Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1985, Page 43
Verslunarskýrslur 1984
39
Samkvæmt upplýsingum Ríkisbókhaldsins voru tekjur af innfluttum vörum
sem hér segir, í þús. kr.:
Aöflutningsgjöld. almcnn1) ............
Bensíngjald2) .........................
Gúmmígjald2)...........................
Innflutningsgjald á bifreiðum og bifhjólum
Gjald af gas- og brennsluolíum ........
Vörugjald .............................
Jöfnunargjald af innflutningi .........
Gjald af fóöurblöndum og hráefni í þær ..
Innflutningsgjald á sælgæti og kexi ...
1983 1984
1 879 857 2 608 910
473 750 675 658
1 092 1 176
81 367 111 106
4 080 3 741
936 150 1 109 458
110 352 142 602
- 29 512
1 174 3
Alls 3 487 822 4 682 166
í lögum nr. 43/1984 var ákveðið að greiðslur af verðtolltekjum í Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga skyldu eigi nema hærri fjárhæð en 100 milljónum króna á árinu
1984, og hluti sjóðsins af söluskattstekjum skyldi takmarkast við 450 millj. kr.
Síðan í ársbyrjun 1977 (sbr. lög nr. 111/1976) hafa 8% af andvirði 18%
söluskattshluta runnið í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Frá 14. apríl 1980 hefur
söluskattur verið 23,5% að meðtöldu 1,5% orkujöfnunargjaldi. Samkvæmt j-lið
4. gr. laga nr. 10/1960, skal söluskattur af vörum til eigin nota eða neyslu
innflytjanda leggjast á tollverð vöru að viðbættum aðflutningsgjöldum og 10%
áætlaðri álagningu. Tekjur af þessu gjaldi námu 216 553 þús. kr. 1983, en
207 425 þús. kr. 1984, hvort tveggja áður en hluti Jöfnunarsjóðs dregst frá.
Hér á eftir er áf-verðmœti innflutnings 1983 og 1984 skipt eftir tollhœð, bæði í
beinum tölum og hlutfallstölum. í yfirliti þessu er ekki tekið tillit til niðurfell-
ingar og endurgreiðslu tolls samkvæmt heimildum í 3. gr. tollskrárlaga, en þær
skipta þó nokkru máli. Þá er og innflutningur til virkjunarframkvæmda,
flugstöðvarbyggingar, til fslenska álfélagsins og íslenska járnblendifélagsins,
sem er tollfrjáls, ekki talinn vera með 0% toll, heldur er hann flokkaður til
þeirra tolltaxta, sem er á viðkomandi tollskrárnúmerum. Þessir vankantar rýra
nokkuð upplýsingagildi yfirlitsins hér á eftir.
Frá ársbyrjun 1980 hefur innflutningur á svo nefndum verndarvörum frá
EFTA/EBE-löndum verið tollfrjáls. í yfirlitinu hér á eftir er heildarverðmæti
þessa innflutnings tilfært fyrir hvort áranna, 1983 og 1984. Vörur þær, er hér um
ræðir, eru allar með einhvern verðtoll, þegar þær eru fluttar inn frá löndum utan
við EFTA/EBE-svæðin. I hverjum verðtollstaxtaflokki hér á eftir eru annars
vegar vörur, sem eru með sama verðtolli hvaðan sem þær koma, og hins vegar
vörur, sem eru aðeins með verðtolli, þegar þær eru fluttar inn frá löndum utan
EFTA/EBE-svæða.
1) Innifalin í aðflutningsgjöldum eru: 5% hluti Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga (1983 93 013 þús. kr.. 1984 100 000 þús. kr.),
jöfnunarálag á hús og húshluti (1983 16 107 þús. kr., 1984 20 932 þús. kr.), tollafgrcidslugjald (1983 61 724 þús. kr.. 1984 78 754
þús. kr.), byggingariönaöargjald til Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins (1983 4 295 þús. kr.. 1984 5 104 þús. kr.). aðflutnings-
gjöld af sjónvarpstækjum (1983 30 477 þús. kr.. 1984 43 451 þús. kr.).
2) Tekjur markaðar vegamálum.