Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1965, Side 10
8*
Verzlunarskýrslur 1964
uppi af hálfu útflytjanda, að varan sé flutt út óseld. Eru ekki tök á að
lagfæra þetta síðar, og er hér um að ræða ónákvæmni, sem getur mun-
að miklu.
Það segir sig sjálft, að í verzlunarskýrslur koma aðeins vörur, sem
afgreiddar eru af tollyfirvöldum á venjulegan hátt. Kaup íslenzkra skipa
og flugvéla erlendis á vörum til eigin nota koma að sjálfsögðu ekki í
verzlunarskýrslum, og ef slíkar vörur eru fluttar inn í landið, koma þær
ekki á skýrslu, nema að svo miklu leyti sem þær kunna að vera teknar
til tollmeðferðar.
Þyngd útfluttrar vöru hefur ávallt verið tekin nettó í verzlunar-
skýrslur. Innfluttar vörur voru taldar nettó fram að 1951, en frá og með
því ári voru þær taldar brúttó, þ. e. með ytri umbúðum. Ástæða þessarar
breytingar var aðallega sú, að illa gekk að fá nettóþyngdina upp gefna
í tollskýrslum, þar sem hún skipti ekki máli við tollafgreiðslu. Hins
vegar var brúttóþyngd yfirleitt tilgreind í tollskýrslu, vegna þess að vöru-
magnstollur var miðaður við hana. Með nýjum tollskrárlögum, sem komu
til framkvæmda 1. maí 1963, var vörumagnstollur felldur niður á öllum
vörum, nema á salti og eldsneyti, þar sem þýðingarlaus vörumagnstollur
var látinn haldast óbreyttur, og á kartöflur og á lýstar og framkallaðar
kvikmyndafilmur var lagður vörumagnstollur í stað verðtolls. — Vegna
ýmissa annmarka á að miða innflutning við brúttóþyngd, var ákveðið að
reikna þyngd hans nettó frá og með 1. maí 1963, er nýja tollskráin kom
til framkvæmda. 1 því sambandi er rétt að geta þess, að í verzlunarskýrsl-
um flestra landa er innflutningur miðaður við nettóþyngd.
Hinn 14. apríl 1964 hækkuðu farmgjöld Eimskipafélags íslands sem
hér segir í aðaldráttum: Á matvöru og fóðurvöru í sekkjum frá Ameríku
103% — á höfrum og alfaalfamjöli þó 64—70%. Á smjörlíkisolíum frá
Ameríku 114%. Á matvöru og fóðurvöru í sekkjum frá Evrópu 72% —
á alfaalfamjöli þó 114%, sykri 18% og á smjörlíkisolíum 47%. Önnur
stykkjavörufaringjöld héldust óbreytt.
Gjaldeyrisgengi. í árslok 1964 var skráð gengi Landsbankans á erlend-
um gjaldeyri sem hér segir (í kr. á tiltekna einingu):
Eining Kaup Sala
Sterlingspund 1 119,85 120,15
handaríkjadollar 1 42,95 43,06
Kanadadollar 1 40,00 40,11
Dönsk króna 100 620,65 622,25
Norsk króna 100 600,53 602,07
Sænsk króna 100 835,70 837,85
Finnskt mark 100 1 338,64 1 342,06
Franskur nýfranki 100 876,18 878,42
Belgískur franki 100 86,47 86,69
Svissneskur franki 100 994,50 997,05
Gyllini 100 1 193,54 1 198,60