Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1985, Blaðsíða 13
Verslunarskýrslur 1984
9
gengisákvarðanir breytt á þá leið, að í stað þess að styðjast við meðaltal
viðskiptavoga (landavoga) og myntvoga var ákveðið að miða gengisákvarðanir
við meðalgengi mælt á kvarða viðskiptavogar eingöngu, þ. e. hlutdeild einstakra
landa í útflutningi og innflutningi. Við þetta minnkaði vægi Bandaríkjadollara úr
46% í gengisvoginni í 30%. Þessi breyting var látin virka aftur til 27. maí 1983,
en miðað við fyrri ákvarðanir um breytingar meðalgengis hafði þetta í för með
sér um 3% lækkun a meðalgengi krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Að
loknum kjarasamningum í byrjun nóvember var ákveðið að lækka gengi
krónunnar. Gengið hafði þá verið látið síga allört frá miðjum október, en frá
þeim tíma til 16. nóvember hafði gengið verið lækkað smám saman um 4,3%.
Hinn 19. nóvember var gengisskráning felld niður og gengið lækkað um 12%
hinn 20. nóvember. Það fól í sér um 13,6% hækkun á meðalverði erlends
gjaldeyris og alls hafði verð erlends gjaldeyris því hækkað um nær 19% frá
miðjum október til 20. nóvember. Jafnframt tilkynnti Seðlabankinn, að eftir
þessa breytingu yrði aftur stefnt að því að halda gengi krónunnar sem stöðugustu
næstu mánuðina.
Frá upphafi til loka ársins 1984 hækkaði meðalverð erlends gjaldeyris, mælt á
viðskiptavog, um 26,4% en það svarar til 20,9% lækkunar á meðalgengi
krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Meðalverð erlends gjaldeyris árið
1984, mælt á viðskiptavog, reyndist 16,6% hærra en árið áður, en það svarar til
þess að gengi krónunnar hafi til jafnaðar verið 14,2% lægra árið 1984 en árið
1983. Ofangreindar tölur eru miðaðar við meðaltal kaupgengis og sölugengis, en
óverulegur munur var á breytingu kaup- og sölugengis frá meðaltali 1983 til
1984.
Eftirfarandi tafla sýnir skráð kaupgengi Seðlabankans á erlendum gjaldeyri
eins og það var að meðaltali á árinu 1984 og í árslok 1984 í kr. á einingu auk
hlutfallslegrar hækkunar gengisins frá fyrra ári:
Mcöaltal Árs- Árslok Árs-
1984 hækkun 1984 hækkun
kr. % kr. %
Bandaríkjadollar 31.65548 26,6 40.49000 41.4
Stcrlingspund 42.04174 11.2 47.07000 13.4
Kanadadollar 24,42740 20,5 30.67400 33.4
Dönsk króna 3.05134 12.4 3,59670 23.7
Norsk króna 3.871X15 13.3 4.45730 19.8
Sænsk króna 3.81826 17.6 4.51590 26.2
Finnskt mark 5.26097 17.5 6.19110 25.6
Franskur franki 3.61562 11.0 4.21330 22.6
Bclgískur franki 0.54694 12.6 0.64210 24.7
Svissncskur franki 13.44808 13.5 15,63320 19.0
Hollcnskt gyllini 9,84593 13.1 11.40560 21.9
Vcstur-þýskt mark 11,10111 14.1 12.87440 22.4
Itölsk líra 0,01798 10.0 0,02100 21.5
Austurríkur schillingur 1,57910 14.2 1.83380 23.0
Portúgalskur cscudo 0.21493 -3.8 0.23850 10.0
Spánskur pcscti 0,19643 13.6 0.23340 27.8
Japanskt ycn 0.13302 26.5 0.16093 30.3
írskt pund Scrstök dráttarrcttindi 34,23724 11.0 40,14600 23.3
Alþjóöagjaldcyrissjóösins. SDR 32,37903 21.7 39.68870 32.4
Frá upphafi ársins 1979 hefur sá háttur verið hafður á, að skráð sölugengi hinn
28. hvers mánaðar er látið gilda við ákvörðun tollverðs innfluttrar vöru næsta
almanaksmánuð þar á eftir (sjá auglýsingu um tollafgreiðslugengi, nr. 427, 8.
desember 1978). Þegar veruleg breyting verður á gengi íslenskrar krónu