Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1976, Side 51
Verslunarskýrslur 1975
49
skiptingu útflutningsins á afgreiðslustaði, þar sem það er talsvert milcið
á reiki, hvaðan útflutningurinn er tilkynntur. Stafar þetta einkum af því,
að sölusambönd, sem hafa aðsetur í Reykjavík, annast sölu og útflutning
á sumum helstu útflutningsvörunum, þannig að útflutningsvörur utan af
landi eru afgreiddar í Reykjavík og oft ekki tilkynntar Hagstofunni sem
útflutningur frá viðkomandi afskipunarhöfn.
Eigin afli fiskiskipa, seldur af þeim sjálfum í erlendri höfn (aðal-
lega isuð síld og annar ísvarinn fiskur) var áður fyrr í töflu VII allur
talinn fluttur út frá Reykjavík. Á þessu voru augljósir annmarkar, sem
aukast með vaxandi ísfiskútflutningi, og því var þessu breytt frá og með
Verslunarskýrslum 1970. Þessi útflutningur er nú í sérstökum lið í
töflu VII.
Tafla VII sýnir verðmæti innflutnings í pósti. Mjög lítið er um út-
flutning í pósti og þvi nær eingöngu frá Reykjavík. — Póstbögglar, sem
sendir eru að gjöf, hvort heldur hingað til lands eða héðan frá einstakling-
um, eru ekki teknir með í verslunarslcýrslur.
í töflu VII kemur fram cif-verðmæti vara, sem fóru um tollvöru-
geymsluna í Reykjavík. Tollvörugeymslan h.f., sem fékk heimild ráð-
herra til að reka almenna tollvörugeymslu í Reykjavík (sbr. lög nr.
47/1960 og reglugerð nr. 56/1961), hóf starfsemi í ágúst 1964. Aðalhlut-
verk hennar er að skapa innflytjendum aðstöðu til að fá, að vissu marki,
einstakar vörusendingar tollafgreiddar smám saman eftir hentugleilcum.
Að sjálfsögðu eru það aðallega tiltölulega fyrirferðarlitlar vörur, og vörur
með háum tolli, sem færðar eru i tollvörugeymslu. — Það skal tekið fram,
að Hagstofan telur allar vörur í vörusendingu fluttar inn, þegar þær eru
færðar í tollvörugeymslu eftir komu þeirra til landsins i farmrými skips
eða flugvélar, eða í pósti, — en ekki þegar einstakir hlutar vörusendingar
eru endanlega tollafgreiddir og afhentir innflytjanda. — í júlí 1970 tók
til starfa Almenna tollvörugeymslan hf. á Akureyri. Vörur, sem fara um
hana, eru teknar í innflutningsskýrslur á sama hátt og vörur, sem fara
um tollvörugeymslu í Reykjavík.
7. Tollar og önnur gjöld á innflutningi.
Customs duties etc.
Hér skal gerð grein fyrir þeim gjöldum, sem voru á innfluttum
vörum á árinu 1975.
Með lögum nr. 6 5. mars 1974 tók ný tollskrá gildi, í stað tollskrár
í lögum nr. 1/1970. Á bls. 50* í inngangi Verslunarskýrslna 1974 var
gerð grein fyrir þeim breytingum, er fólust í þessari nýju tollskrá, og
vísast til þess. Á árinu 1975 urðu engar breytingar á tollskrárliðum, og
tollbreytingar 1975 voru því nær einvörðungu þær, er samkvæmt toll-
skrá 1974 slcyldu eiga sér stað frá ársbyrjun 1975, þ. e. árleg 10% lækk-
un á upphaflegum tolli á svo nefndum verndarvörum innfluttum frá
EFTA-löndum og EBE-löndum. Hliðstæð lækkun varð frá ársbyrjun
4