Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1985, Síða 38
34'
Verslunarskýrslur 1984
og því var þessu breytt frá og með Verslunarskýrslum 1970. Þessi útflutningur er
nú í sérstökum lið í töflu VII.
Tafla VII sýnir verðmæti innflutnings í pósti. Mjög lítið er um útflutning í pósti
og því nær eingöngu frá Reykjavík. — Póstbögglar, sem sendir eru að gjöf, hvort
heldur hingað til lands eða héðan frá einstaklingum, eru ekki teknir með í
verslunarskýrslur.
í töflu VII kemur fram cif-verðmæti vara, sem fóru um tollvörugeymsluna í
Reykjavík. Tollvörugeymslan h.f., sem fékk heimild ráðherra til að reka
almenna tollvörugeymslu í Reykjavík (sbr. lög nr. 47/1960 og reglugerð nr. 56/
1961), hóf starfsemi í ágúst 1964. Aðalhlutverk hennar er að skapa innflytjend-
um aðstöðu til að fá, að vissu marki, einstakar vörusendingar tollafgreiddar
smám saman eftir hentugleikum. Að sjálfsögðu eru það aðallega tiltölulega
fyrirferðarlitlar vörur, og vörur með háum tolli, sem færðar eru í
tollvörugeymslu. — Það skal tekið fram, að Hagstofan telur allar vörur í
vörusendingu fluttar inn, þegar þær eru færðar í tollvörugeymslu eftir komu
þeirra til landsins í farmrými skips eða flugvélar, eða í pósti, — en ekki þegar
einstakir hlutar vörusendingar eru endanlega tollafgreiddir og afhentir innflytj-
anda. — Utan Reykjavíkur eru nú starfandi þrjár tollvörugeymslur: Almenna
tollvörugeymslan hf, Akureyri, frá júlí 1970, Tollvörugeymsla Suðurnesja hf,
Keflavík, frá júní 1976 og Tollvörugeymslan í Hafnarfirði hf frá júní 1984.
Vörur, sem fara um þær, eru teknar í innflutningsskýrslur á sama hátt og vörur,
sem fara um tollvörugeymslu í Reykjavík.
7. Tollar og önnur gjöld á innflutningi.
Customs duties etc.
Með lögum nr. 65 16. júlí 1975 var lagt 12% svo kallað vörugjald á fjölmargar
innfluttar vörur og á sömu innlendar vörur að svo miklu leyti sem þær eru
framleiddar innanlands. 1978 skiptist vörugjaldið í 2 gjaldflokka, sem frá 1. mars
1983 eru 24% og 30%. Vörugjald á innfluttum vörum er reiknað af tollverði
þeirra. Hráefni, helstu rekstrarvörur og ýmsar brýnar neysluvörur eru undan-
þegnar gjaldi þessu, en hins vegar er það t. d. yfirleitt tekið af fjárfestingar-
vörum. Tekjur af vörugjaldi renna óskiptar í ríkissjóð.
Með lögum nr. 83 18. maí 1978 (sbr. lög nr. 78/1980) var ákveðið, að
innheimta skyldi 3% jöfnunargjald í ríkissjóð af tollverði (cif-verði) innfluttrar
vöru, er tollar hefðu verið lækkaðir af eða felldir niður vegna aðildar íslands að
EFTA og vegna samnings íslands við EBE. Frá 1. janúar 1982 er að auki
innheimt svo nefnt jöfnunarálag á innflutt hús og húshluta og nemur það 12% af
tollverði.
Frá 1. júní 1984 til ársloka var innheimt sérstakt gjald af innfluttum,
fullunnum fóðurblöndum og hráefni í þær, kr. 1,30 á kg (lög nr. 43/1984).
Sérstakt tímabundið innflutningsgjald á sælgæti og kexi, 6% og 8% frá 1.
desember 1982, var fellt niður 1. mars 1983.
Með lögum nr. 5/1982 var lagt svo nefnt tollafgreiðslugjald á innfluttar vörur.
Þetta gjald nemur ýmist 1% af tollverði vörunnar eða kr. 50—200 fyrir hverja
tollafgreiðslu. Undanþegnar gjaldinu eru tollfrjálsar vörur, vörur sem fara um
tollvörugeymslur og póstsendingar, sem afgreiddar eru án aðflutningsskýrslu.