Hagskýrslur um landbúnað

Issue

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1936, Page 13

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1936, Page 13
Búnaðarskýrslur 1935 11 langt fyrir neðan ineðallal undanfarandi ára. Miðað við meðaltal ár- anna 1930—34 var hún 20% minni, en hrísrif var aðeins 4% minna heldur en meðaltal áranna 1930—34. IV. Jarðabætur. Améliorations fonciéres. Með jarðrœktarlögunum frá 20. júní 1923, sem gengu í gildi 1. júlí það ár, var Búnaðarfélagi íslands falin framkvæmd, eða umsjón með framkvæmd, þeirra ræktunarmála, sem lán eða styrkur er veittur til úr ríkissjóði. — Trúnaðarmenn Búnaðarfélagsins mæla allar jarðabætur á landinu og eru VI.—VIII. tafla hér í skýrslunum (lils. 35—57) teknar eftir skýrslum þeirra um þær mælingar. í skýrslum mælingamanna eru yfirleitt taldar allar jarðabætur, að svo miklu leyti sem um þær hefur verið kunnugt eða til þeirra hefur náðst. Yfirlitsskýrslurnar fyrir alt landið og sýslurnar (tafla VI—VII, hls. 35—43) eru gerðar jafnnákvæmar og sundurliðaðar eins og skýrslur trúnaðarmanna Búnaðarfélagsins, en skýrslurnar um jarðabætur í hverjum hreppi (tafla VIII, hls. 44—57) hafa verið dregnar nokkuð saman, svo að þær eru ekki eins mikið sundurliðaður. Hefur Búnaðarfélag Islands að þessu sinni annast alla samtalningu upp úr skýrslum trúnaðarmannanna. Jarðabæturnar voru fyrst ekki mældar fyr en árið eftir að þær voru unnar, en á þessu hefur verið gerð sú breyting, að þær eiga að mælast sama árið sem þær eru unnar. Fyrst er breytingin komst á voru því tveggja ára jarðabætur mældar í einu. Var það sumstaðar gert 1929 (fyrir 1928 og 1929), en víðast hvar 1930 (fvrir 1929 og 1930), og teljast því jarða- bótaskýrslur þær, sem fylgdu búnaðarskýrslunum 1930, fyrir árin 1929 og 1930. Tölurnar eru þó heldur of lágar sem tveggja ára tölur, en tölurnar 1928 aftur á móti heldur ol' háar sem cins árs töiur. Skýrslurnar fyrir 1931 og síðan eru í nokkuð breyttu formi frá þvi sem áður var. Aðalbreytingin er sú, að þær jarðabætur, sem heyra undir II. kafla jarðræktarlaganna, og styrks njóta úr ríkissjóði samkvæmt hon- um, eru teknar sérstaklega fyrst, en aðrar jarðabætur þar á eftir. Þá eru líka sumar jarðabætur sundurliðaðar nokkuð nánar eða öðruvísi heldur en áður. Síðustu árin liefur tala bú naðar f é 1 aga, tala jarðabóta- manna og tala dagsverka unnin af þeim við jarðabætur verið sem hér segir: Dagsverk Félög Jnrðabótaraenn alls :i inann 1925 .................. 176 2 797 354 þús. 127 1926 ............... 196 3 365 426 — 126 1927 .................. 204 3 939 503 128 1928 .................. 214 5 238 698 133

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.