Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1975, Blaðsíða 19
Verslunarskýrslur 1973
17
3. Innfluttar vörur.
Imports.
Tafla IV (bls. 28—191) sýnir innflutning 1973 í hverju niiraeri toll-
skrárinnar og skiptingu hans á lönd. Sýnd er þyngd í tonnum (auk þess
stykkja- eða rúmmetratala nolckurra vörutegunda), fob-verð og cif-verð.
Taflan er í tollskrárnúmeraröð og vísast í því sambandi til skýringa í 1.
kafla þessa inngangs og við upphaf töflu IV á bls. 28.
í töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti innflutningsins fob
og cif eftir vörudeildum hinnar endurskoðuðu vöruskrár liagstofu Sam-
einuðu þjóðanna. í töflu II á bls. 4—19 er sýnt verðmæti innflutningsins
eftir vöruflokkum sömu skrár með skiptingu á lönd.
í sambandi við fob-verðstölur innflutnings skal þetta tekið fram:
Mismunur cif-verðs og fob-verðs er flutningskostnaður vörunnar frá út-
flutningsstaðnum ásamt vátryggingaiðgjaldi. Flulningskostnaður sá, sem
hér um ræðir, er ekki einvörðungu farmgjöld fyrir flutning á vörum frá
erlendri útflutningshöfn til íslands, heldur er í sumum tilfellum líka um
að ræða farmgjöld með járnbrautum eða skipum frá sölustað til þeirrar
útflutningshafnar, þar sem vöru er siðast útskipað á leið til íslands. Kem-
ur þá Ifka til umhleðslukostnaður o. fl. Fer þetta eftir því, við hvaða stað
eða höfn afhending vörunnar er miðuð. Eitthvað kveður að því, að vörur
séu seldar cif íslenska innflutningshöfn. í slíkum tilfellum er tilsvar-
andi fob-verð áætlað af tollyfirvöldum.
Frá og með Verslunarskýrslum 1966 Jiarf innflutningur frá landi að
nema minnst 50 þús. kr„ til Jiess að hann sé tilgreindur sérstaklega i
töflu IV — nema um sé að ræða eitt land, sem svo er ástatt um.
2. yfirlit sýnir verðmæti innflutningsvaranna bæði cif og fob eftir
vörudeildnm. Ef skip og flugvélar er undanskilið nemur fob-verðmæti
innflutnings 1973 alls 25 098 760 þús kr„ en cif-verðið 27 941 979 þús.
kr. Fob-verðmæti innílutnings 1973 að undanskildum skipum og flug-
vélum var þannig 89,8% af cif-verðmætinu. — Ef litið er á einstaka
flokka, sést, að hlutfallið milli fob-verðs og cif-verðs er mjög mismun-
andi, og enn meiri verða frávikin til heggja handa, ef litið er á ein-
stakar vörutegundir.
Til Jiess að fá vitneskju um, hvernig mismunur cif- og fob-verðs
skiptist á vátryggingu og flutningskostnað, er tryggingaiðgjald áætlað
1% af cif-verði flestra vara, nema á sekkjavöru i vörudeildum 04,06,08,
og 56, þar er tryggingaiðgjald reiknað 0,83% af cifverði. Svo er
einnig á kolum (32). Tryggingaiðgjald á timbri i vörudeildum 24 og 63
er reiknað 0,94% af cif-verði, á salti (i 27. vörudeild) 0,55%, og á olium
og benzíni (í 33. vörudeild) 0,3%. Á bifreiðum í 73. vörudeild er trygg-
ingaiðgjald reiknað 2,75% af cif-verði. — Að svo miklu leyti sem trygg-
ingaiðgjald kann að vera of hátt eða of lágt í 2. yfirliti, er flulningskostn-
aður o. fl. talið þar tilsvarandi of lágt eða of hátt.
Innflutningsverðmæti skipa, sem flutt voru inn 1973 (tollskrárnr.
89.01.22, 23 og 24, 89.03.00) nam alls 3 817 984 kr„ og fer hér á eftir
skrá yfir þau:
a