Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1993, Blaðsíða 11
Verslunarskýrslur 1992
9
áður var getið, færist þá á útgjaldahlið þjónustureiknings
þannig að niðurstaðan á viðskiptareikningi (sem er samtala
vöru- og þjónustureiknings) verður hin sama óháð því hvorri
aðferðinni er beitt. Tölur um vöruskiptajöfnuð breytast hins
vegar að mun. Þetta kemur fram í 2. yfirliti sem sýnir
vöruskiptajöfnuðinn, þ.e. útflutning umfram innflutning, þar
sem verðmæti útflutnings og innflutnings er hvort tveggja
reiknað á fob-verði. Til þess að gefa betri vísbendingu um
stærð vöruskiptajafnaðarins er jafnframt sýnt hlutfall hans af
landsframleiðslu samkvæmt tölum Þjóðhagsstofnunar.
I 2. yfírliti kemur fram að vöruskiptajöfnuðurinn við
útlönd hefur verið hagstæður fjöguraf þeim tíu árum, sem hér
eru sýnd. Tvö þessara ára, 1986 og 1989, var umtalsverður
afgangur eða sem nam 2,3% af landsframleiðslu. Á hinn
bóginn var halli á vöruskiptajöfnuðinum sex þessara ára,
mestur 1,1% af landsframleiðslu árið 1987.
2. yfirlit. Vöruskiptajöfnuður 1983-1992
Table 2. Balance of trade 1983-1992
í millj. kr. Vöruskiptajöfnuður Balance of trade
Million ÍSK Útflutt Innflutt Á gengi hvers Á gengi ársins 1992" Hlutfall af lands-
Exports Imports árs At current Ar constant 1992 framleiðslu %
fob fob exchange rates rate of exchange Per cent of GDP
1983 18.633,0 18.183,9 449,1 1.281,3 0,68
1984 23.557,0 23.931,2 -374,2 -917,9 -0,42
1985 33.749,6 33.766,4 -16,8 -32,3 -0,01
1986 44.967,8 41.101,0 3.866,8 6.450,4 2,43
1987 53.053,1 55.260,2 -2.207,1 -3.551,1 -1,06
1988 61.666,7 62.243,2 -576,5 -811,9 -0,23
1989 80.071,7 73.128,7 6.942,9 7.773,1 2,25
1990 92.625,1 88.084,8 4.540,3 4.563,0 1,28
1991 91.560,4 94.797,4 -3.237,0 -3.253,2 -0,84
1992 87.832,9 88.223,7 -390,8 -390,8 -0,10
” Miðað við meðalgengi á viðskiptavog. At trade veighted average ejfective rate of exchange.
Verð- og magnbreytingar 1991-1992 Price and volume
changes 1991-1992. 3. yfirlit sýnir samanburð á utanríkis-
verslunartölum á föstu gengi árin 1991 og 1992. Hér er um
sams konar töflu að ræða og Hagstofan sendir frá sér í
hverjum mánuði til upplýsingar um framvindu helstu flokka
innflutnings og útflutnings í samanburði við næstliðið ár.
Venja hefur verið að umreikna tölur fyrra árs til meðalgengis
líðandi árs til þess að eyða áhrifum gengisbreytinga á
verðmætistölur svo samanburður milli ára verði marktækari
en ella.
I 3. yfirliti kemur fram að verðmæti útflutnings dróst
saman um 4,5% á föstu gengi frá árinu 1991 til ársins 1992
og verðmæti innflutnings dróst saman um 7,4% þegar tekið
hefur verið tillit til 0,5% hækkunar á meðalverði erlends
gjaldeyris milli ára. Samkvæmt útreikningum Þjóðhags-
stofnunar á einingarverðvísitölum á grundvelli verslunar-
skýrslna lækkaði útflutningsverð um 3,1 % í krónum frá árinu
1991 til ársins 1992. Verðbreytingar einstakra vöruflokka
voru þó mismunandi; verð á sjávarafurðum lækkaði um
3,2%, verð á afurðum stóriðju lækkaði um tæp 7%,
útflutningsverð annarrar iðnaðarvöru hækkaði um 4% en
verð á landbúnaðarafurðum stóð því sem næst í stað. Að
frátöldum breytingum á verði áls og kísiljárns lækkaði
útflutningsverð um 2,7%.
Innflutningsverð hækkaði um 0,6% í krónum frá árinu
1991 til ársins 1992. Verð á neysluvöru og fjárfestingarvöru
hækkaði meira eða um 4,2% en verð á eldsneyti lækkaði um
rúm 14% og rekstrarvörur aðrar en olía lækkuðu um 1%.
I krónum talið varð verðmæti vöruútflutnings um 4%
minna árið 1992 en árið áður og útflutningsverð lækkaði á
sama tíma um 3%. Að raungildi dróst því útflutningurinn
samanum l%fráárinu 1991 til 1992. Verðmætiinnflutnings
fobdróstsamanum7%íkrónumtaliðfráárinu 1991 tilársins
1992, innflutningsverð hækkaði um tæpt 1 % og því lækkaði
innflutningurinn að raungildi um nær 8%.
Eftir þeim tölum um breytingar fob-verðs útflutnings og
innflutnings, sem hér hafa verið raktar, hafa viðskiptakjörin
við útlönd versnað um 3,7% frá árinu 1991 til ársins 1992. Að
frátalinni utanríkisverslun stóriðjuveranna versnuðu
viðskiptakjörin við útlönd enn meira eða um 4,4%.