Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1926, Page 14
12
Búnaðarskyrslur 1924
jarðabætur þær, sem unnar hafa verið á landinu, komi betur fram í
skýrslunum nú heldur en áður, þegar aðeins voru teknar jarðabætur
búnaðarfjelagsmanna. En auk þess hefur verið bætt við nokkrum tegund-
um jarðabóta, sem ekki voru teknar með áður, svo sem grjótnám, opnir
framræsluskurðir og heyhlöður. Skýrslurnar eru annars í svipuðu formi
eins og áður. Yfirlitsskýrslan eftir sýslum (tafla VI. bls. 19—23) er gerð
jafnnákvæm og sundurliðuð eins og skýrslur trúnaðarmanna Búnaðar-
fjelagsins, en skýrslurnar um jarðabætur innan svæðis hvers búnaðarfje-
lags (tafla VII, bls. 24—35) hafa verið dregnar nokkuð saman, svo að
þær eru ekki eins mikið sundurliðaðar.
Síðustu árin hefur tala búnaðarfjelaga, sem styrk hafa fengið,
tala jarðabótamanna og tala dagsverka unnin af þeim við jarða-
bætur, verið sem hjer segir:
Dagsverk
Fjelög )aröabótamenn alls á mann
1920 ............. 97 1 464 82 000 56
1921 ............... 111 1 779 102000 57
1922 ............... 111 1 924 102 000 53
1923 ............... 115 1 997 101 000 50
1924 ............... 169 2 380 238 000 100
Árið 1924 hækkar mikið bæði fjelagatalan, tala jarðabótamanna og
dagsverkatalan. En eins og áður er sagt stafar sú hækkun sennilega að
nokkru leyti frá því, að skýrslurnar hafi náð til fleiri jarðabóta nú heldur
en áður. Einnig hefur breyst nokkuð útreikningurinn á því, hvernig jarða-
bætur eru lagðar í dagsverk.
Matjurtagarðar, sem gerðir hafa verið síðustu 5 árin, hafa
samkvæmt jarðabótaskýrslunum verið samtals að stærð svo sem hjer
segir (talið í hektörum).
1920
1921 7.4 —
1922 7.9 —
1923 6.0 —
1924 7.8 —
Túnræktin hefur verið þannig 5 síðustu árin.
Nýrækt
Túnasljettur Bylt Öbylt Samtals
1920 .... . . . 126.1 ha 35.3 ha 38.4 ha 199.8 ha
1921 .... ... 159.5 - 56.6 — 12.2 — 228.3 —
1922 .... .. . 175.0 - 80.1 — 14.3 — 269.4 —
1923 .... ... 231.5 — 81.1 — 33.5 — 346.1 —
1924 .... . . . 192.7 — 213.5 — 39.3 — 445.5 —