Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1926, Page 7
Inngangur.
lntvoduction.
I. Dúpeningur.
Le bétait.
Framteljendur búpenings hafa verið taldir í búnaðarskýrslum
svo sem hjer segir:
1920 .... 11 924
1921 .... 11 691
1922 .... 12 078
1923 .... 11 712
1924 .... 12 046
Árið 1924 hefir tala framteljenda verið heldur meiri en næsta ár
á undan.
I fardögum 1924 var sauðfjenaður talinn samkvæmt búnaðar-
skýrslunum 583 þúsund. Reynslan undanfarið bendir til þess, að fjártalan
í búnaðarskýrslunum muni vera töluvert of lág. Þannig reyndist sauð-
fjenaður við fjárskoðunina veturinn 1906—’07 um 109 þús. fleiri en fram
var talið í búnaðarskýrslunum vorið eftir (1907). En með því að ekki
virðist ástæða til að ætla, að framtalið muni vera mun betra eða lakara
eitt árið heldur en annað, mun líklega óhætt að byggja á búnaðar-
skýrslunum samanburð milli ára um tiltölulega fjölgun eða fækkun.
Vorið 1923 töldu búnaðarskýrslurnar sauðfjenaðinn 550 þúsund.
Hefur honum því fjölgað fardagaárið 1923—24 um 33 þúsund eða um
6.0 o/o. Fjölgunin á þessu ári hefur því verið töluvert meiri heldur en
fækkunin árið á undan, svo að tala sauðfjenaðarins hefur verið töluvert
hærri heldur en vorið 1922.
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hvernig sauðfjenaðurinn skiftist vorið 1924
samanborið við árið á undan.