Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1966, Síða 27
Verzlunarskýrslur 1965
25*
tolls 14% af brúttósöluverði og 50 au. á hvert kg landaðs fisks. Var þetta
óbreytt frá því, sem hafði verið frá og með ágústbyrjun 1961. Ákvörðun
fob-verðs á ísfiski til Vestur-Þýzkalands 1964 hefur verið sem hér segir síð-
an í ársbyrjun 1962 (sjá nánar febrúarblað Hagtíðinda 1962): Frádráttur
vegna sölukostnaðar og innflutningstolls á ísaðri síld 15% af brúttósölu-
verði 15. febrúar til 14. júní, en 20,22% á öðrum tíma árs. Sams konar frá-
dráttur á öðrum isfiski 25% 1. janúar til 31. júlí, en 18,915% á öðrum tíma
árs. Reiknað flutningsgjald fyrir isfisk til Vestur-Þýzkalands var 930 kr. á
tonn. í Vestur-Þýzkalandi er leiga á löndunartækjum og annar beinn lönd-
unarkostnaður lægri en í Bretlandi, svo að ekki þykir ástæða til að gera
sérstakan frádrátt fyrir honum. Hér fer á eftir sundurgreining á verð-
mæti isfisksútflutningsins 1965 (i þús. kr.):
Danmörk Bretland V-Þýzkaland Samtal*
FOB-verð skv. verzlunarskýrslum.................. 292 112 235 94 717 207 244
Reiknaður flutningskostnaður...................... 24 13511 15 694 29 229
Áœtlaður sölukostnaður og tollur .................. - 30 523 30 775 61 298
Brúttósölur ..................................... 316 156 269 141 186 297 771
ísvarin síld er meðtalin í þessum tölum, en liins vegar er hér aðeins
talinn ísfiskur fluttur út ineð íslenzkum fiskiskipum. ísfiskur fluttur
með íslenzkum og erlendum vöruflutningaskipum og flugvélum er ekki
meðtalinn. Frystur fiskur fluttur til útlanda með ísfiskskipum er ekki
meðtalinn.
Það skal tekið fram, að togarar, sem selja ísfisk erlendis, nota stóran
hluta af andvirðinu til kaupa á rekstrarvörum, vistum o. fl., svo og
til greiðslu á skipshafnarpeningum, en slíkt er ekki innifalið í áður nefnd-
um hundraðshluta, sem dreginn er frá brúttósölum, þegar fob-verðið er
reiknað út. Skortir þvi mjög mikið á, að gjaldeyri svarandi til fob-verðs
sé skilað til bankanna.
Á árinu 1965 voru 3 skip seld úr landi fyrir samtals 12,4 millj. kr.:
2 togarar, Apríl og Þorsteinn Ingólfsson fyrir samanlagt 3,6 millj. kr.
og vöruflutningaskipið Reykjafoss fyrir 8,8 millj. kr. Öll voru þau seld
til Grikklands. Skipin voru 15—17 ára gömul.
6. yfirlit sýnir, hve mikilli verðupphæð útflutta varan hefur numið
síðan um aldamót. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir því, frá hvaða at-
vinnuvegi þær stafa. Enn fremur er sýnt með hlutfallstölum, hve mikill
hluti verðmætisins stafar árlega frá hverjum atvinnuvegi.
d