Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1976, Side 20
18
Verslunarskýrslur 1975
móts við hinar dýrari í innflutningnum nú heldur en áður. í útflutn-
ingnum er aftur á móti minni munur á vörumagnsvísitölu og þyngdar-
vísitölu.
1. yfirlit sýnir innflutning og útflutning i hverjum mánuði 1973—
1975 samkvæmt verslunarskýrslum, en síðar í innganginum er yfirlit um
mánaðarlega skiptingu innflutnings (3. kafli) og útflutnings (4. kafli).
1. yíirlit. Verð innflutnings og útflutnings eftir mánuðum.
Value of imporls and exports, by months.
Innflutningur imports Útflutningur exports
Mdnuðir months 1973 1974 1975 1973 1974 1975
Millj. kr. Millj. kr. Millj. kr. Millj. kr. Millj. kr. Millj. kr.
Janúar 1 726,9 2 560,3 3 618,1 943,0 2 027,0 2 307,6
Febrúar 1 848,8 2 730,0 3 101,3 1 368,4 1 463,9 1 293,9
Mars 1 957,3 3 158,4 7 573,4 2 864,1 2 418,9 3 325,7
Apríl 1 766,6 3 247,3 5 582,4 2 201,3 2 507,2 5 851,5
Maí 2 473,2 4 066,9 5 431,3 2 762,8 3 390,3 4 084,8
Júní 4 873,4 6 970,8 9 870,0 3 303,2 3 525,2 4 597,8
júií 2 376,5 3 954,2 7 290,8 2 296,8 2 910,3 5 790,8
Agúst 2 237,2 2 859,3 4 540,8 2 317,6 2 855,7 3 266,0
September 2 149,0 5 126,7 5 635,6 1 395,1 2 643,2 2 864,7
Október 3 204,7 6 020,0 6 645,7 2 759,1 2 841,9 5 264,6
Nóvember 2 527,5 4 213,9 6 788,1 1 695,1 2 818,0 3 749,5
Desember 4 669,6 7 646,9 8 986,3 2 113,3 3 478,2 5 038,1
Samtals 31 810,7 52 554,7 75 063,8 26 019,8 32 879,8 47 435,0
3. Innfluttar vörur.
Imports.
Tafla IV (bls. 28—208) sýnir innflutning 1975 í hverju númeri toll-
skrárinnar og skiptingu hans á lönd. Sýnd er þyngd í tonnum (auk þess
stykkja- eða rúmmetratala nokkurra vörutegunda), fob-verð og cif-verð.
Taflan er í tollskrárnúmeraröð og vísast í því sambandi til skýringa í 1.
kafla þessa inngangs og við upphaf töflu IV á bls. 28.
I töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti innflutningsins fob
og cif eftir vörudeildum hinnar endurskoðuðu vöruskrár hagstofu Sam-
einuðu þjóðanna. í töflu II á bls. 4—19 er sýnt verðmæti innflutningsins
eftir vöruflokkum sömu skrár með skiptingu á lönd.
1 sambandi við fob-verðstölur innflutnings skal þetta tekið fram:
Mismunur cif-verðs og fob-verðs er flutningskostnaður vörunnar frá út-
flutningsstaðnum ásamt vátryggingaiðgjaldi. Flutningskostnaður sá, sem
hér um ræðir, er ekki einvörðungu farmgjöld fyrir flutning á vörum frá