Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1938, Side 68
Hagstofa Islands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur Islands. Þar eru birtar itarlegar skýrslur um þau
efni, seni Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í
sjálfstæðum heftum og fást þau keypt einstök. Menn geta lika
gerst áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa sér beint
til Hagstofunnar. Áskriftarg,jald er 5 krónur um árið.
Á bverju ári kemur út eitt hefti af verslunarskýrslum, bún-
aðarskýrslum og fiskiskýrslum og venjulega auk þess eitt hefti
um önnur efni.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innflutning og útflutning, smásöluverð og ýmislegt lleira, sem
ekki þykir taka að birta i sérstöku hefti af Hagskýrslunum.
Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma
um ítarlegri skýrslur. Áskriftarg_jald er 1 króna og 50 aurar
um árið.
III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim tal-
fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið
sé mikið út i einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töilur
með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg.
1930. Kostar 3 krónur.
IV. Manntal á íslandi árið 1703 tekið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Vidalin. Er það prentað í heild sinni og kemur
út eitt hefti á ári. Koinin eru út 14 hefti, sem ná yfir alt landið
nema nokkurn hluta af Árnessýslu.