Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1976, Síða 9
V erslunarskýrslur 1975
7*
Innflutningstölur verslunarskýrslna eru afleiðing umreiknings í ís-
lenska mynt á sölugengi, en útflutningstölur eru aftur á móti miðaðar
við kaupgengi.
Innflutmngsskýrslurnar eru gerðar eftir tollskýrslum innflytjenda,
sem Hagstofan fær samrit af. Skýrslutöku skipa og flugvéla, sem fluttar
eru til landsins, er þó öðru vísi háttað. Skýrslu um slíkan innflutning fær
Hagstofan yfirleitt ekki frá tollyfirvöldunum, heldur beint frá hlutað-
eigandi innflytjendum. Upplýsa þeir, hver sé byggingarkostnaður eða
kaupverð hvers skips eða flugvélar. Þar við leggst áætlaður heimflutn-
ingskostnaður og kemur þá fram verðmætið, sem tekið er í verslunar-
skýrslur. Skipainnflutningurinn hefur frá og með árinu 1949 verið tek-
inn á skýrslu hálfsárslega, þ. e. með innflutningi júnímánaðar og des-
embermánaðar, nema þegar sérstök ástæða hefur verið til annars, i sam-
bandi við gengisbreytingar. Sömu reglu hefur verið fylgt um flugvélainn-
flutninginn. — 1 kaflanum um innfluttar vörur síðar í innganginum er
gerð nánari grein fyrir innflutningi flugvéla og skipa 1975. — Útflutt
skip hafa að jafnaði verið tekin á skýrslu hálfsárslega. í kaflanum um
útfluttar vörur siðar í innganginum er gerð grein fyrir sölu skipa úr
landi 1975.
Útflutningurinn er í verslunarskýrslum talinn á söluverði afurða
með umbúðum, fluttra um borð í skip (fob) á þeirri höfn, er þær fyrst
fara frá. Er hér yfirleitt miðað við verðið samkvæmt sölureikningi útflytj-
anda. Sé um að ræða greiðslu umboðslauna til erlends aðila og það heimil-
að i útflutningsleyfinu, er upphæð þeirra dregin frá, til þess að hreint fob-
verð komi fram. — Fob-verð vöru, sem seld er úr landi með cif-skilmálum,
er fundið með þvi að draga frá cif-verðmætinu flutningskostnað og trygg-
ingu, ásamt umboðslaunum, ef nokkur eru. — Nettóverðið til útflytjand-
ans er fob-verðið samkvæmt verslunarskýrslum að frádregnum gjöldum á
útflutningi. í kjölfar gengisbreytingar í nóv. 1968 var útflutningsgjaldi
af sjávarafurðum breytt frá og með ársbyrjun 1969, sjá II. kafla laga nr.
79/1968, um ráðstafanir i sjávarútvegi vegna breytingar gengis islenskrar
krónu. Gjaldi þessu var enn breytt með bráðabirgðalögum nr. 73 1. júni
1970, með lögum nr. 4/1971, með lögum nr. 17/1972, með lögum nr.
19/1973, með bráðabirgðalögum nr. 87/1974, með lögum nr. 106/1974 og
með reglugerð nr. 51 19. febr. 1975. Visast til þessara laga og til nefndrar
reglugerðar. Þó skal á það bent, að í áður nefndum bráðabirgðalögum nr.
87/1974 og lögum nr. 106/1974 var ákveðið, að frá 1. september 1974 skyldi
innheimt sérstakt útflutningsgjald í olíusjóð fiskiskipa. Þetta sérstaka út-
flutningsgjald nam 4% af fob-verði flestra sjávarafurða, en 5,5% af fob-
verði saltfisks og skreiðar. Með lögum nr. 55 27. mai 1975 var þetta sér-
staka útflutningsgjald til oliusjóðs fiskiskipa hækkað, almenna gjaldið úr
4% í 8%, gjaldið af saltfiski úr 5,5% i 11,5% og af skreið úr 5,5% i 9,5%
af fob-verði. Þá var og ákveðið, að af mjöli og lýsi, framleiddu eftir 1.
október 1975, skyldi greitt 6% gjald til oliusjóðsins. Niðurlagðar og niður-