Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1942, Blaðsíða 68
Hagstofa Islands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítarlegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í
sjálfstæðum heftum, og fást þau keypt einstök. Menn geta lika
gerst áskrifcndur að Hagskýrslunum með því að snúa sér beint
til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 12 krónur um árið.
Á hverju ári kemur út eitt hefti af verslunarskýrslum, bún-
aðarskýrslum og fiskiskýrslum og venjulega auk þess eitt hefti
um önnur efni.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innflutning og útflutning, smásöluverð og ýmislegt fleira, sem
ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslunum.
Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma
um itarlegri skýrslur. Áskriftargjald er 5 krónur um árið.
III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim tal-
fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið
sé mikið út i einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur
með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg.
1930.
IV. Manntal á íslandi árið 1703, tekið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Vidalin. Iíomin eru út 16 hefti, og er í þeim alt
manntalið frá 1703, en í viðauka er birl manntal i 3 sýslum frá
árinu 1729, og er enn eftir nokkur hluti hans.