Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1931, Síða 11
Búnaðarskýrslur 1929
9
liggja fyrir, en þar sem þær þrýtur er stærðin tekin eftir upplýsingum
þeim um stærðina, sem eru í búnaðarskýrslunum. I þeim hreppum, sem
túnmælingar eru ókomnar úr, vísast í neðanmálgrein til þess árs búnaðar-
skýrslnanna, sem stærðin er tekin eftir. Þar sem mælingar þær, sem
komnar eru, ná aðeins yfir nokkurn hluta af hreppnum, er merkið * sett
við túnstærðina og er þá það sem á vantar tekið eftir búnaðarskýrsl-
unum. Samkvæmt skýrslunum, eins og þær birtast hér, er túnstærðin
22 796 hektarar, en kálgarðar 488 hektarar.
III. Jarðargróði.
Produits des récoltes.
Samkvæmt búnaðarskýrslunum hefur heyskapur að undanförnu verið:
1901 — 05 meðallal
1906—10 —
1911-15 —
1916-20 -
1921—25 —
1924—28 —
1928 ...........
1929 ..........
Taða
609 þús. hestar
623 — —
667 — —
597 — —
751 — —
815 — —
769 — —
989 — —
Úthey
1 252 þús. hestar
1 324 — —
1 423 — —
1 472 — —
1 327 — —
1 372 — —
1317— —
1 194 — —
Árið 1929 hefur töðufengur orðið 29 °/o meiri en næsta ár á undan.
Samanborið við meðaltal 5 næstu áranna á undan (1924—28) varð hann
21o/o meiri. Aftur á móti varð útheyskapur 9 °/o' minni heldur en næsta
ár á undan (1928) og 13 °/o minni en meðaltal áranna 1924—28.
2. yfirlit (bls. 10) sýnir heyskapinn í hverjum landshluta fyrir sig.
í öllum landshlutum hefur töðufengur orðið miklu meiri árið 1929
heldur en meðaltal áranna 1924—28, en útheyskapur aftur á móti
miklu minni.
Uppskera af jarðeplum 1929 varð meiri en í meðallagi, 39 þús.
tunnur. Árið næst á undan var hún meiri, 42 ll2 þús. tunnur, en meðal-
uppskera 5 næstu áranna á undan (1924—28) var 36 þús. tunnur. —
Uppskera af rófum og næpum varð árið 1929 15 ]/2 þús. tunnur.
Árið á undan var hún 15 þús. tunnur, en meðaltal áranna 1924—28
var aðeins 12 þús. tunnur.
Mótekja var 325 þús. hestar haustið 1929. Er það meira en
árið á undan, þá var mótekjan aðeins 285 þús. hestar, og líka meira en
meðaltal 5 áranna á undan, sem var 304 þús. hestar. — Hrísrif hefur