Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1964, Blaðsíða 23
Verzlunarskýrslur 1963
21*
kunni að liafa farið til neyzlu þar fram yfir, er ekki reiknað með því í
töflunni, þar sem ógerlegt er að áætla, hversu mikið það magn muni vera.
Hins vegar má gera ráð fyrir, að það sé mjög lítið hlutfallslega. — Inn-
flutningur vínanda síðan 1935 er sýndur í töflunni, en hafður í sviga, þar
sem hann er ekki með í neyzlunni. — Það skal tekið fram, að áfengi,
sem áhafnir skipa og flugvéla og farþegar frá útlöndum taka með sér inn
í landið, er ekki talið í þeim tölum, sem hér eru birtar, en þar mun vera
um að ræða mikið magn. Þetta ásamt öðru, sem hér kemur til greina, gerir
það að verkum, að tölur 3. yfirlits um áfengisneyzluna eru ótraustar, eink-
um seinni árin. — Mannfjöldatalan, sem notuð er til þess að finna neyzl-
una hvert ár, er meðaltal fólksfjölda i ársbyrjun og árslok. Fólkstala fyrir
1963, sem við er miðað, er 185 195.
Hluti kaffibætis af kaffineyzlunni samkvæmt yfirlitinu var sem hér
segir síðustu 5 árin (100 kg): 1959: 1 562, 1960: 1 491, 1961: 1 129, 1962:
1 145, 1963: 9 382.
4. yfirlit sýnir verðmæti innfluttrar vöru eftir mánuðum og vöru-
deildum. Skip og flugvélar er tekið á skýrslu hálfsárslega með innflutn-
ingi júní og desember. Fyrr í þessum kafla var gerð grein fyrir, hvernig
innflutningur skipa og flugvéla 1963 skiptist á árið.
Fyrir árin 1935—50, hvert um sig, var í inngangi Verzlunarskýrslna
tafia, er sýndi skiptingu innflutnings eftir notkun og vinnslustigi. Var
vörunum þar skipt i 2 aðalflokka, framleiðsluvörur og neyzluvörur, og
innan hvers flolcks var annars vegar frekari sundurgreining eftir notkun
vara og hins vegar eftir vinnslustigi. Tafla þessi, sem var gerð eftir fyrir-
mynd hagstofu Þjóðabandalagsins gamla, var felld úr Verzlunarskýrslum
frá og með árinu 1951, þar eð hún taldist gagnslitil og jafnvel villandi.
Siðan var ekki birt nein slík skipting innflutnings eftir notlcun vara fyrr en
í Verzlunarskýrslum 1959. í 5. yfirliti er sýnd skipting innflutnings 1963
eftir notkun vara og auk þess eftir innkaupasvæðum. — Flokkun inn-
flutningsins eftir notkun er miklum vandkvæðum bundin, fyrst og fremst
vegna þess að sumar vörutegundir falla á fleiri en einn hinna þriggja aðal-
flokka, auk þess sem þær geta talizt til tveggja eða fleiri undirflokka hvers
aðalflokks. í stað þess að skipta innflutningi hverrar slíkrar vörutegundar
eftir notkun hennar — en það er óframkvæmanlegt — hefur hér verið
farin sú leið að skipa slíkum vörum þar í flokk, sem notkun þeirra er
talin mest. Eldsneytisvörur (olíur, benzín og kol) hafa hér sérstöðu, bæði
vegna þýðingar þeirra og margbreytni í notkun, og var sú leið farin að
setja þær í sérstakan lið í rekstrarvöruflokknum. í því sambandi verður
að hafa í huga, að heildarverðmæti neyzluvöruflokksins er í yfirlitinu
talið of lágt svarandi til þess hluta eldsneytisinnflutningsins, sem fer til
neyzlu (t. d. benzín á fólksbíla, olía til húsakyndingar). Sömuleiðis má
halda því fram, að t. d. fólksbílar, sem taldir eru með fjárfestingarvörum,
ættu frekar að vera í neyzluvöruflokknum, ekki siður en aðrar varanlegar
neyzluvörur þar, svo sem rafmagnsheimilistæki. Þessi dæmi eru tekin hér