Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1942, Síða 18
10
Búnaðarsliýrslur 1941
húsabóta. Þetta gildir þó aðeins um þau býli, sem t'engið hafa síðan 1923
samtals 1 000—4 000 kr. í jarðabótastyrk. Ef þau hafa fengið minna en
1 000 kr., greiðist 20 % hærri styrkur, en ef þau hafa fengið yfir 4 000 kr„
greiðist 20 % minni styrkur fyrir liverl verk, og ef þau hafa fengið 5 000
kr„ greiðist enginn styrkur. Undantekning frá styrklækkun er þó gerð um
nýhýli, sem reist eru áður en nýbýlalögin frá 1936 gengu í gildi, og há-
markið fyrir þau fært upp í 7 000 kr. Al' styrk hvers jarðabótamanns
skal leggja ö % í sjóð ]>ess húnaðarfélags, sem hann er meðlimur í. Styrk-
urinn fyrir jarðaba'tur 1941, miðað við verkið án hækkunar eða lækkunar,
var alls 175 þús. kr„ þar af 10 þúsund lil áhurðarhúsa, 150 þúsund til
túnræktar og garðræktar, og 15 þúsund til hlöðubygginga. En vegna
ákvæðanna um áður fenginn styrk, var styrkuþphæðin hækkuð um 12 þús.
kr„ en lækkuð um 1 þús. kr„ svo að styrkurinn varð alls 186 þús. kr. Þar
við bættist svo 60% dýrtiðaruppbót, eða 112 þús. kr„ svo að útborguð
styrkupphæð varð alls 298 þús. kr. Af þessari upphæð runnu svo 5% eða
tæpl. 15 þús. kr. til lninaðarfélaganna. Hvernig tala stvrkþega og stvrk-
upphæðin skiftist á sýslurnar, sést á 3. yfirlili, sem gert hefur verið af
Búnaðarfélagi íslands.
í jarðræktarlögunum er svo ákveðið, að leiguliðar á þ j ó ð j ö r ð u m
og kirkjujörðum megi vinna af sér jarðarafgjaldið með jarða-
bótum á leigujörð sinni. Eftirfarandi yfirlit, sem gert er af Búnaðarfé-
laginu, sýnir hve margir búendur í hverri sýslu notuðu sér þessi ákvæði
árið 1941 og hve mikil upphæð gekk á þann hátt til landskuldargreiðslu.
r.andsknldar-
Tala býla grciðsla
(íullbringu- og Kjósarsýsla ................ 10 720 kr.
Borgarfjarðarsjsla........................... 6 486 —
Mýrasýsla ................................... 2 227 —
Snæfellsness- og Hnappadalssýsla........ 20 2 130
Dalasýsla.................................... 1 7
Barðastrandarsýsla .......................... 9 283
Isafjarðarsýsla ............................. 3 405
Húnavatnssýsla .............................. 4 223 —
Skagafjarðarsýsla............................ 5 224
Kyjafjarðarsýsla............................ 10 1 456
Suður-Þingeyjarsýsla........................ 16 1 495 —
Norður-Múlasýsla............................ 10 425
Suður-Múlasýsla............................. 27 1 325
Aiistur-Skaftafellssýsla .................... 3 348
Vestur-Skaftafeíiésýsla .................... 19 1 404
ltangárvallasýsla .......................... 21 2 002 —
Arnessj’sla................................. 22 1 594
Samtals 1941 188 14 754 kr.
1940 257 24 289
1939 280 29 558
1938 291 33 381
1937 321 30 527 -