Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1985, Side 30
26
Verslunarskýrslur 1984
4. Útfluttar vörur.
Exports.
í töflu V (bls. 236—254) er sýndur útflutningur á hverri einstakri vörutegund
eftir löndum. Röð vörutegunda í þessari töflu fylgdi áður vöruskrá hagstofu
Sameinuðu þjóðanna, en frá og með 1970 er röð vörutegunda í þessari töflu
samkvæmt sérstakri vöruskrá Hagstofunnar fyrir útflutning. Um þetta vísast til
nánari skýringa í 1. kafla þessa inngangs og við upphaf töflu V á bls. 236.
í töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti útflutningsins eftir
vörudeildum núgildandi vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóðanna. í töflu III á
bls. 20—27 eru verðmætistöflur útflutnings svarandi til 2ja fyrstu tölustafa
hinnar 6 stafa tákntölu hvers vöruliðs í vöruskrá Hagstofunnar fyrir útflutning,
með skiptingu á lönd.
í töflu VI á bls. 255 er verðmæti útflutnings skipt eftir vinnslugreinum hvert
áranna 1980—84. Er hér um að ræða sérstaka flokkun útflutnings, sem gerð
hefur verið ársfjórðungslega frá og með ársbyrjun 1970. Hefur þessi flokkun
verið birt í Hagtíðindum fyrir hvern ársfjórðung, en í verslunarskýrslum er hún
aðeins birt fyrir heil ár.
Eins og greint var frá í 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn í verslunar-
skýrslum talinn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um borð í skip (fob) í
þeirri höfn, er þær fara fyrst frá samkvæmt sölureikningi útflytjanda. Þessi regla
getur ekki átt við ísfisk, sem íslensk skip selja í erlendum höfnum, og gilda því um
verðákvörðun hans í verslunarskýrslum sérstakar reglur. Til ársloka 1967 var,
auk löndunar- og sölukostnaðar o. fl., dregin frá brúttósöluandvirði ísfisks
ákveðin fjárhæð á tonn fyrir flutningskostnaði, en þessu var hætt frá og með
ársbyrjun 1968. Á árinu 1984 fylgdi Fiskifélag íslands þessum reglum við
útreikning á fob-verði ísfisks (og loðnu til bræðslu) út frá brúttósöluandvirði
hans, og var hann tekinn í útflutningsskýrslur samkvæmt því (hundraðstölur til-
greindar hér á eftir miðast allar við brúttósöluandvirði):
Danmörk Á ísfiski 5% heildarkostnaður. Fœreyjar: Á ísfiski 0,5% heildar-
kostnaður, á loðnu til bræðslu 5% heildarkostnaður. Bretland: Á ísfiski:
Löndunarkostnaður og hafnargjöld 12%, tollur 5%, sölukostnaður 3%. V-
Pýskaland: Á ísfiski: Löndunarkostnaður og hafnargjöld 12%, tollur 3%,
sölukostnaður 2%.
Það skal tekið fram, að fiskiskip, sem selja ísfisk erlendis, nota stóran hluta af
andvirðinu til kaupa á rekstrarvörum, vistum o. fl., svo og til greiðslu á skips-
hafnarpeningum, en slíkt er ekki innifalið í áður nefndum frádrætti til
útreiknings á fob-verðmæti. Skortir því mjög mikið á, að gjaldeyri svarandi til
fob-verðs sé skilað til bankanna.
Útflutningsverðmœti 9' skipa, sem seld voru úr landi 1984 (í nr. 93.20.00 og
93.90.00 í töflu V), nam alls 78 234 þús. kr., og fer hér á eftir skrá yfir þau:
Úöafoss til Ítalíu, farskip......
Múlafoss til Kýpur, farskip .....
Dísarfcll til Grikklands, farskip ....
4 fiskiskip til Brctlands, til niöurrifs
Helgafell til Ítalíu, farskip ...
Akraborg (cldri) til Panama, farskip
Rúmlcstir Útflutn.vcröm.
brúttó þús. kr.
499 12 409
1 395 8 848
1 183 11 447
1 540 1 630
1 600 33 200
681 10 700
6 898 78 234
Samtals