Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1965, Síða 25
Verzlunarskýrslur 1964
23*
vörunum þar skipt í 2 aðalflokka, framleiðsluvörur og neyzluvörur, og
innan hvers flokks var annars vegar frekari sundurgreining eftir notkun
vara og hins vegar eftir vinnslustigi. Tafla þessi, sem var gerð eftir fyrir-
mynd hagstofu Þjóðabandalagsins gamla, var felld úr Verzlunarskýrslum
frá og með árinu 1951, þar eð hún taldist gagnslítil og jafnvel villandi.
Síðan var ekki birt nein slik skipting innflutnings eftir notkun vara fyrr en
í Verzlunarskýrslum 1959. 1 5. yfirliti er sýnd skipting innflutnings 1964
eftir notkun vara og auk þess eftir innkaupasvæðum. — Flokkun inn-
flutningsins eftir notkun er miklum vandkvæðum bundin, fyrst og fremst
vegna þess að sumar vörutegundir falla á fleiri en einn hinna þriggja aðal-
flokka, auk þess sem þær geta talizt til tveggja eða fleiri undirflokka hvers
aðalflokks. í stað þess að skipta innflutningi hverrar slíkrar vörutegundar
eftir notkun hennar — en það er óframkvæmanlegt — hefur hér verið
farin sú leið að skipa slíkum vörum þar í flokk, sem notkun þeirra er
talin mest. Eldsneytisvörur (oliur, benzin og kol) hafa hér sérstöðu, bæði
vegna þýðingar þeirra og margbreytni í notkun, og var sú leið farin að
setja þær í sérstakan lið í rekstrarvöruflokknum. í því sambandi verður
að hafa í huga, að heildarverðmæti neyzluvöruflokksins er í yfirlitinu
talið of lágt svarandi til þess hluta eldsneytisinnflutningsins, sem fer til
neyzlu (t. d. benzín á fólksbila, olía lil húsakyndingar). Sömuleiðis má
halda því fram, að t. d. fólksbílar, sem taldir eru með fjárfestingarvörum,
ættu frekar að vera í neyzluvöruflokknum, ekki síður en aðrar varanlegar
neyzluvörur þar, svo sem rafmagnsheimilistæki. Þessi dæmi eru tekin hér
aðeins til þess að skýra yfirlitið um flokkun innflutningsins og stuðla
að því, að menn noti niðurstöður þess með varfærni. -— Rétt er að geta
þess sérstaklega, að allar hrávörur og efnivörur til innlendrar neyzluvöru-
framleiðslu eru í 5. yfirliti taldar neyzluvörur, en eklci rekstrarvörur.
Innflutningur varnarliðseigna. Við Iok heimsstyrjaldarinnar var sett
á fót nefnd, er keypti fyrir hönd ríkissjóðs ýmsar eignir setuliðanna
tveggja, sem þau tóku ekki með sér, þegar þau fóru af landi burt. Nefndin
sá og um sölu slíkra eigna til innlendra aðila. Árið 1951 hófust sams konar
kaup af bandaríska liðinu, sem kom til landsins samkvæmt varnarsamn-
ingi íslands og Bandarikjanna í maí 1951. — Vörur þær, sem Sölunefnd
varnarliðseigna kaupir af varnarliðinu, fá ekki tollmeðferð eins og allar
aðrar innfluttar vörur, og er þar af leiðandi ógerlegt að telja þær með
innflutningi í verzlunarskýrslum. Rétt þykir að gera hér nokkra grein
fyrir þessum innflutningi, og fer hér á eftir yfirlit um heildarupphæð
þessaar kaupa hvert áranna 1951—64 (í þús. kr.):
1951 204
1952 77
1953 664
1954 1 731
1955 2 045
1956 2 439
1957 2 401
1958 5113
1959 9 797
196016 825
1961 8 029
1962 4 473
1963 6 335
1964 4 141