og útflutnings-
magn og verðmæti hverrar þeirra skiptist eftir löndum. Hvað snertir sundurliðun
innflutningsins er hér ekki farið eins djúpt og í töflu IV A. Aðalreglan er, að
tollskrárnúmer er ekki sundurhðað á lönd, nema um sé að ræða a. m. k. eitt land
með 100 000 kr. verðmæti eða meira. Stundum kemur það fyrir, að öll tollskrár-
númer hvers vöruflokks eru sundurliðuð á lönd, en hitt er þó algengara, að svo
sé ekki, og eru þá afgangsnúmerin tekin saman í einn lið, t. d. „Aðrar vörur í 045“.
— Við sundurhðun hvers innflutningsatriðis á Iönd hefur í töflu V A verið farið
eftir þeirri reglu að geta alltaf lands, ef verðmætið nær 100 000 kr. Sé það minna,
er viðkomandi land að jafnaði sett í „önnur lönd“ eða „ýmis lönd“. Þar eru því
aðeins lönd með minna verðmæti en 100 000 kr. hvert og þau a. m. k. tvö talsins,
enda er landið tilgreint, ef það er ekki nema eitt. Tölu landanna, sem ekki eru
sundurliðuð, er getið í sviga.
Sundurliðun útflutningsins i töflu VB er, gagnstætt því sem á sér stað
um töflu V A, ávallt eins djúp og í aðaltöflunni, IV B. Sömuleiðis eru þar tilgreind
öll lönd, sem hver útflutningsvara hefur verið flutt út til, hversu lítið sem verð-
mætið er.
í töflu VI (bls. 150—174) er talinn upp innflutningur frá hverju landi
og útflutningur til þess, en aðeins verðmætið, enda sést tilsvarandi magn
að jafnaði í töflum V A og B, svo og í töflum VI A og B, þar sem þó ekki er sundur-
liðun á lönd. Sundurliðun innflutningsins er í töflu VI hagað svo, að upphæð vöru-
flokksins er tilgreind, en þó að jafnaði ekki nema verðmætið nái %% af heildar-