Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1976, Blaðsíða 39
Verslunarskýrslur 1975
37*
4. Útfluttar vörur.
Exports.
í töflu V (bls. 209—223) er sýndur útflutningur á hverri einstakri
vörutegund eftir löndum. Röð vörutegunda í þessari töflu fylgdi áður
vöruslcrá hagstofu Sameinuðu þjóðanna, en frá og með 1970 er röð vöru-
tegunda i þessari töflu samkvæmt sérstakri vöruskrá Hagstofunnar fyrir
útflutning. Um þetta visast til nánari skýringa í 1. kafla þessa inngangs og
við upphaf töflu V á bls. 209.
í töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti útflutningsins eftir
vörudeildum hinnar endurskoðuðu vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóð-
anna. I töflu III á bls. 20—27 eru verðmætistölur útflutnings svarandi
til 2ja fyrstu tölustafa hinnar 6 stafa tákntölu hvers vöruliðs í vöru-
skrá Hagstofunnar fyrir útflutning, með skiptingu á lönd.
í töflu VI á bls. 224 er verðmæti útflutnings skipt eftir vinnslu-
greinum hvert áranna 1971—75. Er hér um að ræða sérstaka flokkun
útflutnings, sem gerð hefur verið ársfjórðungslega frá og með ársbyrjun
1970. Hefur þessi flokkun verið birt i Hagtiðindum fyrir hvern ársfjórð-
ung, en i Verslunarskýrslum er hún aðeins birt fyrir heil ár.
Eins og greint var frá i 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn i
verslunarskýrslum talinn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um
borð í skip (fob) i þeirri höfn, er þær fara fvrst frá samkvæmt sölu-
reikningi útflytjanda. Þessi regla getur ekki átt við isfisk, sem islensk
skip selja i erlendum höfnum, og gilda því um verðákvörðun hans i
verslunarskýrslum sérstakar reglur. Til ársloka 1967 var, auk löndunar-
og sölukostnaðar o. fl., dregin frá brúttósöluandvirði isfisks ákveðin fjár-
hæð á tonn fyrir flutningskostnaði, en þessu var hætt frá og með árs-
byrjun 1968. Á árinu 1975 fylgdi Fiskifélag Islands þessum reglum við út-
reikning á fob-verði isfisks út frá brúttósöluandvirði hans, og var hann
tekinn í útflutningsskýrslur samkvæmt því (hundraðstölur tilgreindar
hér á eftir miðast allar við brúttósöluandvirði): Bretland: Á isaðri sild
aðeins 6% sölukostnaður. Á öðrurn ísfiski og frystum fiski: Lönd-
unarkostnaður 80 au. á kg, tollur 8,4%, sölukostnaður 3,0%, hafnar-
gjöld o. fl. 2,1%. V-Þýskaland: Á isaðri sild, háf og ufsa: Löndunarkostn-
aður kr. 1,73 á kg, tollur 2,5%, sölukostnaður 4,3%, hafnargjöld o. fl.
1,5%. Á isuðum karfa: Löndunarkostnaður kr. 1,73 á kg, tollur 9,8%,
sölukostnaður 2% og hafnargjöld o. fl. 5,3%. Á öðrum isfiski og frvstum
fiski: Löndunarkostnaður kr. 1,73 á kg, tollur 15%, sölukostnaður 2%
og hafnargjöld o. fl. 5,3%. Danmörk: Á öllum isfiski aðeins 6%
sölukostnaður. Færeyjar: Á ísaðri síld 6% sölukostnaður. Á öðrum
isfiski: Löndunarkostnaður kr. 0,80 á kg, sölukostnaður 3% og auk
þess hafnargjöld o. fl., sem voru 2000 kr. fyrir hverja ferð togara
og 1000 kr. fyrir bát. Belgía: Á ísfiski: Löndunarkostnaður kr.
3,43 á kg, tollur 11,6%, sölukostnaður 2,8% og hafnargjöld o. fl. 5,1%.
Hnlland: Á ísaðri sild og hákarli: Löndunarkostnaður kr. 1,73 á kg,