Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1976, Side 22
20*
Verslunarskýrslur 1975
Rúmlestir Innflutn.verð
brúttó þús. kr.
27. Haraldur Böðvarsson AK-12 frá Noregi, skuttogari.................... 300 377 995
28. Erlingur GK-6 frá Noregi, skuttogari ............................... 300 415 078
29. Rangá frá Vestur-Þýskalandi, farskip................................ 499 167 193
30. Bæjarfoss frá Noregi , farskip...................................... 241 178 165
31. Jökulfell frá Danmörku, farskip............................... 1 244 255 631
32. Álfsnes frá Noregi, farskip................................... 296 93 774
Samtals 11 647 5 723 452
í verði skipa eru talin öll tæki, sem talin eru hluti af þeim, svo og
heimsiglingarkostnaður. Fyrir getur komið, að tæki, sem talin eru í inn-
flutningsverði, séu keypt hér á landi og því tvítalin i innflutningi. —
14 fyrst talin skip eru talin með innflutningi júnímánaðar, en hin
með innflutningi desembermánaðar.
Á árinu 1975 voru fluttar inn 8 flugvélar að verðmæti alls 1 025 542
þús. kr. Með innflutningi júnímánaðar er talin 1 flugvél frá Danmörku að
verðmæti 1 688 þús. kr., 2 flugvélar frá Bandaríkjunum að verðmæti
14 994 þús. kr. og 1 þyrla frá Bandaríkjunum að verðmæti 9 272 þús. kr.
Með innflutningi desembermánaðar eru taldar 4 flugvélar frá Bandaríkj-
unum að verðmæti 999 588 þús. kr.
í 3. yfirliti er sýnd árleg neysla nokkurra vara á hverju 5 ára skeiði,
siðan um 1880 og á hverju ári siðustu árin, bæði í heild og á hvern
einstakling. Að því er snertir kaffi, sykur og tóbak er miðað við innflutt
magn og talið, að það jafngildi neyslunni. Sama er að segja um öl framan
af þessu tímabili, en eftir að komið var á fót reglulegri ölframleiðslu í
Iandinu er hér nriðað við innlent framleiðslumagn. — Vert er að hafa
það í huga, að innflutt vörumagn segir ekki rétt til um neyslumagn, nema
birgðir séu liinar sömu við byrjun og lok viðkomandi árs, en þar getur
munað miklu.
Tölurnar, er sýna áfengisneysluna, þarfnast sérstalvra skýringa. Árin
1881—1935 er miðað við innflutt áfengismagn og talið, að það jafngildi
neyslunni. Þá er og allur innfluttur vínandi talinn áfengisneysla, þó að
hluti hans hafi farið til annarra nota. Upplýsingar eru ekki fyrir hendi
um, hve stór sá hluti hefur verið, en hins vegar má gera ráð fyrir, að
meginhluti vínandans hafi á þessu tímabili farið til drykkjar. — Frá
árinu 1935 er miðað við sölu Áfengisverslunar ríkisins á sterkum drykkjum
og léttum vínum og hún talin jafngilda neyslunni, en vínandainnflutning-
urinn er eltki meðtalinn, enda er sá hluti hans, sem farið hefir til fram-
leiðslu sterkra drykkja hjá Áfengisversluninni, talinn í sölu hennar á
brenndum drykkjum. Þó að eitthvað af vínandainnflutningi hennar
kunni að hafa farið til neyslu þar fram yfir, er ekki reiknað með því í
töflunni, þar sem ógerlegt er að áætla, hversu mikið það magn muni vera.
Hins vegar má gera ráð fyrir, að það sé mjög lítið hlutfallslega. — Inn-
flutningur vínanda siðan 1935 er sýndur í töflunni, en hafður í sviga, þar
sem hann er ekki með i neyslunni. — Það skal tekið fram, að áfengi,