Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1985, Side 10
6
Verslunarskýrslur 1984
Samhliða aukinni vörugreiningu í hinni endurskoðuðu vöruskrá hagstofu
Sameinuðu þjóðanna, var vöruflokkun hennar breytt allmikið. Miðað við
flokkun á vörudeildastigi komu vörudeildir 71—79 (sjá meðal annars töflu I á
bls. 2) í stað vörudeilda 71—73, og vörudeild 86 var lögð niður. í stað hennar
komu vörudeildir 87 og 88. Þessi breytta flokkun vörutegunda er tekin í
innflutningsskýrslur frá ársbyrjun 1977. Allt var óbreytt í meginatriðum upp að
vörudeild 71, en þar á eftir var, eins og áður segir, um að ræða breytingar, þó
ekki á vörudeildum 81—85, 89 og 9—.
Vöruskrá hagstofu Sameinuðu þjóðanna er þannig uppbyggð eftir aðra
endurskoðun hennar: í 786 undirfl. (,,subgroups“, táknaðir xxx.x) á hver vara í
milliríkjaviðskiptum sinn stað. Af þessum undirflokkum eru 435 skiptir þannig
að 1 573 númer („subsidiary headings“, táknuð xxx.xx) bætast við 786-^435
númer, og verður heildartala vörunúmera þá 1 924. Hinir 786 undirflokkar
skiptast á 233 vöruflokka (,,groups“, táknaðir xxx), og þeir ganga upp í 63
vörudeildir (,,divisions“, táknaðar xx), sem að lokum mynda 10 vörubálka
(,,sections“, táknaðir x).
Frá ársbyrjun 1984 urðu nokkrar breytingar á flokkunarskrá útflutnings. í
vöruflokk 18 (lagmeti) bættust 18.13.00, 18.19.00, 18.41.10, 18.43.00, 18.44.00
og 18.47.00. I vöruflokk 89 (ísl. iðnaðarvörur, ót.a.) bættust 89.32.50, 89.45.50
og 89.80.50. Hörpudiskur nýr, ísvarinn og kældur er nú í 49.34.00, en var áður í
42.10.00 ásamt með frosnum hörpudiski. Prjónaðar húfur, treflar, jakkar og
kápur eru nú sundurliðuð í 84.30, 84.35, 84.43 og 84.47, en voru áður talin í
84.50.00 (ytri prjónafatnaður, ót.a.). Þá er nýtt númer fyrir lifandi hross til
slátrunar, 63.50.00.
Gjaldmiðilsbreyting o. fl. Með lögum nr. 35 29. maí 1979 voru sett lög um
breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils. Þar var ákveðið, að frá og með 1. janúar
1981 skyldi verðgildi krónunnar hundraðfaldað, þ. e. 100 gamlar krónur skyldu
verða jafngildi einnar nýrrar krónu. Frá og með Verslunarskýrslum 1981 eru
allar fjárhæðir í nýjum krónum, og þar sem birtar eru tölur tilheyrandi fyrri
árum (aðallega í inngangi) hefur öllum verðmætistölum verið breytt í nýjar
krónur, nema að hluta til í yfirlitum á bls. 11* og 36*.
Frá og með Verslunarskýrslum 1984 eru lönd ekki sérgreind í töflum IV og V,
nema innflutningur frá þeim eða útflutningur til þeirra nemi minnst 50 þús. kr.
Þetta mark var við 25 þús. kr. í Verslunarskýrslum 1983.
Aðaltafla innflutnings, tafla IV, er í tollskrárröð. Aðaltafla útflutnings, tafla
V, var frá og með Verslunarskýrslum 1970 sett í röð nýrrar vöruskrár
Hagstofunnar fyrir útflutning, sem tekin var í notkun í ársbyrjun 1970. Töflu III
var breytt til samræntis við þetta,og eru því útfluttar vörur í henni í sömu röð og í
töflu V, en saman dregnar, þannig að verðmætistölur svara til 2ja fyrstu stafa
hinnar 6 stafa tákntölu hvers vöruliðs í vöruskrá útflutnings. Hér vísast að öðru
leyti til liðs 3 í skýringum við töflu V, á bls. 236.
Varðandi form og uppsetningu á aðaltöflum innflutnings (IV) og útflutnings
(V) vísast að öðru leyti til skýringa í upphafi hvorrar töflu. Einkum er vísað til
liða 3—5 í skýringum við töflu IV.
Cif-verð, fob-verð o. fl. Fram að 1951 var innflutningurinn í verslunarskýrsl-
um eingöngu talinn á cif-verði, þ. e. á verði vöru í útflutningslandinu (fob-verð),
að viðbættum kostnaði, sem á fellur, þar til hún er affermd á ákvörðunarstað. Er
hér aðallega um að ræða flutningsgjald og vátryggingu. Síðan í Verslunarskýrsl-
um 1951 hefur innflutningurinn einnig verið gefinn upp á fob-verði í nokkrum