Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1975, Blaðsíða 47
Verslunarskýrslur 1973
45*
að notkunarland vöru sé annað en landið, þar sem kaupandi er. Komi
notkunarland ekki fram á úti'lutningsskýrslu, er sölulandið tekið á
skýrslu, nema ástæða sé til að ætla, að endanlegt móttökuland sé annað
en sölulandið. Er þá reynt að bæta úr þessu. Fyrir kemur — eins og við
er að búast — að á skýrslu sé tekið söluland í stað notkunarlands, enda
er útflytjanda sjálfum stundum ókunnugt um notkunarland, og auk þess
kemur hér sitt hvað annað til.
6. Viðskipti við útlönd eftir tollafgreiðslustöðum.
External trade by places of customs clearance.
Töflu VI á bls. 207 er ællað að sýna verð innfluttrar og útfluttrar vöru
eftir tollafgreiðslustöðum. í því sambandi skal tekið fram, að tölur þess-
arar töfiu eru að ýmsu leyti óáreiðanlegar vegna annmarka, sem erfitt er
að bæta úr. T. d. kveður talsvert að því, að farmar og einstakar vöru-
sendingar séu tollafgreiddar — og þar með taldar fluttar inn — i öðru toll-
umdæmi en þar, sein innflytjandi er búsettur. Eins og vænta má, er það
aðallega i Reykjavík, sem tollafgreiddar eru vörur, sem fluttar eru inn
af innflytjendum annars staðar á landinu.
Taflan gefur enn fremur að sumu leyti ófullkomna hugmvnd um
skiptingu útflutningsins á afgreiðslustaði, þar sem það er lalsvert mikið
á reiki, hvaðan útflutningurinn er tilkynntur. Stafar þetta einkum af þvi,
að sölusambönd, sem hafa aðsetur í Reykjavík, annast sölu og útflutning
á sumum belstu útflutningsvörunum, þannig að útflutningsvörur utan af
landi eru afgreiddar í Reykjavík og oft ekki tilkynntar Hagstofunni sem
útflutningur frá viðkomandi afskipunarhöfn.
Eigin afli fiskislcipa, seldur af þeim sjálfum i erlendri höfn (aðal-
lega ísuð síld og annar ísvarinn fiskur) var áður fyrr í töflu VI allur
talinn fluttur út frá Reykjavík. Á þessu voru augljósir annmarkar, sem
aukast með vaxandi ísfiskútflutningi, og því var þessu breytt frá og með
Verslunarskýrslum 1970. Þessi útflutningur er nú i sérstökum lið í
töflu VI.
Tafla VI sýnir verðmæti innflutnings í pósti. Mjög lítið er um út-
flutning í pósti og því nær eingöngu frá Reykjavík. -— Póstbögglar, sem
sendir eru að gjöf, livort heldur hingað til lands eða héðan frá einstakling-
um, eru ekki teknir með í verslunarskýrslur:
í töflu VI kemur fram cif-verðmæti vara, sem fóru um tollvöru-
geymsluna i Reykjavík. Tollvörugeymslan h.f., sem fékk heimild ráð-
herra til að reka almenna tollvörugeymslu i Reykjavik (sbr. lög nr.
47/1960 og reglugerð nr. 56/1961), hóf starfsemi i ágúst 1964. Aðalhlut-
verk hennar er að skapa innflytjendum aðstöðu til að fá, að vissu marki,
einstakar vörusendingar tollafgreiddar smám saman eftir hentugleikum.
Að sjálfsögðu eru það aðallega tiltölulega fyrirferðarlitlar vörur, og vörur
með háum tolli, sem færðar eru í tollvörugevmslu. — Það skal tekið fram,