Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1968, Blaðsíða 10
8*
Verzlunarskýrslur 1967
sem hér seg'ir: 1%% af fob-verði annarra sjávarafurða en þeirra, sem
koma frá hvalveiðum og selveiðum, til aflatryggingarsjóðs samkvæmt
lögum nr. 77/1962. 0,15% til ferskfiskmats samkvæmt lögum nr. 42/1960.
2% af saltsíld til Síldarútvegsnefndar og auk þess matsgjald, 50 au. á
tunnu, ef síldin er metin.
Við ákvörðun á útflutningsverðmæti isfisks i verzlunarskýrslum
gilda sérstakar reglur, sem gerð er grein fyrir í kaflanum um útfluttar
vörur síðar í inngangi þessum.
Allmikið er um það, að útflutningsverðmæti sé áætlað í skýrslunum,
þ. e. að reiknað sé með því verðmæti, sem tilgreint er í útflutningsleyfi
útflutningsdeildar viðskiptamálaráðuneytisins. Fer svo, þegar látið er
uppi af hálfu útflytjanda, að varan sé flutt út óseld. Eru ekki tök á að
lagfæra þetta síðar, og er hér um að ræða ónákvæmni, sem getur mun-
að miklu.
Það segir sig sjálft, að í verzlunarskýrslur koma aðeins vörur, sem
afgreiddar eru af tollyfirvöldum á venjulegan hátt. Kaup islenzkra skipa
og flugvéla erlendis á vörum til eigin nota koma að sjálfsögðu ekki í
verzlunarskýrslum, og ef slíkar vörur eru fluttar inn í Iandið, koma þær
ekki á skýrslu, nema að svo miklu leyti sem þær kunna að vera teknar
til tollmeðferðar.
Þyngd útfluttrar vöru hefur ávallt verið tekin nettó í verzlunar-
skýrslur. Innfluttar vörur voru taldar nettó fram að 1951, en frá og með
þvi ári voru þær taldar brúttó, þ. e. með ytri umbúðum. Ástæða þessarar
breytingar var aðallega sú, að illa gekk að fá nettóþyngdina upp gefna
i tollskýrslum, þar sem hún skipti ekki máli við tollafgreiðslu. Hins
vegar var brúttóþyngd yfirleitt tilgreind í tollskýrslu, vegna þess að vöru-
magnstollur var miðaður við hana. Með nýjum tollskrárlögum, sem komu
til framkvæmda 1. maí 1963, var vörumagnstollur felldur niður á öllum
vörum, nema á salti og eldsneyti, þar sem þýðingarlaus vörumagnstollur
var látinn haldast óbreyttur, og á kartöflur og á lýstar og framkallaðar
kvikmyndafilmur var lagður vörumagnstollur í stað verðtolls. — Vegna
ýmissa annmarka á að miða innflutning við brúttóþyngd, var ákveðið að
reikna þyngd hans nettó frá og með 1. maí 1963, er nýja tollskráin kom
til framkvæmda. I því sambandi er rétt að geta þess, að í verzlunarskýrsl-
um flestra landa er innflutningur miðaður við nettóþyngd.
Farmgjöld Eimskipafélags íslands fyrir vörur fluttar frá útlöndum
hækkuðu á árinu vegna gengislækkunar islenzkrar krónu. Frá 18. nóv-
ember til 19. desember 1967 giltu gömlu taxtarnir með hækkun sem
svaraði 60% af hækkun þeirri, er varð á skráðu gengi viðkomandi erlends
gjaldeyris. Frá 20. des. 1967 hækkuðu farmgjöldin sem svaraði allri
hækkun erlends gjaldeyris. Þýddi það um 32,5% hækkun farmgjalda
frá því, sem var fyrir 18. nóvember 1967, nema á vörum fluttum frá
Danmörku 22,9% og frá Bretlandi 15,2%.
Gjaldeyrisgengi. Hinn 18. nóvember 1967 var gengi sterlingspunds
gagnvart bandarískum dollar lækkað sem svarar 14,3%. 1 kjölfar þess