Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1965, Qupperneq 21
Verzlunarskýrslur 1964
19*
10 021 þús. kr. Með innflutningi júnímánaðar eru taldar 4 smáflugvélar,
að innflutningsverðmæti 5,9 millj. kr., auk Leifs Eiríkssonar og Sólfaxa,
hinar flugvélarnar eru taldar með innflutningi desembermánaðar.
í 3. yfirliti er sýnd árleg neyzla nokkurra vara á hverju 5 ára skeiði,
síðan um 1880 og á hverju ári síðustu 5 árin, bæði í heild og á hvern
einstakling. Að því er snertir kaffi, sykur og tóbak er miðað við innflutt
magn og talið, að það jafngildi neyzlunni. Sama er að segja um öl framan
af þessu timabili, en eftir að komið var á fót reglulegri ölframleiðslu í
landinu er hér miðað við innlent framleiðslumagn. — Vert er að hafa
það í huga, að innflutt vörumagn segir ekki rétt til um neyzlumagn, nema
birgðir séu hinar sömu við byrjun og lok viðkomandi árs, en þar getur
munað miklu.
Tölurnar, er sýna áfengisneijzluna, þarfnast sérstakra skýringa. Árin
1881—1935 er miðað við innflutt áfengismagn og talið, að það jafngildi
neyzlunni. Þá er og allur innfluttur vínandi talinn áfengisneyzla, þó að
hluti hans hafi farið til annarra nota. Upplýsingar eru ekki fyrir hendi
um, hve stór sá hluti hefur verið, en hins vegar má gera ráð fyrir, að
meginhluti vínandans hafi á þessu tímabili farið til drykkjar. — Frá
árinu 1935 er miðað við sölu Áfengisverzlunar ríkisins á sterkum drykkjum
og léttum vínum og hún talin jafngilda neyzlunni, en vínandainnflutning-
urinn er ekki meðtalinn, enda er sá hluti hans, sem farið hefir til fram-
leiðslu brennivins og ákavítis hjá Áfengisverzluninni, talinn i sölu hennar
á brenndum drykkjum. Þó að eitthvað af vínandainnflutningi hennar
kunni að hafa farið til neyzlu þar fram yfir, er ekki reiknað með því í
töflunni, þar sem ógerlegt er að áætla, hversu mikið það magn muni vera.
Hins vegar má gera ráð fyrir, að það sé mjög litið hlutfallslega. — Inn-
flutningur vínanda síðan 1935 er sýndur í töflunni, en hafður í sviga, þar
sem hann er ekki með í neyzlunni. — Það skal tekið fram, að áfengi,
sem áhafnir skipa og flugvéla og farþegar frá útlöndum taka með sér inn
í landið, er ekki talið í þeim tölum, sem hér eru birtar, en þar mun vera
um að ræða mikið magn. Þetta ásamt öðru, sem hér kemur til greina, gerir
það að verkum, að tölur 3. yfirlits um áfengisneyzluna eru ótraustar, eink-
um seinni árin. — Mannfjöldatalan, sem notuð er til þess að finna neyzl-
una hvert ár, er meðaltal fólksfjölda í ársbyrjun og árslok. Fólkstala fyrir
1964, sem við er miðað, er 188 571.
Hluti kaffibætis af kaffineyzlunni samkvæmt yfirlitinu var sem hér
segir siðustu 5 árin ("100 kg): 1960: 1 491, 1961: 1 129, 1962: 1 145, 1963:
938, 1964: 896.
4. yfirlit sýnir verðmæti innfluttrar vöru eftir mánuðum og vöru-
deildum. Skip og flugvélar er tekið á skýrslu hálfsárslega með innflutn-
ingi júní og desember. Fyrr í þessum kafla var gerð grein fyrir, hvernig
innflutningur skipa og flugvéla 1964 skiptist á árið.
Fyrir árin 1935—50, hvert um sig, var í inngangi Verzlunarskýrslna
tafla, er sýndi skiptingu innflutnings eftir notlcun og vinnslustigi. Var