Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1965, Síða 9
Verzlunarskýrslur 1964
7*
unarskýrslum eingöngu talinn á cif-verði, þ. e. á verði vöru í útflutnings-
landinu (fob-verð), að viðbættum kostnaði, sem á fellur, þar til hún er
affermd á ákvörðunarstað. Er hér aðallega um að ræða flutningsgjald og
vátryggingu. Síðan í Verzlunarskýrslum 1951 hefur innflutningurinn
einnig verið gefinn upp á fob-verði i nokkrum töflum. Svo er í töflum I
og IV í Verzlunarskýrslum 1964 og í 2. yfirliti í inngangi. — 1 þeim
kafla inngangsins, sem fjallar sérstaklega um innfluttar vörur, verður
vikið nánar að fob-verðmæti innflutningsins og mismun þess og cif-
verðmætisins.
Innflutningsskýrsliirnar eru gerðar eftir tollskýrslum innflytjenda,
sem Hagstofan fær samrit af. Skýrslutöku skipa og flugvéla, sem fluttar
eru til landsins, er þó öðru vísi háttað. Skýrslu um slíkan innflutning fær
Hagstofan yfirleitt ekki frá tollyfirvöldunum, heldur beint frá hlutað-
eigandi innflytjendum. Upplýsa þeir, hver sé byggingarkostnaður eða
kaupverð hvers skips eða flugvélar. Þar við leggst áætlaður heimflutn-
ingskostnaður og kemur þá fram verðmætið, sem tekið er í verzlunar-
skýrslur. Skipainnflutningurinn hefur frá og með árinu 1949 verið tekinn
á skýrslu hálfsárslega, þ. e. með innflutningi júnímánaðar og desember-
mánaðar, og sömu reglu hefur verið fylgt um flugvélainnflutninginn. Þó
var skipainnflutningurinn í janúar og febrúar 1960 talinn með innflutn-
ingi febrúarmánaðar, þar sem rétt þótti að reikna hann á því gengi, sem
gilti fyrir 22. febr. 1960, enda voru allar tölur verzlunarskýrslna frá 1. marz
1960 miðaðar við það gengi, sem kom til framkvæmda 22. febrúar. — í
kaflanum um innfluttar vörur síðar í innganginum er gerð nánari grein
fyrir skipainnflutningnum á árinu 1964. — Útflutt skip hafa að jafnaði
verið telcin á skýrslu hálfsárslega. í kaflanum um útfluttar vörur síðar
í innganginum er gerð grein fyrir sölu skipa úr landi 1964.
Útflutningurinn er í verzlunarskýrslum talinn á söluverði afurða
með umbúðum, fluttra um borð í skip (fob) á þeirri höfn, er þær fyrst
fara frá. Er hér yfirleitt miðað við verðið samkvæmt sölureikningi útflytj-
anda. Sé um að ræða greiðslu umboðslauna til erlends aðila og það heimil-
að í útflutningsleyfinu, er upphæð þeirra dregin frá, til þess að hreint fob-
verð komi fram. — Fob-verð vöru, sem seld er lir landi með cif-skilmálum,
er fundið með því að draga frá cif-verðmætinu flutningskostnað og trygg-
ingu, ásamt umboðslaunum, ef nokkur eru. — Nettóverðið til útflytjand-
ans er fob-verðið samkvæmt verzlunarskýrslum að frádregnum gjöldum á
útflutningi. Hafa þau haldizt óbreytt frá því, sem var á árinu 1962, og er
gerð grein fyrir þeim á bls. 7* í Verzlunarskýrslum 1962.
Við ákvörðun á útflutningsverðmæti ísfisks í verzlunarskýrslum
gilda sérstakar reglur, sem gerð er grein fyrir í kaflanum um útfluttar
vörur síðar í inngangi þessum.
Allmikið er um það, að úflutningsverðmæti sé áætlað í skýrslunum,
þ. e. að reiknað sé með því verðmæti, sem tilgreint er í útflutningsleyfi
útflutningsdeildar viðskiptamálaráðuneytisins. Fer svo, þegar látið er