Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1976, Blaðsíða 288
Hagstofa Islands
gefur út eftirtalin rit:
1. Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar
eru birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Versl-
unarskýrslur, Búnaðarskýrslur, Sveitarsjóðareikningar, Mannfjöldaskýrslur,
Alþingiskosningar, Dómsmálaskýrslur o. fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna,
sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951 hafa komið
út 64 rit.— Áskrifendum Hagskýrslna er tilkynnt útkoma rita jafnóðum og þau
rit koma út, og þeir eru beðnir að senda greiðslu. Að henni móttekinni eru
rit send þeim í pósti.
2. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru birtar mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar
skýrslur um utanríkisverslun, fiskafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu
og aðrar vísitölur, og árlegar skýrslur um ýmisleg efni, sem ekki þykir taka
að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. — Árlegt áskriftargjald Hagtíðinda
er 600 kr.
3. Statistical Bulletin er sameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlahanka íslands. Það
er á ensku — enda ætlað útlendingum — og kemur út ársfjórðungslega (frá og
með 1963, þar áður var það mánaðarrit). Statistical Bulletin svipar til Hag-
tíðinda að því er varðar birtingarefni, en er yfirgripsminna. Erlendir áskrif-
endur þessa rits fá það ókeypis, en innanlands er árlegt áskriftargjald þess
350 kr.
4. íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur
næsthðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún
hefur að geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1975 var
1320 bls., og verð 9500 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað,
enda við það miðað, að hún seljist upp.
5. Skrár yfir fyrirtæki á íslandi 1969. Hér er birtur frumstofn hinnar nýju
heildarskrár Hagstofunnar yfir fyrirtæki á íslandi (þar eru með bændur,
útgerðarmenn, iðnmeistarar o. 8. frv.). í þessu riti eru þríþættar uppsláttar-
skrár, þar á meðal skrár, þar sem atvinnufyrirtækjum, stofnunum og félags-
samtökum er skipt í 165 starfsgreinar. — Rit þetta kostar 1600 kr. í bandi.
Viðaukar við rit þetta voru gefnir út. í júní 1976 kom út skrá yfir alla
aðila, sem hafa sérstakt auðkennisnúmer í fyrirtækjaskrá Hagstofunnar, þ. e.
annað númer en nafnnúmer samkvæmt þjóðskrá. Er hér um að ræða tæp-
lega 13.000 atvinnufyrirtæki, stofnanir og félagssamtök. Verð þessa rits er
1000 kr.
6. Skrár yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, lieimili og fleiri upplýsingum
um dána, koma út árlega í fjölrituðu hefti. Skrár yíir dána eftirtalin ár kosta
sem hér segir: 1965—67 (eitt hefti) 350 kr., 1968—74 7 hefti hvert á 250 kr.
7. Bifreiðaskýrsla kemur út árlega í fjölrituðu hefti. í því eru um 20 töflur
með fjölþættum upplýsingum um bifreiðaeign landsmanna. Hagstofan tók við
þessu verkefni af Vegagerð ríkisins frá og með Bifreiðaskýrslu 1. janúar 1972.
— Bifreiðaskýrsla 1. jan. 1972, 1973 og 1974 kostar 300 kr. hver um sig,
Bifreiðaskýrsla 1. jan. 1975 350 kr. og 1. jan. 1976 450 kr.
8. í ritinu Skrá um stofnanuheiti, sem kom út, fjölritað, á árinu 1972, er dönsk og
ensk þýðing á heiti stofnana, embætta, félagssamtaka og starfsgreina. Upp-
sláttaratriði í riti þessu er um 1500 að tölu. Venjulegar orðabækur eru hald-
htlar í þessu efni, og er þessu riti ætlað að hæta úr þeirri vöntim. Verðið er
350 kr.
Afgreiðsla ofan greindra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10
(3. hæð), Reykjavík. Simi 26699. Póstgíróreikningur Hagstofuunar er nr. 26646.
Rit eru send gegn póstkröfu, sé þess óskað, þó ekki rit það, cr um ræðir í lið 4.