Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1976, Síða 8
6*
Verslunarskýrslur 1975
í annarri skránni ætti sér „mótnúmer“ með nákvæmlega sama innihaldi
í hinni. Dró þetta úr notagildi skrárinnar og hagskýrslugerð á þessu sviði
torveldaðist, en þetta var lagfært, með því að bætt var áður nefndum
rúmlega 200 undirliðum við Brussel-skrána, jafnframt því sem ýmsar
breytingar voru gerðar á tölfræðilegu vöruskránni. Komust þessar tvær
skrár þar með í fullt samræmi hvor við aðra. Tala vörunúmera í Briissel-
skránni varð með þessu rúmlega 1300, en þeim hefur síðar fjölgað. I ís-
lensku tollskránni eru nú um 2500 vörunúmer, enda eru mörg númer al-
þjóðlegu skrárinnar með 2 eða fleiri undirliði í íslensku tollskránni.
Hin endurskoðaða vöruskrá hagstofu Sameinuðu þjóðanna er þannig
uppbyggð: í 625 undirflokkum („subgroups“, táknaðir xxx.x) á hver vara
í milliríkjaviðskiptum sinn stað. Af þessum undirflokkum eru 257 skiptir
þannig að 944 númer („subsidiary headings“, táknuð xxx.xx) bætast við
625-257 númer, og verður heildartala vörunúmera þá 1312, eins og
áður segir. Hinir 625 undirflokkar skiptast á 177 vöruflokka („groups“,
táknaðir xxx), og þeir ganga upp í 56 vörudeildir („divisions“, táknaðar
xx), sem að lokum mynda vörubálka („sections“, táknaðir x). —- Hér eru
tölur flokka og vörunúmera tilgreindar eins og þær voru upphaflega, en
áorðnar breytingar hafa ekki raskað uppbyggingu þessarar vöruskrár í
aðalatriðum.
Verslunarskýrslur fyrir árið 1975 eru með sömu tilhögun og versl-
unarskýrslur undanfarinna ára.
Aðaltafla innflutnings, tafla IV, er í tollskrárröð. Aðaltafla útflutn-
ings, tafla V, var frá og með Verslunarskýrslum 1970 sett í röð nýrrar
vöruskrár Hagstofunnar fyrir útflutning, sem tekin var i notkun i ársbyrj-
un 1970. Töflu III var breytt til samræmis við þetta, og eru þvi útfluttar
vörur í henni í sömu röð og í töflu V, en saman dregnar, þannig að
verðmætistölur svara til 2ja fyrstu stafa hinnar 6 stafa tákntölu hvers
vöruliðs í vöruskrá útflutnings. Hér visast að öðru leyti til liðs 3 í skýr-
ingum við töflu V, á bls. 209. — Að öðru leyti eru aðaltöflur að mestu
óbreyttar frá því, sem verið hefur.
Varðandi form og uppsetningu á aðaltöflum innflutnings (IV) og
útflutnings (V) vísast að öðru leyti til skýringa í upphafi hvorrar töflu.
Einkum er vísað til liða 3—5 i skýringum við töflu IV.
Cif-verð, fob-verð o. fl. Fram að 1951 var innflutningurinn i versl-
unarskýrslum eingöngu talinn á cif-verði, þ. e. á verði vöru í útflutnings-
landinu (fob-verð), að viðbættum kostnaði, sem á fellur, þar til hún er
affermd á ákvörðunarstað. Er hér aðallega um að ræða flutningsgjald og
vátryggingu. Síðan i Verslunarskýrslum 1951 hefur innflutningurinn
einnig verið gefinn upp á fob-verði í nokkrum töflum. Svo er nú i töfl-
um I og IV og i 2. yfirliti i inngangi. — 1 þeim kafla inngangsins, sem
fjallar sérstaklega um innfluttar vörur, verður vikið nánar að fob-verð-
mæti innflutningsins og mismun þess og cif-verðmætisins.