Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1936, Síða 62
Hagstofa íslands
gefur út cftii'farandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar itarlegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í
sjdlfstæðum heftum og fást þau keypt einstök. Af Hagskýrslun-
um er út komið:
Verslunarskýrslur 1912—1934.
Búnaðarskýrslur 1912—1935.
Alþingiskosningar 1908—1934.
Fiskiskýrslur og lilunninda 1912—1934.
íslensk mannanöfn 1. des. 1910.
Barnafræðsla 1909—1920.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um sambandslög 1918.
Mannfjöldaskýrslur 1911—1930.
Skýrslur um skipakomur 1913—1917.
Manntal á íslandi 1. des. 1920.
Sparisjóðir 1911—1925.
Dómsmálaskýrslur 1913—1925.
Menn geta gerst áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa
sér beint til Hagstofunnar. Áskriflargjald er 5 lcrónur um árið.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innflutning og útflútning, smásöluverð og ýmislegt fleira, sem
ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslunum.
Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma
um ítarlegri skýrslur. Af Hagtíðindum eru komnir út 21 ár-
gangar (1916—1936). Áskriftargjald er 1 króna og’ 50 aurar
um árið.
III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim tal-
fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið
sé mikið út í einstök alriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur
með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg.
1930. Ivostar 3 krónur.
IV. Manntal á íslandi árið 1703 tekið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Vídalín. Er það prentað í heild sinni og kemur
út eitt hefti á ári. Komin eru út 13 hefti, sem ná yfir alt landið
nema nokkurn hluta af Árnessýslu. Hvert hefti kostar 3 krónur.